Börn og menning - 01.09.1999, Síða 29

Börn og menning - 01.09.1999, Síða 29
BÖRN 06 MENN|N6 Víst er gott að þau lesi „alvörubækur“ en mikið væri gaman að sjá þau lesa alvöru unglingabækur og síðan halda áfram yfir í bækur fyrir fullorðna. Kannski væru þá fleiri sem héldu áfram að lesa. Ætli lesendur okkar séu ekki bara fólk sem vill lesa bækur um fólk af holdi og blóði? Þurfiim við að gera þeim eitthvað annað upp? Er þetta vandamál okkar höfundanna frekar en lesenda? Áður lásu börn barnabækur og fóru svo beint yfir í fullorðinsbækur þegar þau stækkuðu. Það var viðtekin regla og engum datt annað í hug því það fannst ekkert annað. En þegar skoðað er hvað hefiir gerst og er að gerast í öðrum löndum er illskiljanlegt hvaðveldur því að unglingabækur hafa ekki lifnað almennilega sem bókmenntagrein á íslandi. Einstaka höfundar hafa verið unglingabókum trúir og sumir gert það vel en þeir eru bara svo fáir. Kannski hafa bókaforlögin heldur engan sérstakan áhuga á þessum bókum og trúlega seljast þær ekki sérlega vel ef þessi aldurshópur er hættur að lesa. En væri ekki gaman að gera átak þar sem höfundar og forlög legðust á eitt og veittu unglingabókum brautargengi í nokkur ár? Það mætti fara af stað með öfluga samkeppni þar sem unglingabækur einar væru hlutgengar og sjá hvað kæmi út úr því. Gfignrýnendur og þeir sem koma að almennri bókmenntaumræðu yrðu líka að taka þátt í henni. Hverju væri hægt að breyta? Hvað væri hægt að bæta? Ég minni á að uppsveiflan í Noregi er ekki nema liðlega þrjátíu ára gömul en risar á borð við Tormod Haugen, Jostein Gaarder, Klaus Hagerup og fleiri spretta heldur ekki upp af engu. Það ættum við að muna. Burtséð ífá því að hafa fengið tækifæri til að lesa svona mikið þetta ár varð ég fyrir þeirri skemmtilegu reynslu að endurmeta sjálfa mig dálítið. Ég komst nefnilega að því að þeir sem eru að skrifa fyrir börn og unglinga í Noregi segja gjarnan frá því með nokkru stolti. Þeir eru ekki barnabókahöfundar eins og hér heldur skrifa skáldsögur, ljóð og leikrit fyrir börn og unglinga. Þeir skrifa skáldsögur fyrir þessa ákveðnu hópa alveg á sama hátt og þeir skrifa þær stundum fyrir fullorðna. Það sem meira er, mér sýnist það ganga prýðilega upp. Og ég tók í hnakkadrambið á mér. Ef við getum ekki verið stolt af því sem við vinnum við af metnaði og í fullu starfi allt árið um kring, hver á þá að vera stoltur af okkur? Og hvernig eigum við að gera nokkuð af viti ef við liggjum í kafi undir brotinni sjálfsmynd? Auðvitað erum við að skrifa skáldsögur, ljóð og leikrit alveg á sama hátt og aðrir, þótt við berum minna úr býtum ijárhagslega. Það ættum við að muna! Þess vegna skulum við ganga ótrauð út í komandi jólavertíð og fagna skáldsögum okkar og ljóðum. Greinarhöfundur er rithöfundur 27

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.