Börn og menning - 01.09.2005, Page 15

Börn og menning - 01.09.2005, Page 15
Til hamingju! 13 höfða mjög sterkt til barna. Þær eru nokkurs konar framhald af þeirra eigin dúkku- og bangsaleikjum. Börnin eru sjálf eins konar brúðuleikarar því þeim er eðlilegt að láta leikföng og ýmsa hluti hreyfast, tala, hlæja og gráta. Þeim finnst ekkert eðlilegra en að handbrúða af einföldustu gerð tjái tilfinningar sínar. Eftir því sem börnin eldast hætta þau að leika sér á þennan hátt og ef til vill hætta brúðurnar þá að höfða jafn sterkt til þeirra. En þótt það þurfi kannski að hafa meira fyrir því að fá fullorðið fólk til að falla fyrir töfrum brúðanna er það vissulega hægt. Vegna þess að brúðan er karakter en ekki manneskja skapast ákveðin fjarlægð sem veitir um leið visst öryggi. Af þessari ástæðu er algengt að brúður séu notaðar til að fjalla um viðkvæm mál eins og kynþáttamisrétti eða kynferðisofbeldi. í Koddamanninum, sýningu sem er á fjölum Þjóðleikhússins um þessar mundir, er einmitt notuð strengjabrúða frá Bernd Ogrodnik til að sýna hræðilegt ofbeldi gagnvart barni sem hefði verið óbærilegt að horfa á ef um raunverulegt barn hefði verið að ræða. Nógu erfitt var það samt. Brúðuleikhúsið byggist meira á hinu sjónræna heldur en hinu talaða orði. Hreyfingin skiptir meira máli en orð og brúðan getur gert hluti sem leikari getur ekki. Hún getur til dæmis flogið eins og Ijóti andarunginn í Klaufar og kóngsdætur eða gertýmsa grófa hluti sem ekki væru hlægilegir ef leikari gerði þá. En brúðuleikhúsið stendur og fellur með samspili brúðunnar og brúðustjórnandans. Hann gefur henni líf, hreyfingar, rödd og skapgerð; án hans er hún ekkert. Það er því kannski ekki undarlegt að sambandi brúðustjórnandans og brúðunnar hafi stundum verið líkt við samband guðs og manns. Guðlaug Richter Heimildir: Vibeke Helgeson, Pax 2000: Den magiske haand: Dukkespil og figurteater gjennom tidene http://sunniebunniezz.com/puppetry www. civilization. ca/educat/oracle/modules Til hamingju! Sverðberinn á sigurgöngu Velgengni bókarinnar Sverðberinn eftir Ragnheiði Gestsdóttur hefur væntanlega ekki farið framhjá unnendum íslenskra barnabóka en sagan hefur hlotið hver verðlaunin á fætur öðrum á þessu ári. Auk þess sem IBBY á íslandi veitti Ragnheiði Vorvinda- viðurkenningu fyrir bókina í vor hlaut hún einnig barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur. í úrskurði dómnefndarsegirm.a.: „í sögunni er glímt við sígildar spurningar um gott og illt, mjúkt og hart. Sverðberinn hlýtur barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur sem besta íslenska bókin enda er hún vel skrifuð, söguþráðurinn spennandi og sögusviðið frumlegt og heillandi." Síðast en ekki síst hlaut Ragnheiður Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir Sverðberann og voru þau afhent við hátíðlega athöfn í Þjómenningarhúsinu í byrjun júlí. Við í stjórn IBBY óskum Ragnheiði innilega til hamingju með verðskuldaðan heiður.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.