Börn og menning - 01.09.2005, Page 19

Börn og menning - 01.09.2005, Page 19
og stóru en stal aldrei senunni. Það er nefnilega svo auðvelt að stela senunni frá börnum og unglingum sem leika með fullorðnum, reyndum og geislandi leikurum. Aðrir þrælvanir og góðir leikarar áttu stjörnuleik, til dæmis Laddi sem þurfti eiginlega bara að vera til að verða grátlega fyndinn sem heimski og svangi þjófurinn. Jakob Þór Einarsson átti ágætan leik á móti Ladda sem hinn þjófurinn og var Ifka sannfærandí sem pabbi Bróa. Þröstur Guðbjartsson var makalaust fyndin manngerð sem Bogga barnfóstra og gervið var magnað. Börnin og unglingarnir stóðu sig vel miðað við litla reynslu og þjálfun en það er ekki víst að þeim hafi verið neinn greiði gerður með því að fá þeim þessi hlutverk í hendur. Arnmundur Ernst Björnsson var öruggastur af unga fólkinu enda með nokkra reynslu af leik. Vonbrigði með heildarmyndina Slagsíða sýningarinnar kemur helst fram í ójafnvæginu milli reyndra og óreyndra eins og áður sagði. Það er auðvitað meðvituð ákvörðun hjá listrænum aðstandendum að láta börn leika börn, væntanlega helst vegna andstæðunnar við karlinn á þakinu, en af hverju ekki að láta fullorðna leika börn eins og að láta karl leika konu? Snerpan datt of oft úr sýningunni og framsögn var ábótavant. Þetta er sagt hér vegna þess að svo mikið er lagt í sýninguna að flestu leyti, með færu og reyndu atvinnufólki á flestum vígstöðvum og snjöllum leikstjóra. Það veldur því vonbrigðum að gæðin skuli ekki hafa haldist út í gegn, meira lagt í reynda leikara; áhættan tekin til enda. Höfundur er bókmenntafræðingur, kennari og leikskáld.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.