Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1982, Blaðsíða 119
sem kallast á ensku "hand, foot and mouth disease",fylgdi sýni af
Sauðárkróki i janúar, úr Hafnarfirói i febrúar og nóvember og af
Vestfjörðum i október. Margir A-stofnar af Coxsackieveirum vaxa
ekki nema i sólarhringsgömlum músarungum, en hér eru þeir ekki
tiltækir og voru ekki fáanlegir til að sá þessum sýnum i. Það er
orðið mjög erfitt að reka veirurannsóknadeild fyrir landió án þess
að hafa aðstöóu til dýrahalds, sem gæti, auk bættrar aðstöðu til
greininga á sýkingum, sparað talsvert fé, sem nú fer i innflutning
dýrra efna.
•áf þeim 98 sjúklingum, sem áóur getur, höfðu 12 gollursbólgu (pericar-
ditis), 10 karlmenn og 2 konur. Þessir sjúklingar fundust á mismunandi
stöóum, 3 á Akureyri, 1 á Egilsstöóum, 1 á Isafirði, 1 i Keflavik og
6 i Reykjavík. Af þessum sjúklingum veiktust 6 i september og október,
þar af 2 á Akureyri og sá á Egilsstöðum. Leitaó var sérstaklega að
Coxsackie Bs-sýkingu, vegna þess að vitaó var, að sú veira var á ferli
i Reykjavik þessa sömu mánuði, en sú leit var árangurslaus og tókst
að útiloka hana sem orsök hjá báðum sjúklingunum á Akureyri og einum
sjúklingi úr Reykjavik. Úr sjúklingnum á Egilsstöóum uxu enteroveirur,
sem ekki tókst að ættgreina með aðferðum, sem hér eru tiltækar, og
Varó sú ræktun eina jákvæða rannsóknin á þessum 12 sjúklingum. Cox-
sackie B5 óx úr saursýni frá 10 ára telpu með bólgu i brisi og ECHO12-
veira úr börnum með háan hita og útbrot. Eitt þeirra hafði hjarta-
stækkun og stækkað milti, en ekki er ljóst,hvort sýkingin á þátt i
þeim einkennum. Adenoveirur ræktuðust úr saur sjúklinga með hita,
sugnangur eða eitlastækkanir, sem minntu á mononucleosis að sögn
sendanda.
Sýkingar i miðtaugakerfi
Vegna gruns um veirusýkingar i miðtaugakerfi bárust sýni frá 87 sjúk-
lingum, sem voru á sjúkrahúsum árió 1981. Ástæður fyrir sendingu sýna
v°ru margs konar sjúkdómseinkenni. 1 hópnum voru 10 sjúklingar með
heilabólgu og 25 með mengisbólgu (meningitis). Dreifing þessara sjúk-
linga var nokkuð jöfn allt árið. Hvergi virtist grunur um faraldra
uf mengis- eða heilabólgu af völdum veirna. Hér skal reynt að gera
nanari grein fyrir rannsóknum á sýnum frá þessum tveimur sjúklinga-
hópum.
^rá aðeins einum af þeim 10 heilabólgusjúklingum, sem að ofan getur,
úarust á æskilegu stigi sjúkdómsins öll sýni, mænuvökvi, saur, háls-
skol og tvö blóðsýni, sem nauósynleg eru til greininga veirusýkinga
1 miðtaugakerfi. Rannsóknir á þessum sýnum leiddu ekki til sjúkdóms-
úreiningar. Úr tveimur öðrum sjúklingum með heilabólgu bárust mænu-
vókvar i ræktun og eitt blóðsýni til mótefnamælinga. Annar þessara
sjúklinga fékk heilabólgu i beinu framhaldi af hlaupabóluútbrotum.
Engin sýni bárust i veiruræktun frá 7 af þessum 10 sjúklingum, en
2 blóósýni i mótefnamælingar bárust frá 4 sjúklingum af þessum 7.
Einn þeirra hafði fengið inflúensu heima rétt fyrir komu á sjúkra-
hus og hafði þá fullhækkuð mótefni fyrir A-stofni af H1K1 -gerð. Hvern
Þatt sú sýking átti i heilabólgunni eða hvort hún átti nokkurn þátt
1 henni veróur ekki sannað. Þessi sjúklingur dó. Annar af þeim 4, sem
hægt var að gera æskilegar mótefnamælingar á, reyndist hafa hækkandi
^otefni gegn mycoplasma pneumoniae. Óvist er, hvaóa þátt sú sýking átti
^ einkennum frá miðtaugakerfi, mótefnin gætu eins stafað af öndunar-
fmrasýkingum samtimis. Ekki tókst að finna heilabólgu af völdum herpes
simplex á árinu.
117