Börn og menning - 01.09.1999, Page 20

Börn og menning - 01.09.1999, Page 20
BÖRN 06 MENN|N6 Spil aj'ólkið O0 puepum^osið Hvort Bollubókin er hugarburður Hans Tómasar kemur ekki fram, enda kannski ekki aðalatriðið. Þrátt fyrir annan búning fjallar hún um sömu hluti og ferðasagan. Sljótt spilafólkið er hliðstætt mönnunum sem vaninn hefur svipt lífstilfinningunni. Hans segir mömmu sína týnda í tískuævintýrinu þannig að óhugnaður innilokunar og óraunveruleika eyjarinnar tengist þeim tilbúna ímyndaheimi sem hún lifir í sem fyrirsæta. Sljóleiki spilafólksins orsakast einnig af purpuragosinu, drykk sem það ánetjast. Purpuragosið sviptir spilafólkið dómgreindinni og Hans Tómas sér að drykkja föðurins er alvarlegt mál. Ferðin er því þroskasaga Hans Tómasar. Hann fer að hugsa sjálfstætt og við það verður lífið flóknara. Hann sér foreldra sína á annan hátt en áður og gerir sér grein fyrir því að margar ástæður geti legið fyrir ijarveru móðurinnar og ekki sé sjálfgefið að hún komi með þeim heim. Xýndur afi og eef+aeólcm Þegar nálgast lok sögunnar kemur í ljós að Bollubókin Ijallar um Hans Tómas sjálfan og ferð hans. I henni er spádómur sem hefur ræst og er að rætast. Fortíð, nútíð og framtíð mætast. Hans kemst að því að bakarinn sem gaf honum bolluna er afi hans og að brottför móðurinnar sé fyrirfram ákveðin, liður í ættar- óláni. Um leið og spádómurinn sem nefnist jókerspil er lesinn sést að bókin er byggð upp á sama hátt og spilastokkur. Kaflar hennar eru 53, nefndir eftir spilum að jókernum meðtöldum. Höfundur leggur semsagt spilin á borðið en lesandans er að spá. Byggingin er liður í meðvitund sögunnar um sjálfa sig sem sögu sem auk þessa kemur fram í markvissri innpökkun. í fyrsta rammanum er Hans Tómas að skrifa sögu ferðarinnar að sex árum liðnum. Siðan er Bollubókin, sagan í sögunni, endursögn endursagnar. Regluleg skipting sagnanna tveggja truflar einnig innlifun lesandans og þegar fantasía Bollubókarinnar blandast raunsæislegri ferða- sögunni er afstæði sannleikans ítrekað enn frekar. 3íól<enÍKun li|i Meginkostur bókarinnar er jákvæð afstaða hennar til lífsins. Heimspekilegar pælingar um tilgang lífsins hafa oft borið í sér þá neikvæðu niðurstöðu að lífið sé tilgangslaust. Af spilafólki Bollubókarinnar kemst jókerinn einn af. Jókerinn er bæði hluti af spila- stokknum og utan hans þar sem taka má hann burt án þess að vanti í spilin. I sögunni er heimspekingum líkt við jókera því þeirra er að skoða samfélagið utan ffá um leið og þeir eru sjálfir hluti af því. Að jókerinn lifi tengist þeirri skoðun að Hf manna hafi tilgang í sjálfu sér og þótt mennirnir deyi geti hugsanir þeirra lifað samanber heimspeki Forn-Grikkja. Greinarhöfundur er kennari í Borgarholts- skóla / Bókakaffi Síung og Barna og bóka - Islandsdeildar IBBY Félag barnabókahöfunda og samtökin Börn og bækur boða nú í annað sinn til bókakaffis á Súfistanum í húsi Máls og menningar við Laugaveg fimmtudagskvöldið 27. janúar næstkomandi. Andri Snær Magnason rithöfundur mun spjalla um barnabókmenntir og hefur frjálsar hendur í efnisvali sínu. Einnig verður sagt frá hinni geysivinsælu bók Harry Potter og heldur Anna Heiða Pálsdóttir, bókmenntafræðingur, stutt erindi um söguna sem kom út í fyrsta sinn á íslensku nú fyrir jólin, söguna bak við verkið og efnistök. Að loknum íyrirlestri verður létt kaffispjall um bæði erindin. Veitingar verða seldar á staðnum. Allir unnendur góðra bóka fjölmenniö! 18

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.