Börn og menning - 01.09.2005, Blaðsíða 22

Börn og menning - 01.09.2005, Blaðsíða 22
Börn og menning eru það línurnar í leikmyndinni sem minna á hinar frægu pappírsútklippur Andersens; kannski að fólk og viðburðir sem fyrir augu ber leiði hugann að draumlyndum pilti með viðkvæmt hjarta og frjóan huga. Það hefur sennilega ekki verið auðvelt að draga út nokkur ævintýri úr hinu geysimikla safni Andersens en niðurstaðan er Eldfærin, Næturgalinn, Hans klaufi, Svinahirðirinn, Förunauturinn og Litla stúlkan með eldspýturnar, auk þess sem Ljótiandarunginn stiklar um inn á milli. Mikið vill auðvitað meira en líklega má þó vel við una, hér er að því er virðist allt sem þarf, þekkt og minna þekkt ævintýri, glens og gaman á aðra síðu og sorg og skuggar á hina. Handritshöfundar hafa á ferli sínum brallað hitt og annað og enda þótt hér væri frumraun í Þjóðleikhúsinu er Ijóst að það voru engir byrjendur sem bjuggu textann til leiks, allt gekk smurt og lipurlega, og ærið oft sprakk eldri hluti leikhúsgesta úr hlátri þegar vel og hnyttilega var að orði komist. Sömuleiðis voru sönglög þeirra félaga og söngtextar skemmtilegir og við hæfi. Ágústa Skúladóttir leikstjóri hefur undanfarið vakið eftirtekt fyrir sýningar sínar og má m.a. rifja upp að hún vann eftirminnilega sýningu með Leikfélagi Kópavogs upp úr safni Grimms-bræðra fyrir nokkrum árum sem valin var Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2002 og var bóðið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Ágústa hefur sýnt að hún hefur einkar gott lag á að vekja sköpunarkraft í hópnum öllum sem hún vinnur með, og ekki bar á öðru en að sá galdur lukkaðist líka hér, yfir öllu er einstakur frískleiki og sprúðlandi hugmyndaauðgin ber með sér að sýningin sé að verulegu leyti sameiginlegt sköpunarverk margra en ekki fárra. ígrundað sprell Leikhópurinn sýnir sig í að vera jafn og sterkur. Hér er teflt saman margreyndum leikurum og hinum sem hafa fengið færri tækifæri (og skemmri starfsævi!) til að sýna sig og sanna. Sigurður Skúlason leikur skáldið sem tengir allt saman í eina heild af hófstillingu og nærfærni, eins og vera ber. Hinir bregða sér fimlega í hvert hlutverkið á fætur öðru. Allir fá tækifæri til að skína og grípa það. Allir fá að spreyta sig í miðpunktinum og skila því með glans en oft voru líka örsmáir en hárnákvæmir „núansar" aukahlutverkanna hvað minnisstæðastir. Galgopaskapur og galsi einkenna leikinn en það eru aldrei innistæðulaus ærsl. Tvö dæmi: ég held að ég hafi aldrei skilið hvað ekta prinsessa gat séð við týpu á borð við Hans klaufa fyrr en ég sá prinsessumyndina sem Unnur Ösp dró upp. Og svínahirðir Björgvins Franz, með suðræna flamingó-tregasöngva á vör, sýnir svo ekki verður um villst ólgandi blóð og djúpstæðan harm yfir ást sem ekki fæst endurgoldin. Brúður Bernds Ogrodnik eru svo ávallt aðalpersónur af sjálfu sér, hvar sem þær koma. Brúðumeistarinn sjálfur verður hins vegar ósýnilegur á sviðinu, sem er auðvitað nokkur ráðgáta. Leikmynd Frosta Friðrikssonar, búningar Þórunnar E. Sveinsdóttur og lýsing Páls Ragnarssonar fallast í faðma; búningarnir litríkir og ýmsu tjaldað og leikmyndin spar- en hugvitssöm og Ijósin slógu þá tóna sem upp á vantaði til að skapa einmitt réttu stemninguna - að viðbættum Ijúfum tónum hljóðfæraleikaranna þriggja. Gilti einu hvort sögusviðið var undir logandi Spánarsól, við hirð Kínakeisara eða ískalt skotið hjá litlu stúlkunni með eldspýturnar. Þetta er með öðrum orðum leikhúsreynsla sem mann langar að hafa um orð á borð við „töfraheimur leikhússins", „leikhúsgaldur" og þess háttar, og ætti kannski bara að gera það. Þegar ég gekk út af sýningunni fannst mér ég hafa hlotið nokkra endurmenntun í ýmsu sem vert að hafa stöðugt í huga, t.d. um að dramb er falli næst (Svinahirðirinn, Hans klaufi), um sam- og mannúð (Litla stúlkan með eldspýturnar), um raunveruleg verðmæti (Næturgalinn), um dómhörku (Ljóti andarunginn) og að ástin sigrar (Eldfærin) - allt partur af því að gera sígildar sögur H.C. Andersens sígildar. En mest hafði ég auðvitað verið minntur á það hversu gaman er í leikhúsi þegar það er gaman. Höfundur er ritstjóri og áhugaleikari.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.