Börn og menning - 01.09.2011, Page 31

Börn og menning - 01.09.2011, Page 31
IBBY fréttir 31 íslensku barnabókaverðlaunin 2011 Hinn 27. september síðastliðinn voru (slensku barnabókaverðlaunin veitt í tuttugasta og fjórða skiptið og kom verðlaunabókin út sama dag. Vinningshandritið hét að þessu sinni Flugan sem stöðvaði stríðið og er eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, þjóðfræðing. IBBY á (slandi stendur að verðlaununum ásamt Vöku-Helgafelli, Barnavinafélaginu Sumargjöf og fjölskyldu Ármanns Kr. Einarssonar, en verðlaunin voru sett á stofn í tilefni sjötugsafmælis hans árið 1985. Dómnefndin er skipuð fulltrúum frá þessum aðilum, auk tveggja grunnskólanema. Að þessu sinni komu nemendurnir úr Rimaskóla og fór verðlaunaathöfnin fram þar. Bókin er skreytt myndum Þórarins Más Baldurssonar. Eins og undanfarin ár bárust tugir handrita i keppnina og dómnefnd var því vandi á höndum við valið. ( umsögn dómnefndar um Fluguna sem stöðvaði stríðið stendur: „Að mati dómnefndar er þetta merkileg saga sem tvinnar saman mikilvægan boðskap og diliandi skemmtilega frásögn. Söguhetjurnar eru óvenjulegar og veita lesendum nýja sýn á hversdagslega hluti. Sagan flytur sterk skilaboð um frið en jafnframt sýnir hún að þeir litlu geta áorkað mikiu ef þeir standa saman." IBBY á Islandi sendir Bryndísi hamingjuóskir. Tilnefningar á Heiðurslista (slandsdeild IBBY hefur valið þrjár bækur á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna. Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í Lundúnaborg í september 2012 og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim i tvö ár. Heiðurslisti IBBY-samtakanna er lykilþáttur í því starfi samtakanna að stuðla að alþjóðlegum skilningi með hjálp barnabóka og þykir miklu máli skipta að þær bækur sem á hann veljast séu dæmi um það besta sem gerist ( barnabókaútgáfu á landinu. 7.'CMs“”A™OTraMatIr [ flokki frumsaminna skáldverka var tilnefnd bókin Þankaganga - Myslobieg eftir Völu Þórsdóttur og Agnieszku Nowak, sem fengu Vorvindaviðurkenningu IBBY á Islandi vorið 2011. í flokki myndabóka var tilnefnd bókin Arngrímur apaskott og hrafninn eftir Kristínu Arngrímsdóttur, en Kristín fékk Vorvindaviðurkenningu IBBY á íslandi vorið 2010 fyrir bókina Arngrímur apaskott og fiðlan. ^U3nmur ,\apa^otr foafnú I flokki þýðinga var tilnefnd bókin Húsið á Guðmundar Andra Thorssonar. bangsahorni eftir A. A. Milne í þýðingu ;](tísið ii gflflgsaHomi

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.