Börn og menning - 01.09.2011, Síða 24
24
Börn og menning
Guðrún Elsa Bragadóttir
Bók um frið, stríð, vináttu, lifnaðarhætti
flugna og allt sem skiptir raunverulega máli
Hvað er hægt að segja um flugu sem
stöðvar stríð og lendir á forsíðum allra
helstu dagblaða heimsins? Bókin sem
hlaut íslensku barnabókaverðlaunin í ár,
Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi
Björgvinsdóttur, fjallar um flugur sem eru
ósáttar við óréttlæti heimsins og sameinast
um það eina markmið að koma á friði hjá
dýrum og mönnum. Stríð hafa nefnilega
ekki bara skelfileg áhrif á líf mannanna,
heldur líka tegundanna sem búa með þeim.
Eins og til dæmis húsflugna.
Flugurnar flýja heimili sitt
Húsflugurnar Kolkex, Hermann Súkker og
Flugan hafa búið lengi í sama húsinu, með
sama fólkinu og lifað hefðbundnu og friðsælu
flugnalífi, þegar svolítið hræðilegt gerist.
Heimilisfólkið ákveður að panta rafknúinn
flugnaspaða á sérstöku sumartilboði, sem
þulurinn í Sjónvarpsmarkaðinum segir
„snöggsteikja allar tegundir flugna á
augabragði með vægu raflosti"
(bls. 14). Flugurnar verða bæði
áhyggjufullar og hryggar yfir
þessari ákvörðun, enda líður
þeim vel á heimilinu þar sem
þær hafa hingað til aðallega
dundað sér við jafn sakleysislegar athafnir
og að spjalla, borða, horfa á sjónvarpið og
skoða heimskortið sem hangir upp á vegg.
Þótt manneskjurnar hafi slegið til þeirra af og
til, hefur ekkert búið flugurnar undir þetta.
Á meðan flugurnar bíða eftir að
böggullinn sem mun að öllum líkindum ráða
örlögum þeirra detti inn um dyralúguna er
heimildamyndaþáttur sýndur í sjónvarpinu.
Kolkex, sjónvarpssjúklingurinn í hópnum,
kemur fljúgandi á fullri ferð um leið og
þátturinn er búinn með mikilvægar fréttir:
„Það eru til manneskjur sem hreinlega
elska húsflugur," sagði hún svo.
„Þessar manneskju heita munkarnir I
Nepal. Þátturinn f sjónvarpinu var um
þá og það besta er að þeir eru til í
alvörunni!"
„Manneskjur sem elska húsflugur?"
átu flugurnar upp eftir henni. „Til í
alvörunni?"
„Já," svaraði Kolkex um hæl og
endurtók síðan orðrétt það sem sagt
hafði verið í sjónvarpinu: „Munkarnir í
Nepal gera ekki flugu mein!"
Flugan sem stöðvaði striðið, bls.
21-22.
Flugurnar ákveða þá að flýja heimili sitt
og leita athvarfs hjá munkunum friðsælu í
þangað koma flugurnar
við f borginni Assambad, þar sem þær
kynnast gestrisnum flugum sem búa á
kebabstaðnum Grillað kjöt. Þótt við vitum
aldrei fyrir vfst hvaðan þær Kolkex, Flugan
og Hermann Súkker eru, verður alveg Ijóst
að þær eru vestrænar flugur þegar þær
koma til þessarar fjarlægu borgar, arabiska
letrið er þeim framandi og þær lýsa blæjum
heimamanna sem „húfum sem ná alla leið
niður á tær". í Assambad kynnast flugurnar
annarri fjandsamlegri hlið mannfólksins, því
þar ríkir mikill ófriður og von er á árás frá