Börn og menning - 01.09.2011, Side 27

Börn og menning - 01.09.2011, Side 27
27 jafnvel út fyrir hana. Þar má nefna spurningu númer 21: „Segir íslenskt móberg okkur eitthvað um líf á Mars?" (bls. 29) í svari kemur fram að móberg megi finna á Mars sem sé vísbending um að þar hafi orðið eldgos undir jökli. Bókin er mikið þarfaþing, sérstaklega nú þegar svo mikil eldvirkni hefur hrist upp í okkur íslendingum. Gosið í Eyjafjallajökli kallar fram eina spurningu, númer 33: „Af hverju var enginn hræddur við gos í Eyjafjallajökli?" (bls. 44-45). í svarinu má finna þá vitneskju að vísindamenn vissu lítið um virkni öskjunnar sem finna má í kolli jökulsins. Svörin sem vísindamennirnir gefa við hverri spurningu eru auðskilin og skýr og ættu að vera aðgengileg ungum lesendum án þess að vera of barnaleg að mati hinna fullorðnu sem vilja einnig lesa sér til gagns og gamans. Skýringarmyndir sem sýna vel landfræðilega afstöðu gosbelta á Islandi og þau flekamót sem finna má í Evrópu eru fremst og aftast í bókinni. Þá er að líta á bók Brynhildar um Jón Sigurðsson, sjálfstæðishetju 19. aldar. Hún er 68 síður í brotinu 22x22 sm. Vatnslitamyndir Sigurjóns Jóhannssonar er að finna á næstum hverri opnu og eiga þær að gefa lesanda innsýn í líf Jónsfrá barnæsku. Ekki er beinlínis hægt að segja að Jón hafi verið glaðlegt barn því hann er frekar þungbúinn á myndunum. Það sama má segja um Ingibjörgu konu hans, þrátt fyrir að hún hafi ekki lagt í vana sinn að brosa á Ijósmyndum hefði teiknari alveg mátt sveigja munnvik hennar upp á við, svo sem á bls. 60 þar sem þau hjón standa keik saman. Ýmsum á sennilega eftir að bregða í brún þegar þeir sjá blaðsíðu 36. Þar blasir við mynd af Fjölnismönnum en tveir þeirra eru eins og augnstungnir, hvítir kringlóttír blettir í augna stað. Líklegast eiga þeir að vera með gleraugu en eitthvað hefur teikningin mistekist. Mikill texti er ( bókinni - Brynhildur byrjar á léttu nótunum en svo þyngist textinn og erfið orð skjóta upp kollinum, erfíð fyrir átta ára börn og jafnvel eldri. Það er ólíklegt að börn muni lesa bókina sér til skemmtunar, til þess hallast hún of mikið í kennsluátt. Enda segir í viðtalinu, sem fyrr er nefnt, að ekki sé ólíklegt að bókin verði notuð i kennslu - og þá ratar hún í hendur nemenda í áttunda bekk grunnskóla því þeir eiga samkvæmt aðalnámskrá að læra um karlinn hann Jón. Bókin er skipulega upp sett, inn á milli fróðleiks um sjálfstæðishetjuna góðu Eldfjöll og óskabörn koma fróðleiksmolar svo sem kaflar um Kaupmannahöfn og óróa í danska rikinu svo eitthvað sé nefnt. Vekja hefði mátt áhuga ungra lesenda með því að gefa þeim innsýn í líf Jóns sem fjölskyldumanns. En það er ekki gert. Fátt er sagt af lífi hjónanna í Jónshúsi, hvað þau aðhöfðust á tyllidögum, hvernig þeim leið, hverjir komu í heimsókn. Engar myndir eru frá heimíli þeirra, ekki einu sinni tilraun til að teikna upp heldri manna heimili. Jóni og Ingibjörgu varð ekki barna auðið en þau tóku að sér Sigurð systurson Jóns. Lesandi fær að fylgjast með honum sem ungum sveini í Kaupmannahöfn hjá þeim hjónum en svo bara gufar hann upp svo spurningum um hann er ósvarað. Hvað lærði hann? Eignaðist hann fjölskyldu? Hvar bjó hann? Gera má ráð fyrir því að börnum þyki gaman að vita hvað hefur orðið um hann, hversu vel honum vegnar eftir að unglingsárum sleppir. Kaflinn um tækni á 19. öld er skemmtilegt uppbrot á annars þurri umfjöllun um Jón og sjálfstæðisbaráttuna. Þar minnist höfundur á nokkrar tækninýjungar og segir Jón hafa misst af ýmsum uppfinningum sökum þess að vera uppi á rangri öld. Mikinn fróðleik er að finna á spássíum bókarinnar en letrið er með öðrum lit en letur megintextans auk þess sem spássíutextinn er skáletraður. Þetta getur virkað truflandi, þá sérstaklega þegar litið er til þess hversu mörg börn eiga við lestrarvanda af ýmsum toga að stríða. Þær bækur sem hér er fjallað um eru ólíkar, bæði að efni og útliti. Heldur hallar á Jón sjálfstæðishetju því bókin um eldgos og eldfjöll er svo lífleg og fallega myndskreytt að fái barn að velja er enginn vafi á hvor bókin verði fyrir valinu. Höfundur er framhaldsskólakennari

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.