Bæjarins besta - 26.11.1997, Page 16
OR
OB
LU
sok
ka
bu
xu
r
OR
OB
LU
sok
ka
bu
xu
rBæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Niðurstaða héraðsdóms vegna brots á lögum um virðisaukaskatt
Dæmdur til að greiða 9 millj-
ónir króna í sekt til ríkissjóðs
Héraðsdómur Vestfjarða
hefur dæmt 43 ára karlmann á
Ísafirði, Magnús Hauksson, í
3ja mánaða skilorðsbundið
fangelsi og til greiðslu 9 millj-
óna króna sektar til ríkissjóðs
fyrir brot á lögum um virðis-
aukaskatt, með því að hafa
eigi í samræmi við það sem
lög áskilja, staðið innheimtu-
manni ríkissjóðs skil á virðis-
aukaskatti sem hann hafði
innheimt á árunum 1994 og
1995, samtals að fjárhæð kr.
8.908.689. Greiði ákærði ekki
framangreinda sekt til ríkis-
sjóðs innan fjögurra vikna frá
dómsbirtingu, skal hann sæta
fangelsi í tólf mánuði. Auk
þessa var ákærði dæmdur til
að greiða allan sakarkostnað,
þar með talin 80 þúsund króna
málsvarnarlaun skipaðs verj-
anda síns.
Í dóminum segir: ,,Með af-
dráttarlausri játningu ákærða
fyrir dómi, sem er í samræmi
við framburð hans hjá lögreg-
lu og önnur gögn málsins, er
framangreind háttsemi sönn-
uð.
Af hálfu ákærða er þess
krafist, að hann verði dæmdur
til vægustu refsingar, sem lög
frekast leyfa og að hún verði
eftir atvikum skilorðsbundin
með öllu eða að hluta, óháð
því hvort um refsivistar- eða
sektardóm verði að ræða. Þá
er krafist hæfilegra málsvarn-
arlauna skipuðum verjanda til
handa. Er af hálfu ákærða
vísað til þess, að hann hefur
gengist greiðlega við brotum
sínum og ekki hagnast per-
sónulega á þeim. Þá er bent á
persónulegar aðstæður ákær-
ða, þar á meðal fjölskyldu- og
heimilishagi, en ákærði er
kvæntur, þriggja barna faðir
og býr nú í leiguhúsnæði eftir
að bú hans var tekið til gjald-
þrotaskipta 21. febrúar 1996,
en í kjölfar þess missti ákærði
forræði yfir húseign fjölskyld-
unnar á Ísafirði. Loks er vakin
athygli á framlagðri greiðslu-
kvittun frá 29. desember 1995,
en samkvæmt henni greiddi
ákærði þá krónur 3.700.000
inn á skuld sína við inn-
heimtumann ríkissjóðs og lét
þess sérstaklega getið, að
greiðslan skyldi ganga upp í
virðisaukaskattsskuld sína við
innheimtumann. Greiðslunni
hafi hins vegar einhverra hluta
vegna verið ráðstafað til lækk-
unar á skuld ákærða vegna
opinberra gjalda utan stað-
greiðslu. Með nefndri greiðslu
og öðrum innborgunum á
árinu 1995, samtals að fjár-
hæð krónur 16.500.000, hafi
ákærði engu að síður sýnt
ótvíræðan greiðsluvilja í
verki, sem beri að taka tillit til
við ákvörðun refsingar.”
Við meðferð málsins fyrir
dómi féllst ákæruvaldið á þá
skoðun skipaðs verjanda
ákærða, Jóns Sigfúsar Sigur-
jónssonar, að við ákvörðun
refsingar bæri að horfa til
greiðslu ákærða á 3.700.000
krónum, 29. desember 1995
og líta á hana sem innborgun
á uppsafnaða virðisauka-
skattsskuld, þó þannig að til
lækkunar á þeirri skattskuld,
sem myndast hafi á árinu 1994
og aldrei næmi hærri fjárhæð
en krónum 2.000.000 af höf-
uðstól. Fallist var á þetta af
hálfu dómsins og tekið tillit
til þess við ákvörðun refsing-
ar.
Dóminn kvað upp Ólafur
Kristinsson, fulltrúi héraðs-
dómara.
Íslandsmót drengja í körfuknattleik sem halda átti á Ísafirði
Foreldrar lögðust gegn
keppnisferð til Ísafjarðar
Um helgina átti að fara fram
á Ísafirði Íslandsmót 12-13
ára drengja í c-riðli í körfu-
bolta. Ísfirðingar stóðu uppi
sem sigurvegarar í riðlinum
og færast upp í b-riðil og það
án þess að spila einn einasta
leik. Ástæðan? Foreldrar
drengjanna í hinum liðunum
lögðu blátt bann við því að
þeir færu í keppnisferð til Ísa-
fjarðar. Og hvers vegna? Ótil-
greindar ástæður, segir Guð-
jón Þorsteinsson hjá KFÍ.
Hann segir að á miðvikudag-
inn, þegar haft var samband
við forsvarsmenn félaganna
sem eiga lið í Íslandsmótinu
til að fá upplýsingar um fjölda
þátttakenda sem panta þyrfti
gistingu fyrir, hafi svörin verið
á þá leið að liðin myndu ekki
mæta vegna þess að foreldrar
væru því andvígir. Ekki feng-
ust frekari skýringar, en Guð-
jón segist hafa heyrt að for-
eldrarnir hafi verið reiðubúnir
til að senda börn sín til Akur-
eyrar, en alls ekki til Ísafjarðar.
„Ég hef heyrt þá skýringu
að foreldrar drengjanna hafi
lagst gegn ferðinni vestur
vegna veður- og landfræði-
legra sjónarmiða og hefðu
sagt að á Ísafirði væri fólk
alltaf veðurteppt og hér væri
ekkert nema eymd og vol-
æði. Snjóflóðahætta hefur
verið nefnd, en það er fárán-
leg ástæða miðað við ríkj-
andi aðstæður. Verið getur
að öll þessi neikvæða um-
ræða um Vestfirði sem átt
hefur sér stað, sé að skila sér
í þessu sem öðru. Þar er ég
að tala um snjóflóðin og þeg-
ar Metróvélin lenti í göndl-
inum og annað slíkt. Ef hægt
er að senda liðin til Akur-
eyrar en ekki til Ísafjarðar,
þá er eitthvað að gerast. Þá
er ástæðan ekki sú sem ég
reiknaði með í fyrstu, þ.e.
peningaleg sjónarmið,“ sagði
Guðjón í samtali við BB.
Foreldrar 12-13 ára drengja í Reykjavík lögðu blátt bann
við því að synir þeirra færu í keppnisferð til Ísafjarðar um
síðustu helgi eins og fyrir hafði verið ráðgert. Í staðinn var
farið til Akureyrar.