Börn og menning - 01.09.2011, Page 30

Börn og menning - 01.09.2011, Page 30
30 Böm og menning VORVINDAR Vorvindar blésu í Gunnarshúsi IBBY samtökin á (slandi hafa um árabil glaðst yfir vorkomunni með því að veita þeim viðurkenningar sem vakið hafa sérstaka athygli fyrir góð störf að barnamenningu. Sunnudaginn 15. maí voru í Gunnarshúsi afhentar fjórar Vorvindaviðurkenningar. Agnieszka Nowak og Vala Þórsdóttir fengu viðurkenningu fyrir frábæra frumraun á sviði barnamenningar með pólsk-íslensku bókinni Þankaganga - Mystobieg sem kom út á síðasta ári. Bókin samanstendur af stuttum textaköflum Völu, sem eru prentaðir bæði á pólsku og íslensku, og myndum Agnieszku. Bókin þykir endurspegla sérstaklega hugsjónir IBBY um það hvernig bókmenntirnar geta byggt brýr, jafnframt því að vera Ijómandi skemmtilegar. Margrét Örnólfsdóttir hefur um árabil sinnt margþáttuðu menningarstarfi í þágu barna, en árin 2009 og 2010 komu út fyrstu skáldsögur hennar um stúlkuna Aþenu og fyrir þær fékk hún Vorvindaviðurkenningu IBBY. Um er að ræða fjörlegar og skemmtilegar bækur sem eru greinilega skrifaðar af metnaði og virðingu fyrir lesendahópnum. Norræna húsið hefur síðustu ár vakið athygli fyrir vandaða barnadagskrá árið um kring og fyrir það veitti IBBY á (slandi því Vorvindaviðurkenningu í ár. Húsið sér til dæmis fyrir umgjörð barnabókmenntahátíðarinnar Mýrarinnar og hefur að auki staðið fyrir reglulegum sýningum tileinkuðum börnum. Bæði koma börnin í húsið í skipulögðu skólastarfi en einnig er kjörið fyrir fjölskyldur að heímsækja húsið um helgar. Jafnframt er í bókasafni hússins glæsileg barnadeild. Hljómsveitin Pollapönk sendi árið 2006 frá sér sína fyrstu plötu og þar var á ferðinni barnatónlist sem var nokkuð ólík því sem áður hafði heyrst á þeim vettvangi. Síðan þá hafa meðlimir sveitarinnar, þeir Haraldur Freyr Gíslason, Heiðar Örn Kristjánsson, Arnar Gíslason og Guðni Finnsson, haldið áfram á sömu brau't og fengu Vorvindaviðurkenningu fyrir metnaðarfulla barnatónlist sem öll fjölskyldan getur notið saman. Vel var mætt á athöfnina í Gunnarshúsi þar sem viðurkenningarhafar og aðstandendur þeirra glöddust saman með fjöldasöng og kökuáti. Frá vinstri: Margrét Örnólfsdóttir, Haraldur F. Gíslason, Heiðar Örn Kristjánsson, Elías Snær Einarsson, Arnar Þór Gíslason, Freydís Balbina Aradóttir og Pia Viinikka. Elias Snær og Freydís Balbina tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Agnieszku o<í Völu og Pia var fulltrúi Norræna hússins.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.