Bæjarins besta - 26.11.1997, Síða 1
Eiríkur Finnur
og Guðlaug
Bæjarins besta
Miðvikudagur 26. nóvember 1997 47 . tbl. 14. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Ísafjarðarbær
Mun sprengja
meirihlutann
„Ég er bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins, en ég greiði
atkvæði samkvæmt minni
sannfæringu og læt ekki skipa
mér fyrir verkum,“ sagði
Sigurður R. Ólafsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins í
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar,
þegar BB bar undir hann þá
spurningu hvort einhugur ríkti
meðal alþýðuflokksmanna
um húsnæðismál Grunnskóla
Ísafjarðar.
Sigurður sagði að meðal al-
þýðuflokksmanna væru sjálf-
sagt mismunandi sjónarmið
til húsnæðismálanna, eins og
hjá flokksmönnum annarra
flokka. Það breytti þó ekki
hans afstöðu.
„Ég mun sprengja meiri-
hlutann að gefnum ákveðnum
forsendum. Ég veit ekkert
hvað aðrir gera og legg þeim
ekki til leikreglur,“ sagði Sig-
urður, sem sagðist ekki liggja
á liði sínu ef til myndunar nýs
meirihluta kæmi. „Það er ver-
ið að vinna í fjárhagsáætlun
og því nauðsynlegt að hafa
starfhæfan meirihluta.“
Aðspurður hvaða leið hann
vildi fara í húsnæðismálum
GÍ sagði Sigurður: „Ég hef
ekki mótað mér afstöðu um
það. Við þurfum að taka á
þessum málum og mér sýnist
á öllu að í framtíðinni ættum
við að stefna á nýbyggingu.
Ég vil allt annað en að börnin
verði sett þarna niður í fjör-
una." Sigurður segist sann-
færður um að andstaða við
„Norðurtangalausnina“ hafi
aukist meðal bæjarbúa frekar
en hitt. „Ég vona að sem flestir
mæti á borgarafundinn og að
menn sjái þá hvað andstaðan
er mikil,“ sagði Sigurður m.a.
í samtali við BB.
Bolungarvík
Hagnaður hjá
Þorbirni hf
Rúmlega 58 milljóna króna
hagnaður varð af rekstri Þor-
bjarnar hf., fyrstu átta mánuði
þessa árs eftir að tekið hefur
verið tillit til söluhagnaðar
fyrirtækisins.
Velta fyrirtækisins á tíma-
bilinu nam rúmum 1,2 millj-
örðum króna og nam tap af
reglulegri starfsemi fyrir
skatta röskum 80 milljónum
króna. Uppgjörið nær til
reksturs Þorbjarnar til ágúst-
loka og og rekstur Bakka inni
í þeim tölum frá maí til ágúst-
loka.
Tapið sem var á rekstri hins
sameinaða félags skýrist fyrst
og fremst af miklu tapi á
rækjuvinnslu á Vestfjörðum
vegna verkfalls. Á móti kemur
hins vegar 112 milljóna króna
söluhagnaður og því var tæp-
lega 60 milljóna króna hagn-
aður af rekstrinum.
Hlutafjárútboð fyrirtækis-
ins hófst á mánudag, þar sem
seld verða bréf fyrir 30 millj-
ónir króna á genginu 7,57.
Íslandsbanki annast útboðið.