Börn og menning - 01.09.2005, Qupperneq 13

Börn og menning - 01.09.2005, Qupperneq 13
Brúðuleikhús í gegnum tíðina Stangarbrúöur i Indónesíu er rík hefð fyrir brúðuleikhúsi sérstaklega á eyjunum Balí og Jövu. Á Balí eru mest notaðar skuggabrúður sem eru sérstaklega gerðar fyrir skuggaleikhús. Þær eru gerðar úr nautshúð og eru mikil listaverk. Á Jövu hinsvegar eru stangarbrúður meira notaðar. Leikin eru helgiljóð úr goðafræði búddismans og standa sýningar oft heilu næturnar við miklar vinsældir. Stangar- brúðum er stjórnað þannig að önnur höndin er notuð til að stýra stöng sem fest er við háls brúðunnar og hin til að stýra stöng sem er fest við úlnliði hennar. Síðar bættu Tyrkir mittishreyfingum við sínar skuggabrúður og er það aðeins eitt dæmi um það hvernig hefðir brúðuleikhússins hafa borist milli landa og síðan þróast í mismunandi áttir. Vestræn brúðuleikhús urðu fyrir áhrifum af hinu indónesíska á 20. öld og evrópskir brúðuleikarar fóru að búa til stangarbrúður sem í dag eru einna algengustu brúðurnar. í Japan þróaðist mjög sérstætt brúðuleikhús á 18.öldsem bernafniðBunraku.Tignarlegum brúðum, allt að 145 cm háum, er stýrt af þremur brúðuleikurum sem áhorfendur sjá greinilega. Listin felst í því að gera hreyfingar brúðanna svo raunverulegar að áhorfendur gleymi brúðuleikurunum. Til þess að hreyfingar brúðanna virkí sannfærandi þurfa brúðuleikararnir þrír að samhæfa hreyfingar sínar fullkomlega og tekur um 25 ár að ná slíkri þjálfun. í Bunraku eru gjarnan uppfærðir harmleikir sem enda átakanlega og eru þeir aðallega ætlaðir fullorðnum áhorfendum. Þessi einstaka aðferð japanska brúðuleikhússins að stýra brúðunum fyrir sjónum áhorfenda hefur haft mikil áhrif á þróun nútíma brúðuleikhúss og er hún reyndar oft notuð nú á tímum. Handbrúður Handbrúður eru venjulega litlar og búnar til úr efnum þannig að líkami og höfuð brúðunnar passar á hönd brúðuleikarans en þær urðu eins og fyrr segir vinsælar í Evrópu á átjándu öld. Á strætum Lundúna, Munchen, Vínarborgar, Prag og Moskvu fæddust karakterar sem unnu hugi og hjörtu almennings og áttu þeir ýmislegt sameiginlegt þrátt fyrir fjarlægðirnar á milli þeirra. Allir voru þeir stríðnir, raupsamir og ögrandi og allir tilheyrðu þeir mikilvægri hefð - farand-götuleikhúsinu. Handbrúður eru þannig skapaðar að þær geta tekið upp hluti og haldið á þeim sem er mjög heppilegt því þessir kumpánar áttu það til að berja á andstæðingum sínum með prikum. Sumir af þessum karakterum lifa enn þann dag í dag. Má þar nefna Punch og Judy sem ennþá skemmta Englendingum, Guignol birtist af og til í skemmtígörðum í Frakklandi og í Vínarborg er til sérstakt Kasperl leikhús. Leiksvið handbrúðanna voru og eru enn einhvers konar klefar þar sem brúðuleíkarinn getur verið f felum. Leiksviðsklefarnir gátu verið með ýmsu móti en oftast voru þeir tiltölulega litlir og þægilegir til flutninga og jafnvel var hægt að brjóta þá saman. Allt þetta kemur sér vel fyrir brúðuleikara sem ferðast með sýningar sínar á milli bæja eins og til dæmis Brúðubíllinn gerir hér á landi. Hér áður fyrr þegar skemmtanir voru sjaldgæfar, sérstaklega fyrir almúgann, varð uppi fótur og fit þegar brúðuleikarinn kom á markaðsdeginum og setti upp leiksviðið sitt á fjölförnum stað. Venjulega var söguefni myndlist, hönnun, ritlist, leiklist og tónlist. Brúðurnar sjálfar eru afar fjölbreyttar en algengt er að skipta þeim í þrjá höfuðflokka, stangarbrúður, strengjabrúður og handbrúður, allt eftir því hvernig þeim er stýrt.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.