Börn og menning - 01.04.2014, Síða 22

Börn og menning - 01.04.2014, Síða 22
22 Börn og menning Á borðinu voru dýrindis pönnukökur, Dag einn vaknaði Sóla og fann að hún var eitthvað ólík sjálfri sér. Hvaðgat veriðað? Hún fór fram úr og klæddi sig eins og alla aðra morgna. Síðan kallaði mamma á hana í morgunverð Teikningarnar eru hins vegar svolítíð stirðar en fjölbreytt áferð klippimyndanna glæðir þær lífi. Titill verksins ber með sér grunnhugmynd sögunnar, sem hverfist um ákveðinn viðsnúning. Aðalpersónan Sóla fæddist brosandi og er sannkallaður gleðigjafi. Hún hefur góð áhrif á fólk hvert sem hún fer og það brosa allir út í eitt. Dag einn breytist allt. Sólu líður undarlega, hún veit ekki hvers vegna, og hún hagar sér á annan hátt en venjulega. Hún er dónaleg við mömmu sína og svarar henni með skætingi þegar hún býður henni dýrindis pönnukökur. Mamma hennar áttar sig á því með mikilli skelfingu að bros Sólu er horfið: Hafði Sóla týnt brosinu sínu á meðan hún svaf? Og hvar í ósköpunum var þá brosið? Hafði kannski einhver stolið því? Mikil leit upphefst að brosinu góða og allir þegnar ríkisins hjálpa til. Sagan er sögð með ævintýralegum blæ og smáatriði í myndum eins og kastali, skógur, kóróna og fjársjóðskista haldast í hendur við það. Brosið finnst þó hvergi þar til kona nokkur í nornarklæðum fær þá hugmynd að þau ættu að leita á stúlkunni sjálfri. Foreldrar Sólu leita í hári hennar, sokkum og vösum þar til mamma hennar sér skyndilega svolítið. Brosið hefur verið á andliti Sólu allan tímann. Það er bara á hvolfi. Brosinu er snúið við og allir smitast af gleði Sólu á ný. En textinn segir okkur að Sóla eigi eftir að týna brosi sínu aftur og aftur en hún læri með tímanum að finna það aftur á eigin spýtur. Lesandinn er svo spurður í bókarlok: „Hvað gerir þú þegar þú týnir brosinu þínu?" Brosbókin skapar umræðugrundvöll um efni sem getur verið erfitt að koma orðum að. Tilfinningar og líðan eru myndgerð og börn átta sig á því að það er eðlilegt að eiga í glímu við mismunandi skapsveiflur. Máttur brossins er undirstrikaður á eftirminnilegan hátt í þessari innihaldsríku bók og mér finnst við hæfi að Ijúka umfjöllun minni með orðum meistara Megasar: „ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig." Höfundur er teiknarí og bókmenntafræðingur Mamma ákvað að snúa því við en þá kitlaði Sólu svo mikið að hún fór að skellihlæja. Og viti menn, þarna var brosið. Það hafði þá verið allan tímann á andliti litlu stelpunnar, en bara eitthvað öfugsnúið. Hún sá glitta í brosið hennar Sólu, en eins undarlegt og það kann að hljóma þá var

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.