Bæjarins besta - 26.11.1997, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
Eiríkur Finnu
Að Grundarstíg 2 á Flateyri búa hjónin Eiríkur
Finnur Greipsson og Guðlaug Auðunsdóttir ásamt
tveimur yngri sonum sínum, þeim Grétari Erni
sem er 16 ára og Smára Snæ sem er 9 ára. Elsti
sonurinn er Auðunn Gunnar, liðlega tvítugur, og
stundar nám í Reykjavík. Eiríkur Finnur stjórnar
Sparisjóði Önundarfjarðar en Guðlaug vinnur á
Pósthúsinu á Flateyri. Rúmt ár er frá því að
Eiríkur tók við starfi sparisjóðsstjóra á Flateyri en
áður var hann framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga í eitt og hálft ár.
Undirritaður heimsótti þau Guðlaugu og Eirík
Finn og syni þeirra á sunnudaginn um fyrri helgi.
Þau eru nú að mestu búin að koma sér fyrir í
húsinu niðri á eyrinni sem var æskuheimili Eiríks
Finns, en í snjóflóðinu mikla á Flateyri fyrir
tveimur árum misstu þau heimili sitt og húsbúnað
og persónulega muni en björguðust sjálf heil á
húfi úr rústunum með þeim hætti að nefna má
kraftaverk.
Eins og grónir Vestfirðingar vita er Eiríkur
Finnur fæddur og uppalinn á Flateyri og foreldrar
hans líka og ættir hans eru úr Önundarfirði og
Súgandafirði. Faðir hans lést í fyrra en móðir hans
er á lífi. Guðlaug er hins vegar Reykvíkingur.
Faðir hennar er frá Vestmannaeyjum en foreldrar
hennar kynntust í Reykjavík og bjuggu þar allan
sinn búskap, fyrst á Klapparstígnum en síðan inni
í Hlíðum. Móðir Guðlaugar er að hálfu leyti
Þjóðverji. Afi hennar hét Walter Kratsch og var
einn þeirra Þjóðverja á Íslandi sem Bretar tóku til
fanga á hernámsárunum og fluttu til eyjarinnar
Manar. Þar var hann í haldi í nokkur ár en síðan
fluttur til Þýskalands í fangaskiptum. Eftir stríð
tókst honum að smygla sér aftur til Íslands með
togara og bjó hérlendis til æviloka.
En hvort ætli Guðlaug hafi
náð í Eirík Finn eða Eiríkur
Finnur í Guðlaugu?
Eiríkur: „Það er alveg á
tæru. Hún náði í mig og ég er
mjög stoltur af því. Það var
kunningsskapur milli bróður
míns og fjölskyldu hennar og
ég kynntist henni þegar hún
var barnapía hjá bróður mín-
um. Upp úr því skapaðist sam-
band sem leiddi til þess að
við trúlofuðum okkur 1976
og eignuðumst strák. Við gift-
um okkur svo tveimur árum
seinna og eigum nú þrjá
stráka.“
Teklúbburinn
og fleiri félög
Boðið er upp á kaffi og
undirritaður getur ekki á sér
setið að segja við Eirík Finn:
– Nú ert þú að drekka kaffi.
Við sérstakar aðstæður drekk-
ur þú stundum te...
Eiríkur: „Reyndar drekkum
við hjónin yfirleitt te í hádeg-
inu, en þar fyrir utan á ég
einskonar helgistundir við te-
drykkju. Það sem þú átt við er
mjög merkilegur og skemmti-
legur félagsskapur sem heitir
Teklúbburinn, stofnaður árið
1995 þegar ég var hjá Fjórð-
ungssambandinu. Stundum
var nauðsynlegt að skapa sér
dálitla frístund frá símanum
og þá var gott að fara á fund í
Teklúbbnum á miðjum degi. Í
honum eru þrír félagar og til
þess að fá inngöngu í klúbbinn
verða menn að vera einhver
af þessum þremur. Hinir tveir
eru Kristján Haraldsson orku-
bússtjóri og Ólafur Helgi
Kjartansson sýslumaður. Við
hittumst óreglulega á Hótel
Ísafirði og förum yfir stöðu
mála í samfélaginu, svo og
persónuleg vandamál okkar
sjálfra og annarra. Raunar er
okkur ekkert mannlegt óvið-
komandi og ekkert sem ekki
má taka fyrir á fundum. Ég
má að vísu ekki segja mikið
frá þessum klúbbi því að þetta
er hálfgerður leynifélags-
skapur. Ekki eru ritaðar fund-
argerðir og fullur trúnaður um
það sem þar fer fram. Þó má
geta þess, að á fundum má
ekki drekka neitt annað en te.
Ekki eru haldnar árshátíðir.
Félagsgjöld eru engin en sá
sem er fyrstur til að taka upp
budduna hverju sinni borgar
teið fyrir alla fundarmenn.“
– Kannski alltaf sá sami?
Eru menn ekki misfljótir að
bregða buddum líkt og
skammbyssum?
„Ja, það er nú einn sem er
yfirleitt fljótastur. En við
segjum ekkert hver það er.“
– Einhverjir helgisiðir í
klúbbnum aðrir en tedrykkj-
an?
„Vissulega eru helgisiðir í
Teklúbbnum, en þeir eru svo
leynilegir að ég má ekkert
greina frá þeim. Þetta er góður
félagsskapur.“
– En í hvaða félagsskap ert
þú, Guðlaug, formlegum eða
óformlegum, leynilegum eða
opinberum?
„Ég er í Kiwanisklúbbnum
Þorfinni hérna á Flateyri,
Slysavarnafélaginu og stjórn
íþróttafélagsins. Ekki í neinu
leynifélagi.“
Eiríkur: „Það er enginn
skortur á félögum hérna.
Erfiðara að verjast því að vera
í félögum heldur en hitt.“
Vagninn
magnaður
– Hvað voruð þið að gera í
gærkvöldi?
Eiríkur: „Við fjölmenntum
ásamt ýmsum vinum okkar á
styrktarkvöld fyrir Hallbjörn
Hjartarson kántríkóng, sem
haldið var hérna í Vagninum.
Hann var þar sjálfur og söng
nokkur lög. Vagninn er lítill
staður og þar næst alltaf upp
magnað fjör. Í árdaga Vagns-
ins undir stjórn Guðbjarts
Jónssonar fóru þar af stað
ýmsir merkir tónlistarmenn,
þar á meðal KK, og þangað
hafa hann og fleiri komið til
að halda útgáfutónleika. Ég
hef aldrei komið í Vagninn án
þess að þar hafi verið verulega
gott fjör og skemmtileg fólk,
og hef ég þó komið þar oft!“
Ekki fýlugjarn maður
– Er ekki bara málið að þér
sjálfum fylgir alltaf fjör? Þú
ert að vísu hávirðulegur mað-
ur, sparisjóðsstjóri og áður
oddviti á Flateyri og fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins, en oft líturðu miklu
frekar út eins og prakkari...
„Þakka þér fyrir. Ég vildi
gjarna að mér væri lýst svona!
Ég er fremur glaðsinna og hef
gaman af því að skemmta mér.
Þó að ég segi sjálfur frá, þá á
ég fremur auðvelt með að hafa
gaman af hlutunum.“
– Varstu uppátektasamur
krakki?
„Nei, ég held að ég hafi
verið mikill mömmustrákur,
ef ég mætti nota það orð.
Vissulega tók ég þátt í prakk-
arastrikum, en ég var áhrifa-
gjarn krakki og átti yfirleitt
ekki sjálfur hugmyndirnar að
prakkarastrikunum.“
– En er hann kannski prakk-
ari á seinni árum?
Guðlaug: „Nei, hann er ekki
neinn prakkari, en hann er
sannarlega ekki fýlugjarn
maður!“
Áskrifandi að Neistanum
og Stéttabaráttunni
– Nú ert þú hættur í póli-
tísku vafstri, eftir að þú réðst
til Fjórðungssambandsins og
síðan að sparisjóðnum....
„Ég hætti í sjálfri sveitar-
stjórnarpólitíkinni, en ég hætti
örugglega seint í pólitík. Ég
er einfaldlega sú manngerð,
að ég á erfitt með að taka ekki
afstöðu til mála. Ég hef lengi
fylgt Sjálfstæðisflokknum og
sé ekki fram á að breyta því
mikið á næstunni. Á mennta-
skólaárum í Reykjavík var ég
hins vegar mjög vinstrisinn-
aður. Jafnvel svo vinstrisinn-
aður að ég rakst hvergi í
neinum hefðbundnum stjórn-
málaflokki. Ég var áskrifandi
að bæði Neistanum og Stétta-
baráttunni. En það er dálítið
merkileg saga hvernig ég
gerðist sjálfstæðismaður. Eftir
að við Gulla komum hingað
vestur á sínum tíma, þá var
Einar Oddur orðinn leiður á
því að vera formaður Sjál-
fstæðisfélags Önundarfjarðar,
en hann hafði gegnt því
embætti mjög lengi. Það var
útlit fyrir að við hjónin mynd-
um setjast að hér á Flateyri,
og Einar kallaði mig á sinn
fund þar sem hann og Kristján
J. Jóhannesson þáverandi
sveitarstjóri tilkynntu mér að
ég ætti að koma á aðalfund
Sjálfstæðisfélagsins þá um
kvöldið og þar yrði ég kjörinn
formaður...“
– Lýðræðislegri kosningu
væntanlega...
„Já, þetta var allt ákaflega
lýðræðislegt, að sjálfsögðu!“
Talinn öruggur
flokksmaður
– Varstu kannski ekki neitt
við Sjálfstæðisflokkinn riðinn
fyrir þann tíma?
„Jú, ég hafði áður verið
skrifaður inn í Félag ungra
sjálfstæðismanna, en reyndar
án þess að óska eftir því
sjálfur, eins og kannski var
algengt á þeim árum...“
– Og er kannski enn...
„...og menn álitu mig nokk-
uð öruggan flokksmann þegar
þarna var komið sögu. Faðir
minn var mikill sjálfstæðis-
maður og menn töldu að ég
myndi enda í sömu gröf og
hann í pólitíkinni. Ég var svo
formaður félagsins ein sextán
ár og hætti fyrir tveimur árum.
Þá var ég búinn að fá fyllilega
minn skammt, líkt og Einar
Oddur á undan mér.“
– Hvern léstu þá kjósa
„lýðræðislegri kosningu“ í
þinn stað?
„Það bar nú ekki að á sama
hátt og þegar ég tók við.
Núverandi formaður er Hinrik
Kristjánsson. Annars er þetta
ekki mjög íþyngjandi starf að
vera formaður Sjálfstæðis-
félags Önundarfjarðar. Samt
hafði það eitt fram yfir mörg
önnur pólitísk félög hér á
svæðinu: Það hélt þó fundi og
fjallaði reglulega um sveitar-
stjórnarmálin og ég held að
styrkur sjálfstæðismanna hér
á Flateyri hafi að talsverðu
leyti byggst á því hversu
öflugt starfið var innan félags-
ins, þrátt fyrir allt. Þar var
unnið fyrir opnum tjöldum og
fólk átti möguleika á því að
hafa áhrif á framgang mála
innan félagsins. Í fyrstu sveit-
arstjórnarkosningunum sem
ég tók þátt í, árið 1982, þá
sameinuðust vinstri menn á
móti okkur. Ég held að ég hafi
aldrei lifað eins æsispennandi
augnablik eins og við talning-
una í þeim kosningum. Þegar
talningu var að ljúka og aðeins
eitt utankjörfundaratkvæði
ótalið vorum við með 137 at-
kvæði en vinstri menn með
136. Þeir höfðu stöðugt sótt á
meðan utankjörfundarat-
kvæðin voru talin. En við
áttum síðasta atkvæðið og
höfðum því sigur með tveggja
atkvæða mun. Það var ólýsan-
leg tilfinning þegar síðasta
atkvæðið var í höfn, eins
konar spennufall, rétt eins og
einhver gæsahúðarstraumur
færi um líkamann. Við töpuð-
um svo kosningunum fjórum
árum seinna en unnum síðan
tvennar næstu kosningar þar
á eftir.“
Oddvitastarfið, Magnea
og Ægir Hafberg
– Hvað varstu lengi oddviti
hér á Flateyri?
„Samtals var ég oddviti í
níu ár. Ég hætti þegar ég fór til
Fjórðungssambandsins sum-
arið 1995 en Magnea Guð-
mundsdóttir tók við. Ég held
að margir hafi ekki gert sér
grein fyrir því, að þegar
snjóflóðið féll í október var
Magnea einungis búin að
gegna starfi oddvita frá lokum
júlí, eða tæpa þrjá mánuði. Í
ljósi þess finnst mér ennþá
merkilegra hvað hún stóð sig
óskaplega vel í þeim hörm-
ungum öllum og því sem á
eftir fylgdi og allri þeirri vinnu
sem var í kringum það. Hún
stóð sig vissulega með mikl-
um glæsibrag. En það var
sannarlega ekki vegna þess
að hún væri með svo mikla
reynslu í sveitarstjórnarmál-
um. Í fjögur ár var ég í
stjórnarandstöðu hér í hrepps-
nefndinni, á meðan Ægir
Hafberg fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri var oddviti.
– Forveri þinn í starfi...
„Já. Samstarf okkar Ægis
gekk alla tíð ákaflega vel. Við
vorum saman í hreppsnefnd í
átta ár. Við áttum til að rífast
alveg heiftarlega, börðum í
borðið og tókum miklar snerr-
ur, en við fórum aldrei af fundi
öðruvísi en vinir og það held
ég að hafi verið mikill styrkur
fyrir starfið í sveitarstjórninni.
Og svo fór að lokum að hann
valdi mig sem eftirmann sinn
í sparisjóðnum.“
Heldurðu
það, Gulla?
– Áttu annars nokkra óvini?
„Ég held bara ekki. Held-
urðu það, Gulla? Ég á mjög
gott með að lynda við fólk og
starfa með öðrum og ég held
að það sé ein af sterkari
hliðum mínum. Enda hef ég
ofboðslega gaman af því að
vinna með fólki. Félagsstarf
er svo gefandi, vegna þess að
þú kynnist svo mörgum. Fólk-
ið mitt tekur eftir því, þegar
við erum á labbi í Reykjavík
eða í rauninni hvar sem er,
hvað ég þekki feykilega mar-
ga. Konunni minni finnst það
stundum dálítið óþægilegt,
vegna þess að henni finnst að
hún eigi þá að þekkja alla
líka...“
Guðlaug: „Ég er svo
ómannglögg.“
Eiríkur: „Ég hef kynnst
mjög mörgum í gegnum sveit-
arstjórnarmálin og orkumálin
og margt fleira. Það sem eftir
situr er kunningsskapurinn og
vináttan.“
– Ert þú pólitísk?
Guðlaug: „Ég er nú ekki
stórlega pólitísk.“
Hver er þessi Guðlaug
Auðunsdóttir?
Eiríkur: „Ég skal segja þér
eitt, Hlynur minn, að Gulla
vissi ekki einu sinni að hún