Börn og menning - 01.09.2011, Side 25

Börn og menning - 01.09.2011, Side 25
Flugan sem stöðvaði stríðið 25 herjum stríðsforingjans í Bad á hverri stundu. í þetta sinn kemur það flugunum þó ekki svo mjög á óvart að mennirnir skuli skaða hver annan, dýrategund sem er svo brjáluð að henni dettur í hug að búa til bráðdrepandi rafmagnsflugnaspaða er til alls líkleg. Enginn friður fyrr en stríðinu er lokið Flugurnar fara með rútu frá Assambad til Nepal, þar sem þær dvelja meðal munkanna í nokkra daga. Það er notalegt að búa með mönnum sem lifa í sátt við allar lífverur, en flugurnar sakna fljótt Assambad og vina sinna, sem þær óttast að séu í mikilli hættu vegna stríðsins sem var um það bil að bresta á þegar þær yfirgáfu borgina. Þær Flugan, Flermann Súkker og Kolkex geta ekki dvalið I mestu makindum ínnan klaustursveggjanna á meðan þær vita af vinum sínum í neyð. Því leggja þær á ráðin um að stöðva strfðið og snúa aftur til Assambad. í þessum síðustu köflum bókarinnar fer frásögnin heldur betur á flug, atburðarásin er hröð og spennandi og loks sorgleg og falleg á sama tíma. Flugurnar, sem undu sér vel við sjónvarpsgláp og sykurát í upphafi bókar, verða aktivistar sem berjast fyrir friði með beinum aðgerðum. Við lestur þessa kafla áttar lesandi sig á því hversu mikilvægt það er að bækur eins og Flugan sem stöðvaði stríðið séu skrifaðar. Fjallað er um erfiðar og alvarlegar staðreyndir um lífið þannig að von vaknar um að ef til vill sé hægt að gera eitthvað, að baráttan sé ekki töpuð. Svo er frásögnin líka fyndin. Örlög flugna Það verður að viðurkennast að undirrituð renndi svolítið hratt í gegnum bókina við fyrsta lestur, af einskærri forvitni um það hvernig fluga getur eiginlega stöðvað stríð og hvernig í ósköpunum dagblöðin gátu komist að því að henni væri fyrir að þakka. Það veitti því ekki af öðrum lestri, en á meðan á honum stóð kom í Ijós hversu mikið af skemmtilegum smáatriðum er að finna á hverri blaðsíðu. Það skemmtilegasta við söguna er það að hún er sögð frá sjónarhorni flugna. Úrræðagóðra, fyndinna og í alla staði mjög viðfelldinna flugna. Þetta verður til þess að heillandi myndum er brugðið upp af lífi þeirra — til dæmis er því lýst nokkuð ítarlega hvað ber fyrir augu Flugunnar og Flermanns Súkker þegar þær láta sig hanga öfugar á sykurkarsbrún við sólsetur og virða fyrir sig litadýrðina í sykurhrúgunni — á meðan lítið púðurfer í að lýsa manneskjum. Sjónarhornið er þó nauðsynlegt til að lesendur nái að tengjast flugunum og láti sig örlög þeirra varða. Á ferðalaginu sýna flugurnar ekki aðeins ótrúlegt hugrekki, heldur fá hæfileikar þeirra á ólíkum sviðum líka notið sín. Kolkex hefur lært margt um mennina á sjónvarpsáhorfi sínu, Flugan ratar úti í hinum stóra heimi vegna þess að hún hefur sérstakt dálæti á heimskorti og hefur því rannsakað það ótal sinnum skref fyrir skref og Hermann Súkker hefur metnað fyrir því að skrifa bók um húsflugur, en það er einmitt það sem þær gera eftir ævintýrið mikla: þær skrífa bók um reynslu sína. Frásögnin er því nokkurs konar metafiksjón eða sjálfssaga, í lok bókar standa flugurnar með handrit hennar í framfótunum og skrifa undir það ásamt félögum sínum í Assambad, eins og til að votta um sannleiksgildi frásagnarinnar. Þannig tekst flugunum að miðla reynslu sinni af því að stöðva stríðið, ásamt heilmiklum fróðleik um húsflugur, til mennskra lesenda. Ég fæ ekki betur séð en að íslensku barnabókaverðlaununum hafi verið vel varið þetta árið. Höfundur er meistaranemi í bókmenntafræði

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.