Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.11.1997, Side 7

Bæjarins besta - 26.11.1997, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 7 ÍSAFJARÐARBÆR Af bæjar- málum Á fundi umhverfis- nefndar Ísafjarðarbæjar sem haldinn var fyrir stuttu var tekið fyrir erindi Trygg- va Tryggvasonar á Ísafirði, um heimild til að breyta hluta 2. hæðar húseignar- innar að Aðalstræti 24, á Ísafirði, úr skrifstofuhús- næði í íbúðir, samkvæmt innlögðum uppdrætti, gerðum af Kjartani Jóns- syni frá Arkitektastofunni Austurvelli. Umhverfis- nefnd getur fallist á breytta notkun húsnæðisins í íbúð- arhúsnæði, en þó þannig að það uppfylli ákvæði byggingarreglugerðar. Á sama fundi var lagt fram erindi Magnúsar Pálma Örnólfssonar, f.h. Rauðsíðu ehf., varðandi förgun sorps Rauðsíðu ehf., í Ísafjarðarbæ og Bol- fisks ehf., í Bolungarvík. Í erindinu er þess farið á leit að öllu sorpi sem heyrir undir Rauðsíðu, þ.m.t. um- búðir sem Rauðsíða sendir til Bolungarvíkur af hag- kvæmnisástæðum eins og segir í bréfinu, sé fargað undir nafni Rauðsíðu og á sömu kjörum og önnur fyr- irtæki í Ísafjarðarbæ borga fyrir slíka þjónustu. Um- hverfisnefnd félst ekki á rök bréfritara og hafnaði því erindinu. Á fundi menningar- nefndar var tekið fyrir mál- efni lystigarðsins Skrúðar í Dýrafirði. ,,Menningar- nefnd telur að garðurinn sé slíkt menningarverð- mæti að hann megi ekki grotna niður, né búsmali geti valsað um hann að vild eins og nú er. Mikil vinna hefur verið lögð í endur- gerð garðsins í sína upp- runalegu mynd sem nú er nýlokið og ekki má koma til þess að sú vinna fari forgörðum,” eins og segir í fundargerð nefndarinnar. Þar segir einnig: ,,Menn- ingarnefnd er ekki kunnugt um eignarhald á Skrúði né hver ber ábyrgð á varð- veislu þessara menningar- verðmæta, hins vegar telur hún sér skylt að benda á ástand garðsins sem er óviðundandi. Menningar- nefnd hvetur bæjarráð til þess að hlutast til um þessi mál til þess að forða garð- inum frá eyðileggingu.” aði um húsnæðisvanda GÍ andann á stan hátt inguna undir Guðmund Mari- nósson, formann fulltrúaráðs- ins. „Það eru alveg skýr skila- boð til bæjarfulltrúa frá full- trúaráðsfundinum. Sjálf- stæðisflokkurinn er lýðræðis- flokkur þannig að minni- hlutinn getur aldrei kúgað meirihlutann. Fulltrúum sem flokkurinn hefur boðið fram, er ætlað að fara að vilja meirihlutans og fulltrúaráðið, sem samþykkti tillöguna með svo afgerandi hætti, er nú einu sinni æðsta ráð Sjálfstæðis- flokksins á Ísafirði. Ef menn eru í pólitík á annað borð, þá er alveg ljóst að þeir verða að hlýta lýðræðislegum leikregl- um,“ sagði Guðmundur. Í næstu viku verður haldinn bæjarstjórnarfundur um hús- næðismál grunnskólans. Bú- ist er við að þar verði tekin endanleg ákvörðun í málinu. Húsnæði Hraðfrystihússins Norðurtanga er talið hagkvæmasti kosturinn til að leysa húsnæðisvanda grunnskólans. skýrslu Ríkisendurskoðunar stfjörðum róna eign milljónir króna og tekjurnar 1.752 þús kr. Sjóðirnir sautján eru: 1. Sjóður fermingarbarna í Sauðlauksdal, stofnaður árið 1923, með eign upp á kr. 152.906 og tekjur upp á kr. 10.878. 2. Líknarsjóður Ögur- hrepps, stofnaður árið 1927, með eign upp á kr. 178.237 og tekjur upp á kr. 15.734. 3. Sjúkrasjóður Bolungar- víkur, stofnaður árið 1934, með eign upp á kr. 190.228 og tekjur upp á kr. 8.927. 4. Minningarsjóður Guð- nýjar M. Kristjánsdóttur og Gísla G á Þingeyri, stofnaður árið 1943, með eign upp á kr. 150.230 og tekjur upp á kr. 6.515. 5. Minningarsjóður Önnu Ingvarsdóttir, Ísafirði, stofn- aður árið 1944, með eign upp á kr. 985.530 og tekjur upp á kr. 83.574. 6. Minningarsjóður Bjarn- eyjar J. Friðriksdóttur og Jóhanns Jóh., Þingeyri, stofn- aður árið 1954, með eign upp á kr. 113.436 og tekjur upp á kr. 4.688. 7. Minningarsjóður Sigurð- ar Stefánssonar og Þórunnar Bjarnadóttur í Vigur, stofn- aður árið 1957, með eign upp á kr. 239.057 og tekjur upp á kr. 22.173. 8. Minningarsjóður Fríðu Guðmundsdóttur, Árnes- hreppi, stofnaður árið 1962, með eign upp á kr. 124.628 og tekjur upp á kr. 7.499. 9. Minningarsjóður Jóns Þ. Ólafssonar og Rögnvaldar Ólafssonar, Ísafirði, stofnaður árið 1963, með eign upp á kr. 16.774 og tekjur upp á kr. 11.735. 10. Menningarsjóður Súða- víkurhrepps, stofnaður árið 1965, með eign upp á kr. 256.214 og tekjur upp á kr. 4.757. 11. Utanfararsjóður sjúkra- húss Strandasýslu, stofnaður árið 1969, með eign upp á kr. 230.100 og tekjur upp á kr. 26.220. 12. Minningarsjóður Páls Sigurðssonar, Bolungarvík, stofnaður árið 1969, með eign upp á kr. 370.867 og tekjur upp á kr. 1.030.000. 13. Kirkjubyggingarsjóður Bolungarvíkur, stofnaður árið 1970, með eign upp á kr. 1.806.180 og tekjur upp á kr. 101.727. 14. Sjóður til stuðnings Menntaskólanum á Ísafirði, stofnaður árið 1970, með eign upp á kr. 1.946.135 og tekjur upp á kr. 206.857. 15. Styrktarsjóður lamaðra og fatlaðra í Strandasýslu, stofnaður árið 1977, með eign upp á kr. 1.168.806 og tekjur upp á kr. 75.918. 16. Styrktarsjóður Ingi- bjargar Sumarliðadóttur og Karls G., Króksfjarðarnesi, stofnaður árið 1978, með eign upp á kr. 375.333 og tekjur upp á kr. 21.221. 17. Minningarsjóður Bjarna Kristjánssonar, Rauðasands- hreppi, stofnaður árið 1983, með eign upp á kr. 1.709.814 og tekjur upp á kr. 113.915. Samtals eign sjóðanna saut- ján nemur kr. 10.014.475 og tekjurnar kr. 1.752.338. Kristinn H. Gunnarsson. Fiskiðjan Freyja hf., á Suðureyri Grárófa leigir fiskvinnsl- una til þriggja mánaða Grárófa ehf. er nýtt fyrirtæki á Suðureyri sem tekið hefur á leigu fiskvinnslu Fiskiðjunnar Freyju, en eins og kunnugt er leitar stjórn Freyju nú nauða- samninga við kröfu- hafa. Eigendur Grárófu eru Guðni Einarsson, sem jafnframt er framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Elvar Einarsson, Ævar Einars- son og Kristinn og Óðinn Gestssynir. Leigusamn- ingurinn gildir til loka janúarmánaðar, en Grárófa yfirtekur starfs- samninga 50 manna starfsliðs Freyju, að undanskildum samning- um framkvæmdastjóra og bókara. Að sögn Óðins Gests- sonar framkvæmda- stjóra Freyju, rennur frestur til kröfulýsinga á hendur fyrirtækinu út 11. desember, en hann á von á að þær skili sér flestar fyrir vikulok. Stjórn Freyju hyggst bjóða kröfu- höfum greiðslu 15% skulda og segist Óðinn vera hæfilega bjart- sýnn á að það verði samþykkt. Fiskiðjan Freyja á Suðureyri. Áskrifendur! Vinsamlegast greiðið áskrift- argjöldin sem fyrst.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.