Bæjarins besta - 26.11.1997, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 5
ÍSAFJARÐARBÆR
AUGLÝSING UM DEILISKIPULAG Á
TUNGUSKEIÐI Í SKUTULSFIRÐI
Samkvæmt ákvæðum í gr. 4.4.1. í
skipulagsreglugerð nr. 318/1985, er
hér með lýst eftir athugasemdum við
tillögu að deiliskipulagi á Tunguskeiði
í Skutulsfirði.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag á
Tunguskeiði í landi Neðri-Tungu við
verslunarmiðstöðina Ljónið. Skipu-
lagstillagan er til sýnis í Stjórnsýslu-
húsinu á Ísafirði frá og með 27. nóv.
nk., til 25. des. nk. Á sama tíma er til
sýnis breyting á aðalskipulagi sama
svæðis. Athugasemdum skal skila
skriflega til tæknideildar Ísafjarðar-
bæjar fyrir 8. jan. nk.
Bæjarverkfræðingur.
Húsafriðunarsjóður
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir
umsóknum til Húsafriðunarsjóðs, sbr. ákvæði
í þjóðminjalögum nr. 88/1989, sbr. lög nr.
43/1991 og 98/1994 og reglugerð um
Húsafriðunarsjóð nr. 479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostn-
aðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áætlana-
gerðar og tæknilegrar ráðgjafar og til fram-
kvæmda vegna viðhalds og endurbóta á
friðuðum húsum og húsum sem hafa menn-
ingarsögulegt og listrænt gildi.
- byggingasögulegra rannsókna og útgáfu
þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á
að leita eftir áliti Húsafriðunarnefndar ríkisins
og sækja um styrk áður en framkvæmdir
hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. feb-
rúar 1998 til Húsafriðunarnefndar ríkisins,
Þjóðminjasafni Íslands, Suðurgötu 41, 101
Reykjavík, á umsóknareyðublöðum sem þar
fást.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 562
2475 milli kl. 10:30 og 12:00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Húsafriðunarnefnd
ríkisins
Tilboð óskast í
neðangreinda eign
10935 Urðarvegur 78, Ísafirði, 2ja herbergja íbúð á
3ju hæð fyrir miðju. Stærð íbúðar er 73,2m². Bruna-
bótamat er kr. 6.283.000.- og fasteignamat er kr.
3.614.000.
Íbúðin verður til sýnis í samráði við Margréti Högnadóttur
hjá Vegagerðinni á Ísafirði í síma 456 3911.
Nánari upplýsingar um ofangreinda eign eru gefnar hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 105 Reykjavík og hjá ofan-
greindum aðila. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sömu
stöðum. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11:00
þann 10. desember 1997 þar sem þau verða opnuð í við-
urvist bjóðenda er þess óska.
Fjölmenni var viðstatt formlega opnun fyrsta áfanga Edinborgarhússins, þeirra á meðal Guðrún Á. Stefánsdóttir,
bæjarfulltrúi, eiginmaður hennar Tryggvi Sigtryggsson, Páll Loftsson, stjórnarmaður í Edinboargarhúsinu og Páll
Halldórsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
í notkun
nokkur lög. Þá skemmti Villi
Valli og nokkrir viðstaddra
með leik og söng.
,,Framkvæmdir við fyrsta
áfanga hófust fyrir þremur
árum og eftir eru þrír áfangar.
Næsti áfangi er salurinn stóri
sem kemur til með að geyma
fjölnota sal undir leiklistar-
og tónlistarstarfsemi og raun-
ar hvað sem er. Framkvæmdir
við það verk hefjast á næsta
ári en hvenær því lýkur ræðst
af fjármagninu sem við
komum til með að hafa milli
handanna. Okkar vonir standa
til að hægt verði að ljúka verk-
inu á tveimur árum og að hús-
ið verði fullbúið innan fimm
ára,” sagði Jón Sigurpálsson í
Gestir á mannfagnaðinum skemmtu sér vel eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
samtali við blaðið. Hann sagði
að vel hefði gengið að fá fjár-
magn til verksins sem og
starfskrafta í sjálfboðavinnu
og vonaðist hann til að svo
yrði áfram.
Forsvarsmenn Flugfélags
Íslands voru viðstaddir opn-
unina á föstudag, en þeir hafa
að undanförnu átt í viðræðum
við stjórn Edinborgarhússins
um að fá leigða aðstöðu í hús-
inu undir söluskrifstofu fé-
lagsins á Ísafirði. ,,Við von-
umst til að niðurstaða í þessu
máli liggi fyrir í þessari viku.
Ef af þessu verður mun félagið
opna skrifstofu í húsinu fyrir
næsta sumar. Þá um leið
verður söluskrifstofa Flug-
leiða á Ísafirði lög niður, að
sögn Jóns. Meðfylgjandi
myndir voru teknar á mann-
fagnaðinum á föstudag.
Húsnæðismál Grunnskóla Ísafjarðar
Boðað hefur verið til al-
menns borgarafundar í Stjórn-
sýsluhúsinu á Ísafirði í kvöld
um húnæðismál Grunnskóla
Ísafjarðar. Á fundinum verður
skýrsla VSÓ ráðgjafar um
húsnæðismálin kynnt og
væntanlega verður ágreining-
ur bæjarfulltrúa um leiðir til
lausnar húsnæðisvandanum
til umræðu.
Áætluðum auka bæjar-
stjórnarfundi sem halda átti á
morgun hefur verið aflýst, en
á honum átti að taka húsnæð-
ismálin til afgreiðslu. Sam-
kvæmt óskum frá bæjarfull-
trúum sem vilja fá meira svig-
rúm til að kynna sér skýrslu
VSÓ, kemur málið til af-
greiðslu á bæjarstjórnarfundi
sem haldinn verður á fimmtu-
dag í næstu viku.
Borgarafundur í í kvöld
Villi Valli og Hallfreð Engilbertsson skemmtu gestum með
hressu spili.
Hressir Vonarbræður tóku lagið og skemmtu sér og gestum
jafnmikið.
Þær Sigríður Steinunn Axelsdóttir og Jónína Einarsdóttir
létu sig að sjálfsögðu ekki vanta við opnunina.