Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1982, Blaðsíða 150
hættulegra efna til nota í landbúnaði og garðyrkju og til útrýmingar
meindýra. Mælti nefndin með 11 umsóknum, en endanleg afstaða var
ekki tekin til 3 umsókna. Fellt var af skrá 1 útrýmingarefni i C hættu-
flokki. Gengið var frá tilkynningu 6/1981 L um yfirlit yfir plöntu-
lyf, örgresisefni, stýriefni og útrýmingarefni, er flytja má til
landsins, selja eða nota, sbr. 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 132/1971,
og skrá yfir framleiðendur og umboðsmenn, er ráðuneytið gaf út 15.6.
Farið var yfir sölubækur fyrirtækja, er selja færsluskyld efni og
efnasamsetningar, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 455/1975.
Ýmis mál
Nefndin fjallaði um tússpenna. Upplýst var, að i flestum tegundum
tússpenna er umtalsvert magn ísóbútýlketóns. Taldi nefndin hugsan-
legt, að svo mikið gufaði upp af efni þessu úr tússpennum, að i
illa loftræstum skólastofum kynni það að slæva viðstadda i þeim mæli,
að þeir fyndu til syfju. Fjallað var um orobronze, sem er húðlitar-
efni. Nefndin taldi, að neysla þessa efnis bæri ekki með sér sérstaka
hættu. Hins bæri þó að gæta, að litur af völdum þessa efnis veitti
enga vörn gegn geislum sólarljóssins likt og hinn eðlilegi sólbrúni
litur gerir. Enn fremur taldi nefndin ekki útilokað, að efni þetta
gæti valdið ofnæmisviðbrögðum. Birt var i nafni eiturefnanefndar
eftirfarandi ritgerð: Mercury, Arsenic, Cadmium, Selenium and Zinc
in Human Hair and Salmon Fries in Iceland (Acta pharmacol. et toxicol.
48, 185-189) og eru höfundar auk formanns Gulbrand Lunde (nú látinn)
og Eiliv Steinnes. Nefndin tók til meðferðar förgun á völsum úr ljós-
ritunarvélum, sem hafa aó geyma selen-málm og tellúr-málm i nokkru
magni. Alyktað var, að farga mætti völsum þessum á öskuhaugum að því
tilsk;Lldu, að þeir væru vendilega dysjaðir.
Frá landbúnaðarnefnd efri deildar Alþingis var nefnainni sent til
umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á
plöntum. Var umsögn nefndarinnar send formanni landbúnaðarnefndar
efri deildar. Nefndin fjallaði um vandamál i sambandi við endurdreif-
ingu á rottuútrýmingarefnum frá hreinsunardeildum Reykjavikurborgar
og Hafnarfjarðar og nauðsyn þess að setja i reglugerð ákvæði um slika
starfsemi. Fjallað var um hugmyndir landlæknis þess efnis að koma á
fót hér á landi svokölluðum Ames-prófum. Nefndin taldi, að kostnaður
við Ames-próf væri langt um of til þess, að mæla mætti með þvi að
taka slik próf upp hér á landi. Nefndin fjallaði itarlega um hættu
á krabbameinsmyndun af völdum benómýls. Efni þetta er notamikið
plöntulyf (sveppalyf) og hefur litil bráð eiturhrif. Með tilliti
til umtalsverðrar hættu á illkynja frumubreytingum af völdum þessa
efnis var samþykkt að takmarka notkun þess við skrautjurtir eingöngu.
Jafnframt skyldi efnið skráð i A hættuflokki. Nefndin hafði til með-
feróar nýjar upplýsingar um eiturhrif alúminiums. Hafinn var frum-
undirbúningur að mælingum á oxandi efnum, er verða til við ljósefna-
fræðilegar breytingar í andrúmslofti (fótóoxidantar), i andrúmslofti
i grennd vió Reykjavik. Er þetta framhald af fyrri mengunarrannsóknum
eiturefnanefndar. Tekið var til meðferðar erindi um staðsetningu
natriumklóratverksmiðju og var samin um það itarleg greinargerð.
Nefndin fjallaði um hugsanleg vandkvæði, er stafa kynnu af neyslu
mengaðrar mataroliu frá Spáni. Var heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu sent bréf um þetta efni. Nefndin sendi ráðuneytinu að
beióni þess greinargerð um notkun fimm azólitarefna og eiturhrif
þeirra.
148