Börn og menning - 01.04.2014, Page 18

Börn og menning - 01.04.2014, Page 18
18 Börn og menning Gleymdir gimsteinar: barnabókaverðirtína til gersemar úr glatkistunni Hillur bókasafnanna geta verið ævintýri út af fyrir sig. Þar getur maður verið svo heppinn að rekast á nýja spennandi bók sem allir eru að tala um eða gamla og góða vini sem flestir kannast við. Skemmtilegast er þó að finna gleymdu gimsteinana. Það eru bækur sem áður áttu vísan stað í höndum og hjörtum ungra lesenda en hafa af einhverjum ástæðum orðið undir straumi nýrra bóka. Við fengum bókasafnsverði til að velja gleymda gimsteina úr hillum bókasafnanna. Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, Foldasafni illugi jökulsson Silfurkrossinn eftir llluga Jökulsson, útg. 1996, segir frá dularfullum atburðum sem gerast þegar ung fjölskylda flyst í nýtt hús. Systkinin Gunnsi og Magga þurfa ekki aðeins að glíma við hvarf heimiliskattarins heldur sækja að þeim alls konar ógnir sem virðast búa í þessu skelfilega I bókinni Markús Árelíus eftir Helga Guðmundsson, útg. 1990, segirsamnefndur köttur frá lífi sínu og fjölskyldunnar sem hann býr með. Frá sjónarhorni kattarins verða hversdagslegustu hlutir alls ekki sjálfgefnir og það gerir söguna hnyttna og skemmtilega. Salómon svarti og Bjartur eftir Hjört Gíslason, útg. 1961, segir frá tvíburabræðrunum Fía og Fóa sem hafa tekið að sér hrútinn Salómon svarta og hvíta hrafnsungann Bjart. Bókin lýsir þorpslífi um Strákurinn með silfurhjálminn eftir Hanne Kvist, útg. 2004, fjallar um hugrakka drenginn Jón sem fer að leita að svartvængjuðu litlu systur sinni sem kaldrifjuðu foreldrar hans seldu burt. Með honum slæst íför drykkfelldur, frekar huglaus en góðhjartaður bílstjóri og lenda þeir í ýmsu saman í þessari óvissuför. miðja 20. öld sem Salómon og Bjartur krydda heldur betur með uppátækjum sínum. Bókin EplasneplareftirÞóreyju Friðbjörns- dóttur, útg. 1995, byggir á bréfaskrifum Breka Bollasonar til afa síns sem hann skrifar á nýju „eplatölvu" heimilisins. Hann segir afa frá daglegu lífi sínu, skólanum, íþróttunum og vinunum á einlægan og lifandi hátt.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.