Börn og menning - 01.09.2005, Qupperneq 8

Börn og menning - 01.09.2005, Qupperneq 8
6 Börn og menning að segja og hvaða boðskap hún eigi að geyma. Annaðhvort sem ég handritið sjálf eða geri leikgerð út frá einhverjum sögum eða jafnvel kvæðum. Handritið gengur svo á milli mín og leikstjórans og tekur oftast nær heilmiklum breytingum á meðan. Þegar handritið er tilbúið fæ ég einhvern í lið með mér til að semja söngtexta því söngur er stór partur af sýningum Brúðubílsins. Þannig tekst að brjóta upp sýningarnar, halda athygli barnanna og fá þau til að taka þátt. Því næst bý ég til brúðurnar en það ferli tekur langan tíma. Það er nefnilega ekki nóg að búa til fallega brúðu. Það er svo mikilvægt að hún geti hreyft sig því þannig lifnar hún við. Þess vegna þarf sá sem gerir brúðurnar að vita hvað brúðan á að geta gert. Hreyfingin er óskaplega mikilvæg brúðunni og því þarf brúðustjórnandinn að þjálfa sig og beita sig miklum aga. Brúðan er eins konar framlenging á brúðustjórnandanum sem gefur henni líf sitt og sál. Brúðan er ekki til fyrr en henni er stjórnað. Þess vegna getur verið gott að brúðustjórnandinn tali fyrir brúðurnar en samt sem áður hef ég farið þá leið að velja leikara í raddir flestra brúðanna. Raddirnar spila ég svo af upptökum í sýningunum. Ég leik samt alltaf ákveðnar raddir eins og Lilla. Þannig finnst mér þetta koma best út. Á sýningum túlka ég svo allar þessar ólíku raddir og er stundum með tvær eða þrjár brúður í höndunum. Ég spyr mig stundum að því af hverju ég sé ekki með fjórar hendur. Það vantar alltaf hendur (hlátur). Vigdís Másdóttir stjórnaði þess vegna brúðunum með mér í sumar. Hún fór einnig í gervi stóru brúðanna sem eiga það til að stíga út fyrir sviðið. í apríl hefst svo æfingaferlið sem lýkur ekki fyrr en sýningar hefjast í júní. Brúðubíllinn brunar svo að venju um borg og land allt sumarið. Áttirðu von á því þegar þú byrjaðir að Brúðubíllinn yrði svona langlífur? Ég spáði nú ekkert í það, en mér fannst strax mjög gaman og það átti vel við mig að vera með börnunum. Ég segi stundum að ég elski B-in þrjú en á þá ekki við hin stóru B úr tónlistinni, Bach, Beethoven og Brahms, heldur börn, brúður og bækur. Ég les mikið af barnabókum í leit að efni og er stöðugt með hugann við brúðurnar og börnin. Hefur eitthvað áunnist í íslensku brúðuleikhúsi á þesum 25 árum? Já, feikilega mikið vegna þess að fólk er farið að gera sér grein fyrir því að brúðuleikhús er listgrein. Þegar ég var að byrja minn feril sagði fólk iðulega við mig: „Æ, ertu ennþá í þessu brúðuleikhúsi? Ætlarðu ekki að fara að vinna eitthvað?" Þetta er ég alveg hætt að heyra. Viðhorf manna hefur breyst algjörlega. Ég hef samt aldrei tekið þessar athugasemdir inná mig því ég veit að brúðuleikhúsið höfðar til barnanna. Þar taka þau líka oft sín fyrstu skref í leikhúsi og læra að hlusta. Einnig eru margir listamenn farnir að átta sig á því hvað brúðan er sterk og eru farnir að nota brúður í sýningum sínum. Það er jákvæð þróun og staðfesting á því að brúðurnar eru komnar til að vera. Tröllið nær taki á greinarhöfundi. Heiga Steffensen í hlutverki tröllsíns. Þegar Helga hefur lokið máli sínu verður mér litið á risavaxið tröllið sem setið hefur næst mér meðan á spjalli okkar Helgu stóð. Áður en ég veit af lifnar brúðan við og nær tökum á mér. Hún heldur mér fanginni á sama hátt og syni mínum á sýningunni í sumar. Þá fæ ég endanlegt svar við spurningu minni. Brúðurnar ná taki á okkur á unga aldri og þær sleppa því síður en svo þó við fullorðnumst. Galdurinn er þeirra. Það er líf með brúðunum. Jóna Valborg Árnadóttir

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.