Börn og menning - 01.09.2011, Side 23
Pabbi les
23
gæta að skrímslum, svo dæmi séu tekin,
allt þar til hann liggur svefndrukkinn á
gólfinu við rúmstokk sonar síns og Einar
Áskell neyðist sjálfur til að breiða teppi yfir
aðframkominn föður sinn.
Kári hefur einnig farið að fordæmi Eínars
Áskels í bókinni Bittu slaufur, Einar Áskell.
Hann lætur sér þó ekki nægja að binda
saman stóla, borð og aðra innanstokksmuni,
heldur hleypur hann oft og tíðum í humátt
á eftir foreldrum sinum og festir þau saman
með alls kyns rembihnútum. í bókinni hefur
Einar Áskell, þá fimm ára, lært að hnýta
slaufur og öfugt við það sem gerist i Góða
nótt, Einar Áskell verður uppátækið föður
hans að lokum til góðs því hann þarf ekki
lengur að beygja bogið bakið til að hnýta
skó sonar síns. Það er því engin ástæða að
örvænta yfir frekari lestri Kára á Einari Áskeli
og uppátækjum hans ef fer sem horfir og
lífið heldur áfram að herma eftir listinni.
Höfundur er útgefandi og
íslenskufræðingur