Börn og menning - 01.09.1999, Qupperneq 25

Börn og menning - 01.09.1999, Qupperneq 25
BÖRN OG />aENN|N6 SAMríÐARSKÁLO Að þessu sinni eru kynnt samtíðarskáldin Áslaug Jónsdóttir og Þórður Helgason. Bœði hafa þau nýlega skrifað vinsœlar bœkur fýrir börn og unglinga. Upplýsingarnar hér að neðan eru fengnar frá höfundunum sjálfum og kunnum við þeim bestu þakkir fýrir. Aslaug Jónsdóttir (f.1963) Nam myndlist við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands og Skolen for Brugskunst í Kaupmanna- höfn og útskrifaðist þaðan úr grafík og teiknideild árið 1989. Hefur starfað sem teiknari, rithöfundur, graf- ískur hönnuður, mynd- listar- og bókagerðarmaður. Bókarhönnun og mynd- lýsingar skipa veglegan sess í bókum Áslaugar, en þá þætti vinnur hún samhliða hugmynda- og textavinnunni. Efniviður bókanna er sprottinn úr hversdagsleikanum jafnt sem heimi ævintýranna og mörkum þessara heima á stundum eytt. Áslaug hefur myndskreytt allar sínar bækur sjálf. „ Við erum öll aó segja sögur. Við viljum öll heyra sögur: sannar sögur og skáldaðar. smásögur sem stórvirki, lífsreynslusögur og hvunndags œvintýr. Þau okkar sem velja það að starfi að segja sögur, gera það á margvíslegan hátt. Ég á ntér uppáhalds miðil sem er myndabókin. Að opna bók er eins og að opna dyr, ganga inn í safn mynda og orða. Að byggja slíkt safn er heillandi vinna. Finna hverju orði, hverri línu og hverjum fleti sinn stað, flétta saman ytri og innri byggingu. Allir viðir þjóna sínum tilgangi: vœngja- hurðin, forstofan, - já,jafnvel forstofuteppið sem leiðir þig inn í nýja veröld. Við taka einfaldar stofur, völundarhús eða veislusalir, allt eftir efnum. Þar má dvelja lengur eða skemur. Ef vel tekst til endist upplifun gestsins löngu eftir að spjöldunum er lokað. “ LAtgefin verk Gulljjöðrin 1990 Fjölleikasýning Astu 1991 Stjörnusiglingin 1991 A bak við hús - Vísur Önnu 1993 Einu sinni var raunamœddur risi 1995 Prakkarasaga meðhöfundur: Sigurborg Stefánsdóttir. 1996. Fyrsta ísl. barnabókin með táknmálsmyndum. Sex œvintýri 1998 Viðut*kenningaK Viðurkenning íslandsdeildar IBBY 1993 SLEIPNIR-rejselegat. Nordisk Ministerrád 1995 Viðurkenning úr Bókasafnssjóði höfúnda 1999 Tilnefning til H.C. Andersen verðlaunanna fyrir myndskreytingar 1999 Iríýðingar Enskar og þýskar þýðingar eru til eða í vinnslu á nokkrum bókum: Stjörnusiglingin, Á bak við hús - Vísur Önnu, Einu sinni var raunamœddur risi, en útgáfa er ekki ákveðin. Forlag: Mál og menning 23

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.