Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 28

Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 28
Sigurður H. Pálsson Góðir galdrar eru til Um uppfærslu Borgarleikhússins á „Galdrakarlinum i Oz" Einhverju sinni var mér kennd sú regla að tvennt ætti ekki heima á leiksviði: Börn og dýr. Þetta má skilja á a.m.k. tvo vegu. Annars vegar er þessum skepnum trúandi til að taka upp á einhverju óvæntu þegar sístskyldi. Hins vegar bætistsvo það við sem ekki er minna um vert, að börn og dýr búa yfir slíkum innbyggðum sjarma að jafnvel þrautreyndir leikarar með sviðsnærveru á háu stigi geta átt fullt I fangi með að halda athygli áhorfandans þegar þess háttar senuþjófum er hleypt á svið. í uppfærslu Borgarleikhússins á Galdra- karlinum I Oz hefur leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson ákveðið að láta þessa gullnu reglu lönd og leið. Hann opnar sviðið fyrir fríðum hópi barna og unglinga, og til að fullkomna glæpinn stígur á sviðið þegar í upphafsatriðinu ákaflega snotur tfk af Vesturhálanda-terrier-kyni. Ekki er hægt að segja annað en að þessi djarfi leikur Bergs gangi upp. Barnahópurinn kemur fram í ýmsum ólíkum hlutverkum en sýnir allan tímann af sér mikið öryggi, einbeitingu og útgeislun, auk þess sem börnin hafa hvert um sig greinilega söng, dans og leik vel á valdi sínu. Á köflum minnti hópurinn einna helst á vel smurt gangverk. Af tíkinni Myrru er það að segja að hún virðist afburða vel upp dregin og hlýðir í flestu, ef ekki öllu. Sérlega þótti mér skemmtilegt hvernig hún hnusaði af líkamsleifum Austurnornarinnar, og þætti mér gaman að vita hverju hefur verið smurt á hræið. Þegar nokkuð var liðið á sýninguna tók ég eftir því að hundinn vantaði stundum þegar rökrétt hefði verið að hann væri á ferð með Dóróteu. Hvort sem með þessu er verið að hlífa dýrinu eða draga úr senuþjófnaði þá er það eflaust vel til fundið. Frammistaða annarra leikara er í öllum aðalatriðum með ágætum, án þess að það verði rakið ítarlega hér. Svo virðist sem leikstjórinn hafi reynt, og tekist að mestu, að losna við þennan týpíska óeðlilega hátíðnitalanda sem vill loða við leikið barnaefni - þennan sem fullorðnir hafa yfirleitt ímugust á, og fátt bendir til að börn kunni sérstaklega að meta. Öll umgjörð sýningarinnar er í stuttu máli sagt hin glæsilegasta. Leikmynd Snorra Freys Hilmarssonar er dálítið drungaleg, og eykur þannig á ógnina sem er sínálæg í sögunni. Strax í upphafsatriðinu sjáum við bæjarhúsin á heimili Dóróteu í Kansas halla (skyggilega, sem gefur til kynna að einhver skelfing er í uppsiglingu. Nú er sá sem hér skrifar alla jafna enginn sérstakur aðdáandi margmiðlunar í leikhúsi. Oftast nær er hún pirrandi, tilgerðarleg, biluð eða allt þetta I senn. í Oz getur að líta undantekningu frá þessu. Á baktjaldinu er sífellt eitthvað um að vera - ekki einhver myndasýning sem er slitin frá öðru á sviðinu og stelur athygli að óþörfu, heldur bein framlenging leikmyndarinnar. Stundum er erfitt að greina það sem sýnt er á tjaldinu frá hlutum sem standa á sviðinu, og fljótlega hættir sú aðgreining að skipta áhorfandann máli. Lengst af er hreyfingin á tjaldinu ekkert meira

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.