Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.11.1997, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 26.11.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður % 456 4560 o 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://www.snerpa.is/bb Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Blaðamaður: Magnús Hávarðarson Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. Leiðari Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ funda Leysa verður va sem hagkvæmas Í síðustu viku boðaði full- trúaráð sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ til fundar þar sem m.a. voru til umræðu hús- næðismál Grunnskóla Ísa- fjarðar. Eins og flestum er kunnugt hefur óeining ríkt meðal bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um leiðir til lausnar húsnæðisvandanum og kom sú óeining fram í máli manna á fundinum. Eftir talsverðar umræður sam- þykkti fundurinn svohljóð- andi tillögu: „Fundur fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Ísafjarðar- bæ, haldinn miðvikudaginn 19. nóvember 1997, leggur áherslu á að bæjarstjórn Ísa- fjarðar taki löngu tímabæra ákvörðun um varanlega lausn húsnæðismála Grunnskóla Ísafjarðar. Fulltrúaráðið telur að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hafi brugðist rétt við umræðu almennings, þegar hún sam- þykkti þann 18. september s.l., að láta fara fram hlutlausa úttekt á þeim kostum sem til umræðu hafa verið til úrbóta. Sú úttekt sem nú liggur fyrir í formi skýrslu vinnuhóps bæj- arstjórnar, leggur grunn að vel ígrundaðri ákvörðun bæjar- stjórnar og gefur bæjarfull- trúum möguleika á því að taka hlutlæga ákvörðun í þessu mikilvæga máli. Í ljósi þeirrar miklu áherslu sem sjálfstæðis- menn leggja á góðan skóla og ábyrga fjármálastjórn, þá sam- þykkir fundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísa- fjarðarbæ að vinna að fram- gangi þeirrar lausnar sem að mati skýrsluhöfunda er hag- kvæmasti kostur fyrir Ísa- fjarðarbæ.“ Tillöguna samþykktu 25 fulltrúar, en samkvæmt heim- ildum blaðsins voru þrír á móti, þau Jónas Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Kristmann Kristmannsson. En má þá álykta sem svo að bæjarfulltrúarnir Jónas og Kolbrún láti undan vilja af- gerandi meirihluta sjálfstæð- ismanna? Blaðið bar spurn- Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður skrifar um s Sautján sjóðir á Ves með tíu milljóna kr Í síðasta mánuði kom út skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með sjóðum og stofnunum sem starfa sam- kvæmt staðfestri skipulags- skrá, sbr. lög nr. 19/1988. Samkvæmt þeim lögum skal hver sá sem ábyrgð ber á sjóði eða stofnun senda ár hvert Ríkisendurskoðun reikning sjóðsins eða stofnunarinnar fyrir næstliðið ár ásamt skýr- slu um hvernig fé sjóðs eða stofnunar hefur verið ráðstaf- að á því ári. Ríkisendurskoðun ber að halda skrá yfir heildar- tekjur og gjöld, eignir og skuldir allra skráða sjóða og stofnana. Aðgangur að upp- lýsingum í skránni skal vera öllum frjáls og skal láta í té afrit af henni til þeirra sem eftir því leita. Þegar gildandi lög tóku gildi 1. janúar 1989 voru skráðir sjóðir og stofnanir 1168. í kjölfarið voru sjóðir bæði sameinaðir öðrum og lagðir niður, enda fjárhagur margra svo bágborinn að þeir gátu engan veginn sinnt hlut- verki sínu. Á næstu 7 árum voru 560 sjóðir lagðir niður, en á sama tíma voru skipu- lagsskrár fyrir 147 nýja sjóði og stofnanir staðfestar af dómsmálaráðherra. Á síðasta ári áttu 602 sjóðir að skila reikningum vegna ársins 1995 en aðeins 397 skiluðu inn ársreikningi. Heildareign þeirra nam 6,1 milljarði króna á móti voru skuldir 2,3 milljarðar króna. Eignir umfram skuldir voru því 3,8 milljarðar króna. Tekj- ur sjóðanna voru liðlega 1.724 milljónir króna. Elsti sjóðurinn er Reynis- legat, stofnað var á árinu 1662 og 64 sjóðir á skránni voru stofnaðir fyrir síðustu alda- mót. Til fróðleiks og gamans þá voru sautján sjóðir á Vest- fjörðum meðal þessara 397. Eign þeirra var samtals 10 Kristinn H. Gunnarsson. Ísafjarðarbær Uppsagnarfresti framlengt Ísafjarðarbær hefur framlengt uppsagnarfresti þeirra tuttugu kennara sem sagt hafa upp störfum við Grunn- skólann á Ísafirði, til 1. apríl 1998 Er þetta gert með vísan til 15. gr. laga nr. 72/1996 um rétt- indi og skyldur kennara og skólastjórnenda. Enginn kenn- aranna mun hafa dregið uppsögn sína til baka, en upp- sagnirnar áttu upphaflega að taka gildi 1. janúar n.k. Ísafjörður Sala jóladagatala hafin Lionklúbbur Ísafjarðar hefur hafið árlega sölu sælgætis- jóladagatala fyrir börn. Lionsmenn vilja stuðla að góðri tannhirðu meðal ungu kynslóðarinnar og því fylgir tannkremstúpa hverju dagatali. Verslunareigendur á Ísafirði annast sölu jóladagatalanna fyrir Lionsklúbbinn að þessu sinni sem undanfarin ár og eru Ísfirðingar og nágrannar hvattir til að leggja málefninu lið. Ísafjörður Fullveldisfagnaður GÍ Fullveldisfagnaður Grunnskóla Ísafjarðar, aðalhátíð elstu nemenda skólans, verður haldinn föstudaginn 28. nóvember á sal skólans. Öllum nágrannaskólum verður boðið á leik- sýningu auk þess sem söngur mun hljóma og lesnar verða upp glósur. Á eftir verður dansleikur fyrir nemendur og gera forsvarsmenn hátíðarinnar fyrir að ballið verði það flottasta um áraraðir, eins og segir í frétt frá skólanum. Spilin á borðið Staða bæjarstjórnar Ísa- fjarðarbæjar í grunnskóla- málinu verður erfiðari og vandræðalegri með degi hverjum. Af heimildum blaðsins verður ekki annað ráðið en að málið sé í pattstöðu innan meirihlutans; þrír gegn þremur. Ekki er annað vitað en að minnihluti bæjarstjórnarinnar sé upp til hópa andvígur kaupum bæjarsjóðs á fyrrum fiskvinnslu- og frystihúsi Norðurtanga undir skóla. Mikill kurr er meðal bæjarbúa vegna málsins, ekki síst vegna vinnubragða fámennishópsins innan bæjarstjórnarmeirihlutans, sem eftir þeim fáu teiknum sem á lofti hafa sést, vildi knýja málið í gegn á nokkurrar fjárhagslegrar úttektar. Með öðrum orðum, almenningi kæmi það hreint út sagt ekkert við þótt bæjarstjórnin keypti eitt stykki fiskvinnslu- og frystihús fyrir grunn- skólann. Viðbrögð þeirra bæjarfulltrúa sem dregið hafa í efa áreiðanleika kostnaðaráætlana, sem seinna komu fram varðandi kaup og breytingar á fiskvinnsluhúsunum við Sundstræti, er skiljanlegur. Niðurstöðurnar minna á uppboð með öfugum formerkjum. Lægri tölur með hverjum nýjum útreikningi. Reyndir bæjarfulltrúar gera sér ljóst að ábyrgðin á útreikningunum er ekki pappírsins virði. Enda engin ábyrgð í boði. Þegar upp er staðið bera bæjarfulltrúarnir einir ábyrgðina. Henni verður ekki velt yfir á reiknimeistara eða embættismenn, sem að málinu kunna að hafa komið. Tveir og hálfur mánuður eru liðnir síðan ágreining- urinn um kaupin á Norðurtangahúsunum kom upp á borgarafundi á Ísafirði. Þá strax var ljóst að bæjarbúar sættu sig ekki við vinnubrögðin, töldu málið illa undirbúið og ekkert kynnt meðal bæjarbúa. Það er enn í sama farvegi. Skilin innan bæjarstjórnarmeirihlutans eru þó skarpari. Á morgun er fyrirhugaður annar borgarafundur. Á þeim fundi verður að ganga hreint til verks. Leggja öll spil á borðið. Almenningur í bænum sættir sig ekki við annað. Í þessu máli verður að horfa til framtíðar. Bæjarstjórnarmeirihlutinn hangir á bláþræði. Hvort sá þráður slitnar eða ekki skal engu um spáð. Einn bæjarstjórnarmeirihluti til eða frá skiptir ekki öllu máli. Bæjarstjórnir koma og fara. Ákvörðun bæjarstjórnar í þessu máli verður hins vegar aðeins ein og henni verður ekki breytt á hvorn veginn sem veltur. Þess vegna skiptir sú ákvörðun meira máli en lífdagar eins bæjarstjórnarmeirihluta, sem hvort sem er telst til hins forgengilega. s.h.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.