Börn og menning - 01.09.2005, Síða 17

Börn og menning - 01.09.2005, Síða 17
Ekki ætlað börnum 15 Hér er reyndar komið ieiðarstef í „notkun" fullorðinsleikhússins á börnum. Þau virðast helst koma við sögu í þeim tilgangi að deyja eða þola hörmulegar þjáningar. Þetta er nokkuð merkileg staðreynd, því börn hafa eins og allir vita afgerandi áhrif á líf, viðhorf og samskipti allra sem að þeim standa og það án þess að neitt sérstakt ami að. Þessa hlið mannlífsins hefur leikhúsið að mestu látið órannsakaða þótt ótrúlegt megi virðast. Um leið og barn birtist á sviðinu er eins víst að illa eigi eftir að fara fyrir því. Vissulega er ekkert eins átakanlegt og dauði barns og leikhúsið er ekki alltaf vant að meðulum þegar kemur að þvi að kreista tárakirtla eða velta við hneykslunarhellum. En oft skilja slík atriði eftir óbragð í munni og þá tilfinningu að höfundur hafi gripið til þess arna sem tækis til að hafa sem allra sterkust áhrif. Barnadauði er sterkt krydd og skyldi ekki notast til að breiða yfir annars bragðdaufan rétt. Á tilraunastofunni Sennilega er langt síðan hér hefur sést verk þar sem jafn langt er gengið í þessa átt og f Koddamanninum eftir Martin McDonagh sem Þjóðleikhúsið frumsýndi síðasta vor. Sýningum verður um það bil að Ijúka þegar þetta blað kemur út og þvi óhætt að Ijóstra því upp að leiksagan hverfist um hroðaleg morð á börnum sem virðast vera framin að forskrift smásagnahöfundar nokkurs sem fyrir vikíð liggur undir grun um aðild að málinu. En þó morðin séu hin viðbjóðslegustu falla þau eiginlega í skuggann af fortíð höfundarins og bróður hans en hinn síðarnefndi var pyntaður af foreldrum sínum næturlangt í læstu herbergi um sjö ára skeið til þess eins að athuga hvort vein hans yrðu ekki til að efla ímyndunarafl hins sonarins, sem eins og leikritið leiðir í Ijós gekk eftir. Verkið er listilega skrifað, hrollvekjandi og, þótt ótrúlegt megi virðast, bráðfyndið. McDonagh er af mörgum talinn einhver hæfileikaríkasti höfundur sinnar kynslóðar á Bretlandseyjum og þó honum sé gjarnan legið á hálsi fyrir að grípa til ódýrra bragða blóðs og ofbeldis til að skemmta áhorfendum þá er samt greinilegt að þörf hans til að heilla áhorfendur inn í sagnaheim sinn er sönn, bak víð tæknilega fágunina leyníst einlægni sem gefur honum á endanum rétt á að segja þær hörmungarsögur sem hann kýs. Þrátt fyrir allt eru örlög barnanna í Koddamanninum ekki ódýrar brellur til að hreyfa við okkur, þótt greinilegt sé að McDonagh hefur unun af svoleiðis löguðu. Þau eru óhjákvæmilegir hlekkir í sögunni sem sögð er. Koddamaðurinn er sennilega fyrst og fremst hugleiðing um galdur sögunnar, framreidd í formi listilega fléttaðrar frásagnar af hörmulegum atburðum. Sýningin er ekki við hæfi barna en breytir þess í stað „hörnuðum" éhorfendum sínum í stóreyga, opinmynnta krakka sem skríkja af kátínu milli skelfingarandkafanna. „Smábarnaleigan, góðan dag" Að sumu leyti er söngleikurinn Annie mest sjokkerandi af þessu öllu. Samt er hún eina sýningin af þeim sem nefndar hafa verið sem er beinlínis ætluð börnum. En er ekki dálítið erfitt að kyngja sýningu þar sem rösk kona í dragt mætir á hæli fyrir munaðarlaus stúlkubörn og biður um að fá eins og eitt að láni yfir jólin fyrir milljónamæringinn sem hún vinnur hjá? Ég er hræddur um að engum dytti í hug að skrifa slíkt og þvílíkt í dag. En enn og aftur sannast að ætlun höfundar talar til okkar í gegnum það sem hann skrifar. Og orðið sem best lýsir viðhorfi höfundar Annie er sakleysi. Það er svo augljóst að það hvarflar ekkí að honum að nokkuð vafasamt búi að baki því að einmana karl fái að leigja sér smástelpu til að lífga upp á hversdaginn. Og það vottar ekki fyrir kaldhæðni þegar sjálfur Bandaríkjaforseti birtist eins og Guð úr vélinni í leikslok og úthlutar öllum hæfilegri hamingju. Þessi saklausitónn bjargar verkinu. Þó svo leikstjóri sýningarinnar treysti honum ekki alltaf þá skilar hann sér samt. Kannski er það lærdómurinn sem draga ber af afdrifum barna í leikritum fyrir fullorðna. Það er aldrei erfitt að greina hvenær höfundur hefur rétt á að láta barn deyja og hvenær hann er að svala lægstu hvötum sínum og áhorfenda. Rödd höfundarins er alltaf skýr, og þess vegna blasir alltaf við hvort um er að ræða dramatíska nauðsyn eða ódýra brellu. En það þarf ekki sérlega vitran mann til að sjá að fátt er óhollara ungum börnum en að gerast persóna í fullorðinsleikriti. Höfundur er textasmiður og leiklistargagnrýnandi.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.