Börn og menning - 01.09.2005, Síða 18

Börn og menning - 01.09.2005, Síða 18
16 Börn og menning Hrund Ólafsdóttir Skemmtilegur karl Kalli á þakinu Höfundur: Astrid Lindgren Leikstjóri: Óskar Jónasson Þýðing og staðfæring: Davíð Þór Jónsson Tónlistarstjóri: Karl O. Olgeirsson Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: Helga Rós V. Hannam Lýsing: Kári Gíslason 3sagas og Á þakinu, í Borgarleikhúsinu 9. október 2005 Það er Ijómandi fínt og þakkarvert að fyrirtækin 3sagas og Á þakinu skuli fá inni í Borgarleikhúsinu með leiksýningu fyrir börn. Kalli á þakinu er að mörgu leyti skemmtileg sýning sem heillar jafnt litla krakka sem stóra og foreldrana líka og húsið fyllist af fólki sunnudag eftir sunnudag, mánuðum saman. En sýningin hefur galla sem auðvölt hefði verið að komast hjá, galla sem eru of algengir þegar settar eru upp leiksýningar fyrir börn. En áður en nánar verður fjallað um þá er vert að segja frá fjölmörgum kostum leiksýningarinnar en einn sá helsti er auðvitað sagan sem verkið er unnið upp úr. Andi Lindgren svífur yfir Kalli á þakinu er ekki með allra vinsælustu sögum Astridar Lindgren en vinsæl er hún engu að síður og ber ríkuleg einkenni þessa stórkostlega rithöfundar. Þess er því miður ekki getið í annars ágætri leikskrá hver gerir leikgerðina, hvort það er leikstjóri, þýðandi eða hvort verkið er til sem leikrit á frummálinu. Og ekki er heldur getið höfunda tónlistar og söngtexta. Engu að síður svífur andi Lindgren yfir sviðinu; hinn frjálslegi og glaði ævintýraandi þar sem skynjun og tilfinningar barna eru f fyrirrúmi og horft er á hina fullorðnu frá sjónarhóli barnanna. Skemmtilegur karl Helstu töfrar Lindgren felast ekki síst í leiknum með ímyndunaraflið, hvernig fullorðna fólkið í bókunum hennar gengur ævintýrinu á vald eftir ákveðna tregðu til að byrja með. Börnin í bókunum og ungir lesendur eða áhorfendur geta sagt stoltir í lokin: „Við sögðum ykkur þetta. Þetta er svona. Þetta er hægt." Brói, sem er tíu ára, eignast vininn Kalla á þakinu sem vantrúaðir og stressaðir sjá ekki en eftir því sem leikur og ímyndunarafl fá meira rúm, því fyrr sér fólk hann. Gleði Bróa í lokin felst einna helst í því að hafa fengið alla hina til að sjá Kalla og viðurkenna að hann sé til, þessi skemmtilegi karl sem gengur alltaf aðeins of langt. Honum finnst sjálfsagt að drasla til, er gráðugur í sælgæti og nýtur þess að fremja prakkarastrik. Fallega tímalaus sýning Fyrsta bókin um Kalla kom út fyrir fimmtíu árum en þýðing og staðfæring gengur prýðilega upp, þó að stundum örli á heldur grófu málfari í nútímastíl. Að öðru leyti er sýningin fallega tímalaus. Leiksviðið, búningarnir, brellurnar og hraðinn í sýningunni er allt með ágætum og aldeilis skemmtileg ærslaatriði ríghalda börnum og fullorðnum. Sérstaklega er þar um að ræða atriðin með innbrotsþjófunum, með Boggu barnfóstru og svo lokaatriðið. Tónlistin er skemmtileg og vel leikin en því miður fór söngurinn stundum fyrir ofan garð og neðan, textinn skilaði sér ekki og keyrslan datt niður. Það er alltaf hægt að heyra hvenær ungir áheyrendur tapa athyglinni. Misjöfn reynsla leikara Ástæða þess að sýningin heldur ekki athygli út í gegn er einföld. Hæfileikar þeirra sem við sjáum á sviðinu eru gríðarlega misjafnir enda búa þeir að mismikilli reynslu. Sveppi, Sverrir Þór Sverrisson, sló einfaldlega í gegn. Þó að hann sé ólærður leikari var það varla að sjá; hann geislaði í hlutverki þessa fullorðna barns sem Kalli er, hann var óþolandi stríðinn og hávaðasamur eins og vera ber og hann var einlægur og góður sem sannur vinur. Auk þess var hann ótrúlega lipur á flugi sínu og stökkum, var mjög fyndinn í litlu

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.