Börn og menning - 01.09.2005, Page 28

Börn og menning - 01.09.2005, Page 28
26 Börn og menning Úr leiksýningunni Ævintýri um Augastein sem var tilbúið af sýningunni. Á þessu stigi vorum við búnar að ráða Ingvar Sigurðsson með okkur sem leikara og Ragnhildi Gísladóttur til að gera tónlist. Leikstjórinn okkar Benedikt Erlingsson tók fljótlega þá ákvörðun að við skyldum hafa sýninguna án orða og láta tónlistina túlka söguna með brúðunum. í þetta sinn vildum við gera sýningu fyrir unglinga og fullorðna. Við tókum ævintýrið um stúlkuna sem fær rauða skó, sem eru einskonar töfraskór og ná valdi yfir stúlkunni, þannig að hún getur ekki hætt að dansa. Við unnum hana út frá hugtakinu fíkn. Ragnhildur samdi alveg magnaða tónlist sem er komin út á geisladiski. Ingvar var of upptekinn til að vera með okkur allan tímann þannig að á miðju æfingatímabilinu kom Jón Páll Eyjólfsson í hans stað og fer á kostum sem brúðuleikari. Við erum búin að sýna fyrir rúmlega 1000 unglinga úr grunnskólum Reykjavíkur og erum nú á leið til Sviss í nóvember með sýninguna. Ég reyni alltaf að gera sýningarnar þannig að allir geti notið þeirra, jafnt börn sem fullorðnir. Mér finnst samt að menning fyrir börn eigi að vera búin til fyrir börn. Mér leiðast t.d. barnasýningar sem eru gerðar af fullorðnum fyrir fullorðna og börnin eru skilin eftir og skilja ekki neitt. Best finnst mér ef hægt er að leyfa börnunum að taka þátt í sýningunni sérstaklega ef hún er fyrir lítil börn. Það er mikilvægt að reyna að nálgast börn á þeirra forsendum og koma til þeirra Úr sýningunni Leifur heppni inn í þeirra heim og þeirra tíma. Börn skynja tíma á allt annan hátt en fullorðnir. Stundum finnst mér að viðhorfið gagnvart barnaefni sé að fylgja uppskriftinni; skærir litir, hraði, tónlist, hávaði og detta á rassinn brandarar til að halda athygli barnanna. Mér finnst aðalatriðið einmitt vera að ná að tengjast þeim og grípa þau með inn í söguna með því að hægja á. Þegar ég er að sýna finn ég nefnilega að ef ég fer að flýta mér missi ég af þeim eða þau af mér og ég held ekki athyglinni. Þá er bara að anda djúpt, hægja á, finna tenginguna og þá eru þau aftur með mér. Svo þarf sagan auðvitað líka að vera skemmtileg og spennandi. Börn eiga heimtingu á að efni fyrir þau sé gert af sama metnaði, natni og vandvirkni og efni sem gert er fyrir fullorðið fólk. Oft er viðhorfið líka að efni sem gert er fyrir börn hljóti að vera ódýrara. En það er auðvitað algjör misskilningur. Það sem mér finnst mest spennandi í leikhúsinu í dag er þegar listformum er blandað saman, eins og er að gerast t.d. í dansleikhúsinu og í sýningum Vesturports, þar sem sirkus eða loftfimleikum, myndlistagjörningum, tónlist og guð má vita hverju, er blandað saman við leikhúsið. Ég held að til þess að vera í stöðugri þróun og endurnýjun sem lístamaður sé nauðsynlegt að staldra við og ná í skottið á sjálfum sér og kannski bæta svolitlu við sig. Ég ákvað allavega að endurnýja mig svolítið og er nú aftur sest á skólabekk. í þetta sinn í Listaháskóla íslands að læra myndlist. Myndlistin er auðvitað nátengd brúðuleikhúsinu og það er einmitt þar sem bjóðast svo margir möguleikar til að sameina ólíkar listgreinar. Listaháskólinn okkar býður upp á ótrúlega spennandi og fjölbreytt nám og ég er mjög spennt að sjá hvert þetta leiðir mig. Helga rekur brúðuleikhúsið Tíu firtgur.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.