Börn og menning - 01.09.2011, Page 26
26
Börn og menning
Brynja Baldursdóttir
Eldfjöll og óskabörn
Börn á íslandi hafa úr fjölda skáldsagna að
velja þegar kemur að því að njóta lestrar
en hvað annað stendur þeim til boða að
lesa? Við lauflétta athugun á Bókatíðindum
síðustu þriggja ára kemur I Ijós að börn
geta rýnt I matreiðslubækur, lesið sér
til um íslensk skrímsli, örvað mál sitt og
tjáningu með málörvunarbókum, lesið um
margvísleg afrek manna og dýra og svo
mætti áfram telja en þó ekki lengi. Það er
ekki hægt að segja að hér sé um auðugan
garð að gresja því fjöldi fræðibóka sem
gefnar eru út fyrir börn eru aðeins tvær til
fjórar á ári.
Tvær bækur fræðilegs eðlis frá þessu ári verða
hér teknar til athugunar. Þær eru Af hverju
gjósa fjöll? eftir Þorstein Vilhjálmsson og Jón
Gunnar Þorsteinsson, með myndskreytingum
Þórarins Más Baldurssonar, og Óskabarn
- bókln um Jón Sigurðsson eftir Brynhildi
Þórarinsdóttur, myndskreytt af Sigurjóni
Jóhannssyni.
Hvað segir lesandanum að þessar tvær
bækur séu ætlaðar börnum? Á bakhlið
annarrarstenduraðhúnséætluðfróðleiksfúsu
fólki frá átta ára aldri.1 Aldur lesenda er ekki
tilgreindur á hinni bókinni en höfundur segir í
stuttu viðtali við blaðamann Morgunblaðsins
að þessi bók sé ætluð börnum frá átta ára.2
Hvaða fleiri þættir undirstrika að bækurnar
hæfi börnum? Þær eru báðar ríkulega
myndskreyttar spjalda á milli, önnur skartar
eingöngu teiknuðum myndum en hin bæðí
teikningum og Ijósmyndum. Er það nóg til að
bókin fari í hillur barnadeilda bókabúðanna?
Líklegast ekki. Útlitið verður að höfða til litlu
lesendanna; áhugaverður titill, spennandi
kápa. Miklu skiptir að letrið sé þægilegt
Vísindavefjarins. Hún er 57 síður og nálægt
A4 að stærð. Svörin eru stutt og hnitmiðuð,
ná flest yfir eina síðu með skýrum og
litskrúðugum teikningum sem skýra út og sýna
staðhætti. Myndír Þórarins Más Baldurssonar
eru vandaðar og falla börnum örugglega
vel í geð en þau sem þekkja bækurnar um
Maxímús Músíkús sjá kunnuglega drætti.
-SpUTningar og svör
-y) a.f Vísindavefnum
!dgo
Óskabam
Bókin um
Jón Sigurðsson
aflestrar og sé þannig að það hvetji börnin
til að stauta sig fram úr orðunum. Hvað
með orðanotkun? Börn gætu hnotið um
sum orðin þarna en stundum er hollt að
Siguijón Jóhannsson
myndskrcytti
Spurningarnar
snúast allar um eld í iðrum jarðar, hvernig
hann brýst upp á yfirborðið og hvaða
afleiðingar slíkt hefur fyrir land og þjóð. Þær
beinast ekki einungis að eldvirkni íslands
heldur teygja þær sig (raun um alla jörð og
Brynhildur Þórarinsdóttir
læra ný orð. En nægir þá stórt letur og
hæfilega þung orðanotkun til að gera þessar
fræðibækur tiltölulega barnvænar?
Bókin Af hverju gjósa fjöll? varð til úr
fjörtíu spurningum um eldgos sem bárust til
1 Þorsteinn Vilhjálmsson og Jón Gunnar Þorsteinsson.
(2011). Af hverju gjósa fjöll? Þórarinn Már Baldursson
myndskreytti. Reykjavík: Mál og menning.
2 Óskabarnið á nýrri bók. (2011, 17. júní).
Morgunblaðið. Sótt 30.9.2011 af http://mbl.is/
gagnasafn/grein