Börn og menning - 01.09.2011, Síða 10

Börn og menning - 01.09.2011, Síða 10
10 Börn og menning Helga Birgisdóttir Og þá mega stór skrímsli gráta Skrímslabækur þeirra Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Gúettler og Rakelar Helmsdal eru í dag orðnar sex talsins (útg. 2004-2010). Allar fjalla þær um sömu aðalpersónur, litla skrímslið og stóra skrímslið, vináttu þeirra og hvernig eitt skrímsli getur hjálpað öðru við að takast á við óöryggi sitt og ótta. Vandamálin sem félagarnir glíma við eru kunnugleg en hið óvanalega við sögurnar er að vinirnir tveir eru skrímsli - ættu ungir lesendur ekki einmitt að vera hræddir við skrímsli? Ókindin lamdi það allt fram á nátt Ótti, vald og refsing hafa verið viðfangsefni barnasagna frá upphafi vega. Viðvörunarsögur (e. cautionary tales) eru meðal fyrstu sagna sem samdar voru sérstaklega fyrir börn og ( þeim er brugðist mjög harkalega við þegar börn óhlýðnast yfirboðurum sínum. Minnsta yfirsjón hefur í för með sér barsmíðar, limlestingar og jafnvel dauða - alla jafna kvalafullan.1 Þetta á ekki aðeins við sögur og vísur úti ( hinum stóra heimi heldur einnig (slenska texta. f greininni „Blóðug fortíð" (2001) bendir Dagný Kristjánsdóttir á „Ókindarkvæði", kvæðið um litla stúfinn sem datt niður um gat, beint til ókindarinnar sem barði hann sundur og saman „allt fram á nátt".2 Drengnum ( kvæðinu er refsað fyrir að álpast einn í burtu frá bænum - fyrir að skora vald hinna fullorðnu á hólm og brjóta reglur samfélagsins. Stúfurinn ( kvæðinu er barinn svo harkalega að úr honum hrýtur bæði tönn og augað blátt og hæpið er að nokkur barnabókahöfundur myndi skrifa jafn ofbeldisfulla frásögn í dag. Sömuleiðis er orðið sjaldgæft að barnabækur hræði börn til hlýðni. Ótti er þó ekki horfinn úr barnabókum en nú er mun algengara að þeim sé ætlað að hjálpa ungum lesendum að takast á við ótta sinn fremur en að gera 1 Kimberley Reynolds. 2007. Radical Children's Literature. Palgrave MacMillian, England. 2 Dagný Kristjánsdóttir. 2001. „Blóðug fortíð: Um uppeldisstefnu og ævintýri". Börn og menning 16(2):26-33.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.