Börn og menning - 01.09.2005, Side 25

Börn og menning - 01.09.2005, Side 25
Galdrar, stelpur og myndasögur 23 af upphafsstöfum nafna þeirra sem mynda orðið „witch", enska orðið yfir norn. Atburðarásin hefst á því að Will flytur til borgarinnar Heatherfield og kynnist þar hinum stúlkunum fjórum, auk einnar til viðbótar, Eylon, sem síðar reynist svikari við vináttu stúlknanna og gengur hinum illu öflum á hönd. í fyrstu eru stelpurnar að fóta sig í hlutverkum sínum, en fyrsta verkefni þeirra er að loka hliðum frá hinum illa heimi yfir til mannheima. Eftir því sem á líður söguna fjölgar persónum og ævintýrin verða hressilegri, en líkt og í seríum af þessu tagi er hver saga lítið ævintýri sem síðan raðast saman í eitt stærra, sem er hluti af heildarsögunni. Hér er einungis hálf sagan sögð, því ekki er síður fjallað um daglegt líf stúlknanna, vináttu þeirra, samskipti við foreldra, kennara og stráka. Sem slfkar eru sögurnar öðrum þræði þroskasögur sem fjalla um unglingsárin og þau margvíslegu átök sem fylgja þeim. Það er klassískt að nota fantasíu sem einskonar myndlíkingu fyrir breytingar unglingsáranna, en af öðrum dæmum má nefna sjónvarpsþættina Buffy the Vampire Slayer og Sabrina the Teenage Witch. Að auki er þessi tveggja heima sýn vinsælt þema í manga, þekktasta dæmið er líklega Ranma 1/2. Teikningarnar í sögunum sverja sig í ætt við manga - í bland við evrópskan Disney- stíl - og sýna þannig ótvírætt fram á tengsl sagnanna við vaxandi vinsældir japanskra myndasagna. Frásagnarstíllinn er þó ekki endilega sá sem þekktur er úr manga - þó vissulega megi greina takta hér og þar - hann er líkari hefðbundnum evrópskum stíl, en með nokkrum áhrifum frá bandarískum ofurhetjusögum, en þær eru greinilega enn einn áhrifavaldurinn á sögurnar. Þótt hér sé tæpast nokkur snilld á ferðinni, hvorki söguþráð eða teikningar, þá er ósanngjarnt að álykta sem svo að sögurnar séu lélegar. Þær eru alveg ágætlega skrifaðar ævintýrasögur og teikningarnar eru fínar, líflegar og hæfilega kómískar. Iðnaður eða listsköpun? Það er auðvelt að vera sjálfkrafa fordómafullur út í fyrirbæri eins og Galdrastelpur, sögur sem eru ekki skapaðar af höfundi og teiknara, heldur eru afrakstur markaðskannana og því álitnar iðnaður frekar en listsköpun. Slíkir fordómar myndu þá sjálfkrafa einnig fordæma þær myndasögur sem hvað mestra vinsælda hafa notið í gegnum tíðina og verið samþykktaraf foreldrum og forráðamönnum, menningarvitum og myndasöguaðdáendum, en það eru auðvitað Andrés Önd sögurnar, sem einmitt eiga sér svipaðan óljósan höfundar-uppruna og Galdrastelpurnar, þó vissulega hafi nöfn tiltekinna höfunda tengst Andrési órjúfanlegum böndum, en þar ber helst að nefna Carl Barks. Sami hópur og hefur óttast að Harry Potter valdi satanískri bylgju meðal ungmenna er ósáttur við Galdrastelpurnar, enda eru þær ekki aðeins að flækja sig í vafasama yfirnáttúrulega krafta, heldur eru þær að auki ekki sérstaklega hlýðnar við foreldra og kennara. Fyrri gagnrýnin er vissulega umhugsunarverð en þá síðari er erfitt að taka alvarlega. Hinsvegar eru ánægjuraddirnar óvenjumargar og hæst hljóma þær sem nefna að samsetning hópsins sé vel heppnuð blanda ólíkra kynþátta, auk þess sem ein stelpan, Irma, er ekki grindhoruð (þó hún reyndar verði það í galdrabúningnum). Áherslan á vináttu og samstöðu er annað sem gleður eldri lesendur sagnanna en þeir tengja sögurnar við eldri uppáhalds kvenhetjur eins og Nancy Drew og gleðjast yfir því að fram sé komin saga sem fjallar annarsvegar um hversdagslegan veruleika unglingsstúlkna og hinsvegar um þær sem sjálfstæðar hughraustar hetjur, sem líka ná í sætu strákana! Þær geta sem sagt bæði verið konur á framabraut og konur sem eiga kærasta. Ég er þó mest sammála ánægjurödd Koppy McFad sem skrifar á síðu Comic Book Bin og lýsir því yfir að það sé sannarlega tími til kominn að fá hressilegar stelpu-hetju- myndasögur og bætir því við að þetta komi til með að hrista upp í myndasöguiðnaðinum svo um muni, því nú verði til heil kynslóð stelpna sem elst upp við myndasögulestur og þeim verðí að sinna með efni við þeirra hæfi: við viljum fleiri sjálfstæðar kvenhetjur takk. Höfundur er bókmenntafræðingur. Vefsíður með skrifum um Galdrastelpurnar (allar skoðaðar 05.10.05): http://www.chuangyi.com.sg/witchSite/about/about_ main.htm http://www.comicon.com/cgi-bin/ultimatebb. cgi?ubb=get_topic;f=36;t=003688 http://www.poynter.org/dg.lts/id.57/aid.63272/ column.htm http://www.answers.com/topic/w-i-t-c-h http://comicbookbin.com/koppy02.html http://www.focusonyourchild.com/entertain/art1/ A0001126.html http://www.ilmondodielena.it/witch/about.htm

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.