Börn og menning - 01.09.2011, Síða 18

Börn og menning - 01.09.2011, Síða 18
18 Bðrn og mennmg Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Sögukerlingar heima og að heiman Vorið 2011 fékk ég styrk frá Hlaðvarpanum - menningarsjóði kvenna á íslandi - til að leita uppi íslenskar þjóðsögur þar sem stelpur eru í aðalhlutverkl og endurskrifa þær. Afraksturinn kom úthjá Bókaútgáfunni Æskunni um jólin sama ár. Bókin heitir Sjáðu svarta rassinn minn og birtir fimm kvenvænar og endurskrifaðar þjóðsögur myndskreyttar af systur minni, Þóreyju Mjallhvíti. Með þvi að safna þessum sögum saman vildum við vekja athygli á hlutverki stelpna í sögu okkar og menningu. íslenskar þjóðsögur segja sögur frá tímum sem löngu eru liðnir og endurspegla viðhorf horfinna kynslóða. Flestar sögurnar segja frá ævintýrum stráka í þjóðsagnalandinu íslandi, en hér og þar er að finna sögur þar sem knáar og snjallar stelpur bregða á leik. Sjáðu svarta rassinn minn kynnir fimm sterkar kvenhetjur úr islenska sagnaarfinum fyrir börnum. Mér er annt um íslensku þjóðsögurnar. Sem barn sat ég tímunum saman við lestur ævintýra- og þjóðsagnabóka, og það vareitt slíkt kversem gerði mig að femínista. Ég hef líklega verið átta ára þegar ég las bók sem mér fannst einstaklega skemmtileg. Ég las hana aftur og aftur og ímyndaði mér að ég væri stelpan sem þar var í aðalhlutverki, að ég væri alveg eins góð og iðin, yfirlætislaus og að sjálfsögðu greifynja. Þessi bók var Grishildur góða og fleiri sögur. Fyrirmyndin Gríshildur góða Gríshildur góða var ekki góð fyrirmynd fyrir litla telpu á níunda áratugnum. Sagan af Gríshildi góðu birtist fyrst á prenti á fjórtándu öldinni í Tidægru Boccaccios og segir frá hínni undurfögru og undurgóðu Gríshildi, fátækri bóndadóttur sem giftist greifa sem heillast af fegurð hennar. En eftir giftinguna efast greifinn um góðmennsku Gríshildar. Hann ákveður að láta hana ganga í gegnum nokkrar prófraunir svo hún geti sannað honum að hún sé efni í góða eiginkonu. Greifinn fyrirskipar að börnin þeirra tvö séu tekin frá henni strax eftir fæðingu og drepin. Hann bíður þess að sjá hvort hún mótmæli, en það gerir hún ekki heldur og hlýðir skilyrðislaust. Síðan segist greifinn vera orðinn leiður á Gríshildi og skilur við hana. Gríshildur snýr þolinmóð aftur til föðurhúsa. Greifinn lætur njósna um hana, en njósnararnir segja allir að hún sinni húsverkum sínum í kotinu af mikilli skyldurækni og kvarti ekki. Árin líða og loks tilkynnir greifinn að hann ætli sér að giftast aftur, í þetta skipti tólf ára gamalli

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.