Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 18

Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 18
BÖRN 06 /V\ENN|N6 gerlegt að lifa af slíkum tekjum. Barnabækur eru dýrar í framleiðslu einkum bækur fyrir minnstu börnin sem þurfa að vera fallega myndskreyttar. Og þá er hættan að þær verði svo dýrar í sölu að fólk heykist á að kaupa þær. Það má ekki gerast því að þá verður verksmiðju- framleiðslan á barnabókum ofan á. Og allt of margar eldri bækur eru ófáanlegar sem öll börn ættu að eiga. Nú er ýmis menningarstarfsemi niðurgreidd eða aðrar ráóstafanir gerðar. A sínum tíma stóðst þú fýrir því að Þýðingarsjóður var settur á stofn. Sérð þú einhverja svipaða lausn á vettvangi barnabóka? Því ekki það. Ég held að það þurfi að leggja fram fé til að styrkja útgefendur til útgáfu barnabóka. Þegar Þýðingarsjóður komst á laggirnar 1981 hafði hann umtalsverð áhrif. Þar er lögð fram tiltekin upphæð úr ríkiskassanum til þess að greiða mönnum laun á meðan þeir eru að þýða erlendar bókmenntir. Þetta er ekki há ljárhæð, innan við 10 milljónir árlega, en það hefur heldur betur sýnt sig að það hefur skilað sér í fjölbreyttari og betri útgáfu erlendra bókmennta. Og það sem meira er, þessar bækur seljast. Bækur Dostojevskis og Tolstoys, Umberto Ecos og Isabellu Allende, kollkæfðu Barböru Cartland! Það er nefnilega alrangt, held ég, að allur þorri manna vilji drasl. Fólk vill góðar bækur séu þær á annað borð á boðstólum. Það á við um barnabækur líka. Árið 1991 var ________ virðisaukaskattur á bókum afnuminn en settur snarlega á aftur við stjórnarskipti 1993. Á þessu stutta tímabili jókst bóksala mikið, enda munar um 14% verðlækkun. Víða er enginn virðisaukaskattur á bókum til dæmis í Noregi og Bretlandi. íslenskir útgefendur hafa mikið barist íyrir afnámi hans en ekkert gengið. En ég held að það sé engin spuming, þetta á að gera með samvinnu ríkis og útgefenda. Það verður dýrkeypt þegar til lengri tíma er litið að „spara“ á þessum vettvangi. Finnst þér stefna útgefenda í vali á barnabókum tilþýðinga markviss? Nei, ég held að hún sé afskaplega tilviljunarkennd. Sumir vanda þó meira til þýðinga en aðrir. Mér finnst ánægjulegt að sjá að jafnvel Disney-frameiðslan hefúr á að skipa úrvalsþýðanda, henni Sigrúnu Árnadóttur sem tryggir að textinn sé í lagi. Menn voga sér ekki lengur að kasta til höndunum en ég held að vanti mikið á að sé til ákveðin stefna í vali á bókum til þýðinga. Öll bókaútgáfa byggist í vaxandi mæli á markaðnum, allt verður að seljast tafarlaust og lagerrými virðist horfið. Sérhver bók verður helst að vera metsölu- bók. En margar barnabækur ætti að endurútgefa og það er ekki fráleit hugmynd að til væri forlag sem annaðist útgáfu sígildra barnabóka bæði íslenskra og erlendra Nú hefur þú lagt gjörva hönd á margar tegundir bókmenntatexta, ævintýri, raunsœissögur úr samtímanum, Ijóðrœnar bernskusögur, mynda- bœkur og barnaljóð. Flogið hefur fyrir að þú hyggir á frekari skrif fyrir fullorðna - ætlarðu að yfirgefa börnin? Aldeilis ekki! Þvi er ekki að leyna, að mig langar svolítið til að skrifa langan róman, svona sexhundrið síðna epískan doðrant íyrir fullorðna! En mér finnst yndislegt að skrifa fyrir börn og sennilega er ég svo illa haldin af síbernsku að ég held ég hætti því aldrei. Guórún Hannesdóttir Guðrúnu hafa tvisvar verið veittar viður- kenningar íslandsdeildar IBBY, 1988 og 1999 og úr rithöfundarsjóði Ríkisútvarpsins 1993. Bamabsekur1 öauðmuar1 ■Helgadó+tuiu Jón Oddur og Jón Bjarni, 1974 (Verðlaun Fræðsluráðs, 1975) Meira afJóni Oddi ogJóni Bjarna, 1975 íafahúsi, 1976 Páll Vilhjálmsson, 1977 Óvitar (leikrit), 1979 (Viðurkenning úr sjóði Thorbjöms Egners ) Enn afJóni Oddi ogJóni Bjarna, 1980 Astarsaga úrfjöllunum, 1981 Sitji Guðs englar, 1983 Gunnhildur og Glói, 1985 Saman í hring, 1986 Sænginni yfir minni, 1987 Núna heitir hann bara Pétur, 1990 Undan illgresinu, 1990 (Norrænu barnabókaverðlaunin 1992) Velkominn heim, Hannibal Hansson, 1992 Litlu greyin, 1993 (Verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur 1994) Ekkert að þakka! 1995 Ekkertað marka! (Viðurkenning Menningarsjóðs VISA 1996) Englajól, 1997 Aldrei að vita!, 1998 HandaGúndavél og ekkert minna, 1999 16

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.