Börn og menning - 01.09.1999, Síða 26
BÖRN 06 MENN|N6
Þórður Helgason
(f-1947)
Cand. mag. í bókmennt-
um frá Háskóla íslands.
Kennari í framhaldsskóla
frá 1972 - '94. Lektor og
síðan dósent í íslensku
máli og bókmenntum við
Kennaraháskólann frá
1994. Auk barna- og
unglingabóka er Þórður
höfundur ljögurra ljóða-
bóka, nokkurra smá-
sagna sem birst hafa í blöðum, tímaritum og
kennslubókum, fjölda kennslubóka fyrir grunnskóla og
framhaldsskóla og fræðilegra ritgerða og greina á
ýmsum vettvangi.
Barnabækur Þórðar eru ólíkar að eíni en segja má að
þær fjalli flestar um líf bama í samfélagi nútímans með
skírskotun til fortíðar. Eina þeirra má þó líta á sem
dýrasögu (fabúlu). Unglingabækurnar tvær fjalla um
átök sem verða á viðkvæmu skeiði unglingsáranna.
Unglingarnir skilja við bernskuna og takast á við heim
fúllorðinna og öðlast nýja visku. Vinátta og ástir koma
mjög við sögu.
„Ég hef, allt frá því að ég gat lesið mér til gagns,
verið það se/n stundu/n er nefnt lestrarhestur. Því tel
ég meðal ber/tskuvina /ttinna ýmsar þœr persónur
sent ég kynntist eingöngu í bókum, þá Hjalta litla,
Nonna og Manna og Arna í Hraunkoti. Bóklestur
hefur æ stðan verið aðaláhugamál initt og ég hefnotið
þeirrar náðar að þetta hugðarefni mitt er einnig eiitn
meginþáttur starfs míns. Um langt árabil kenndi ég
unglingum og ntér fannst það gefa mér mikió, jafnvel
endurnýja lífdagana. Bœkur ittínar unt börn og
unglinga eru því í rökréttu framhaldi áhugasviðs míns
og starfs vonandi einhverjum til gagns oggleðu “
Baekur fyriv ungf j-ólk
Ég er kölluð Lilla 1985, 2. útg. 1987, 3. útg. 1989, 4.
útg. 1992
Langamma 1990
Ani ánamaðkur 1991
Geta englar talað dönsku? 1996
Tilbúinn undir tréverk 1998
Einn fyrir alla, 1999
Við u^keuuingar
Barnabókin Ég er kölluð Lilla fékk viðurkenningu í
samkeppni á vegum Námsgagnastofnunar árið 1985.
Smásagan Trigger fékk viðurkenningu Samtaka
móðurmálskennara í samkeppni um smásögur fýrir böm
og unglinga árið 1983.
Smásagan Og enginn sagði neitt fékk verðlaun í
smásagnasamkeppni Námsgagnastofnunar árið 1992.
Sagan Grímur fékk í sömu samkeppni viðurkenningu.
Árið 1996 hlaut Þórður 2. verðlaun í samkeppni
Listahátíðar í Reykjavík um ljóð. Tvö önnur ljóð eftir
hann fengu viðurkenningu í sömu samkeppni.
Forlag: Mál og menning
24