Börn og menning - 01.09.2011, Síða 6

Börn og menning - 01.09.2011, Síða 6
6 Börn og menning í þessum stutta pistli leyfi ég huganum að reika nokkur ár aftur í tímann og deila með ykkur vangaveltum um málefni sem mér er hugleikið. Ég hef alltaf haft gaman af heimspeki og hef lesið margar bækur sem henni tengjast auk þess að sækja heimspekinámskeið, bæði í námi mínu erlendis og hér heima. Heimspeki snýst að miklu leyti um gagnrýna hugsun sem ég er mjög hlynntur og því sem af henni skapast. Kennsluferill minn hófst i grunnskóla, Viðistaðaskóla, þar sem ég starfaði í fimm ár. í upphafi kennslu átti ég von á því að verða var við gagnrýna hugsun meðal nemenda enda skólastofan kjörinn vettvangur tii slíkrar iðju. Á fyrsta starfsárinu fóru þó að renna á mig tvær grímur. Ég átti mjög erfitt með að virkja gagnrýna hugsun hjá nemendunum þar sem námsefnið bauð ekki sérstaklega upp á hana. Því þurfti ég sifellt að taka kennsluefnið öðrum tökum en ætlast var til svo að nemendur hefðu möguleika á að vinna með efnið á gagnrýninn hátt. Nú má ekki misskilja mig og halda að gagnrýna hugsun sé hvergi að finna í grunnskólum landsins því vissulega er hún þar, hún er bara hvergi höfð sem aðaláhersla námsgreina. Eftir þetta fyrsta ár mitt ákvað ég að ræða við stjórnendur skólans og athuga hvort ég mætti ekki skipuleggja valfag í heimspeki fyrir 9. og 10. bekk þar sem höfuðáhersla yrði lögð á gagnrýna hugsun. Þetta var auðsótt og næsta skólaár hóf ég kennslu í heimspeki. Ég renndi blint í sjóinn með ákveðna hugmyndafræði sem ég síðan mótaði áfram eftir þvi hvernig nemendur mínir tóku efninu. (stuttu máli sagt byrjaði ég á Sókratesi og færði mig síðan nær og nær nútímanum og að endingu tók ég fyrir núlifandi heimspekinga. Ég fór yfir hugmyndafræði hvers heimspekings fyrir sig og lét nemendur nálgast efnið á sinn hátt og móta sínar hugsanir út frá þvi. Þannig sköpuðust mjög líflegar umræður. Þessi aðferðafræði sló í gegn hjá krökkunum og áhuginn varð svo mikill að tilhlökkun var að mæta í tímana. Á næsta skólaári hafði nemendafjöldinn margfaldast og skipta þurfti nemendum upp í nokkra hópa. Eins og kennara er siður þróaði ég námsefnið áfram meðan nemendur drukku það í sig, opnuðu sig og tjáðu sig hver í kapp við annan. Svona gekk þetta í þrjú ár og ég fullyrði að flestir nemendur í 9. og 10. bekk tóku umræddan heimspekiáfanga sem valfag. Nú eru sex ár liðin síðan ég kvaddi þennan góða grunnskóla og hóf kennslu i framhaldsskóla en mér skilst að heimspeki sé enn kennd við skólann. En hver er tilgangurinn með þessari upprifjun? Jú, að fá þig, lesandi góður, til að velta fyrir þér hvort gagnrýnin hugsun fái næga athygli og sé kennd á nógu markvissan hátt í grunnskólum landsins. Undirritaður er þeirrar skoðunar að skólinn væri í það minnsta ekki verr settur ef nemendur fengju þess notið, einhvern tímann á skólagöngunni, að vinna eingöngu með gagnrýna hugsun. Um þetta getum við væntanlega öll verið sammála. Það eru nefnilega ótrúlegir hlutir sem gerast í kollinum á þessum yndislegu börnum, hugmyndir kvikna sem eiga rétt á að fá útrás og skólakerfið á að vera vettvangur slíkra hugmynda. Sem kennari er frábært að fá að upplifa að vinna með nemendum sem hugsa á gagnrýninn máta og skapa með þeim umhverfi þar sem þeir leyfa sér að gagnrýna stefnur og strauma í samfélagi okkar, á uppbyggilegan hátt, því gagnrýni ætti ávallt að skoðast sem rýni til gagns. Börn eiga að fá að segja mér finnst... Höfundur er framhaldskólakennari og áhugamaður um heimspeki

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.