Börn og menning - 01.04.2014, Qupperneq 6
Arnþór t Fréttablaðið
Kristín Eva Þórhallsdóttir
Það þarf heilt þorp ...
um sjónvarpsstöðina PBS Kids
Samkvæmt þekktu bandarísku orðatiltæki þarf heilt þorp til að koma barni til manns, sem vísar til þess að samfélagið í
heild sinni hefur áhrif á uppvöxt og þroska barna, ekki einungis foreldrarnir.
I þorpi samtímans eru fjölmiðlar áhrifavaldar
sem eiga greiðan aðgang að börnum og
geta haft mótandi áhrif á hugsanir þeirra
og hegðun. Oft eru það auglýsingatekjur og
áhorfstölur sem ráða ferðinni og þá vill sú
samfélagslega ábyrgð og áhrif sem fjölmiðlar
hafa á mótandi hugsun barna lúta í lægra
haldi.
Bandaríska almenningssjónvarpsstöðin
PBS Kids er fjármögnuð af frjálsum
framlögum, áskriftum og rikinu og hefur
þvi frjálsar hendur til að búa til barnaefni
þar sem velferð barna er f fyrsta sæti.
Markhópurinn er börn á aldrinum tveggja til
sjö ára og í stefnuyfirlýsingu PBS Kids segir
að mikilvægast sé að reyna að hafa jákvæð
áhrif á börn með því að framleiða fræðandi
afþreyingarefni sem stuðli að almennri velferð
barna og tefli fram jákvæðum fyrirmyndum.
Stefnan er að nýta alla flóru fjölmiðlunar í
þágu barna til að auka þekkingu, hvetja til
gagnrýninnar hugsunar og vekja forvitni.
Þessum markmiðum er náð með framleiðslu
á fjölbreyttum sjónvarpsþáttaröðum, með
því að halda úti líflegum vefsíðum og með
víðtækri áherslu á lestur og lestrarþjálfun
sem meðal annars felst í lestrarviðburðum
um öll Bandaríkin, upplestrarkeppnum
og ráðstefnuhaldi. Árangur PBS Kids er
rmældur í því hversu vel tekst til að auka
velferð barna í Bandaríkjunum en ekki með
auglýsingatekjum. Til dæmis sýnir könnun
sem PBS Kids lét gera í febrúar 2014 að
bandarískir foreldrar bama á forskólaaldri
treysta PBS Kids betur en nokkrum öðrum
miðli til að undirbúa börn fyrir skólagöngu og
að 90% foreldra telja mikilvægt að nýta tækni
og fjölmiðla í þeim undirbúningi. Foreldrar
barna í áhættuhópum (en þangað falla börn
vegna efnahags, kynþáttar eða einhverra
frávika) nýta sér PBS Kids, bæði í sjónvarpi
og á vefsíðum, en efnið nær til níu milljón
heimila þar sem tekjur eru undir meðallagi.
Þessar fjölskyldur hafa minni möguleika á að
búa börn sín undir skólagöngu með því að
senda þau í dýra forskóla eða í einkakennslu
en 63% svarenda í könnuninni sem koma
frá lágtekjuheimilum segjast nota efnið til
að þjálfa börn í lestri og reikningi og þannig
stuðla að markmiðum PBS þar sem þess er
sérstaklega getið að öll börn eigi skilið jöfn
tækifæri, óháð efnahag.
Sjónvarpsefni sem hvetur til lesturs
Minnkandi lestur barna er áhyggjuefni um
allan heim og er sjónvarpinu oft kennt um,
enda benda rannsóknir til þess að það eigi
nokkra sök. Á PBS Kids er reynt að snúa
vörn í sókn og nýta skjáinn til að hvetja
börn til lesturs. í því sambandi má nefna
sjónvarpsþættina Super Whyl, Sesame Street
og Between the Lions og eru sambærilegir
þættir sifellt í vinnslu. Einnig stendur PBS