Börn og menning - 01.04.2014, Qupperneq 32

Börn og menning - 01.04.2014, Qupperneq 32
Eddi Ijósmyndari 32 Börn og menning Ævar Þór Benediktsson Af sjónvörpum og öðru sem má grýta út um glugga Hugvekja um miðlun barnaefnis, þróun lesturs og ábyrgð höfunda „Til hvers í fjandanum þarftu bækur? Við eigum sjónvarp!" ( tveimur setningum tekst Roald Dahl að teikna upp mynd af hræðilegum manni - algjöru gerpi sem er ekki bara óheiðarlegur bílasali og ömurlegur faðir, heldur hatar hann bækur í ofanálag. Herra Ormar er gersamlega ömurleg fyrirmynd fyrir unga dóttur sína. Verri persónu en föður Matthildar úr samnefndri bók er varla hægt að finna í barnaverkum Dahl, nema ef vera skyldi nornirnar sem vilja breyta öllum börnum heimsins í mýs og skólastýruna frú Frenju sem grýtir nemendum sínum út um glugga þegar fýkur í hana. Manni finnst þó eins og það sé mjótt á mununum á þessu ágæta liði - því eins og allir vita er fátt verra en að kunna ekki að meta bækur. Seinna hvatti Dahl börn um allan heim, í anda frú Frenju, til að henda sjónvörpunum sínum út um gluggann og koma fallegri bókahillu fyrir í staðinn. [ mars síðastliðnum var haldin í Gerðubergi hin árlega barna- og unglingabókaráðstefna Kveikjum eld, þar sem rætt var um lestur barna og leiðir til þess að kveikja áhuga þeirra. Staðreynd málsins er sú að bókin á undir högg að sækja og þá sérstaklega þegar kemuraðstrákum. Þeirnenna varla lengurað lesa sér til skemmtunar - enda engin ástæða til þegar tölvuleikir verða sífellt flottari og sjónvarpið býður upp á teiknimyndastöðvar sem aldrei sofa. Sem bókaormi veldur þetta mér miklu hugarangri. Ég brenn fyrir barnaefni - hvort sem það er í bók eða á skjá. Meistari Dahl yrði sjálfsagt ekki ánægður með þá fullyrðingu en ég vil þó meina að ef hann hefði séð möguleikana sem sjónvarpið - og svo seinna netið - geta boðið upp á hefði komið annað hljóð í strokkinn. Dahl var nefnilega með þeim klárari sem ég hef kynnst. Eða lesið. Mér finnst alltaf eins og ég þekki hann smá. Ég vil þó taka það fram að í grunninn er ég sammála Dahl; bókin er langbest. Það er nefnilega ekkert sem jafnast á við bók. Nema ef vera skyldi tvær bækur. Ég brenn fyrir barnaefni - en ég get ekki nákvæmlega útskýrt hvers vegna. Líklega er það vegna þess hversu mikil áhrif það hafði á mig þegar ég var yngri. Því það er það sem barnaefni gerir. Það er ekki bara uppfylling. Það hefur áhrif. Ábyrgðin er þess vegna mikil. Með vel völdum orðum höfum við tækifæri til að móta og hafa gríðarleg áhrif á unga lesendur, áhorfendur og hlustendur. Það skiptir máli hvað við segjum, það skiptir máli hvað við gerum - því við og persónurnar sem við sköpum erum fyrirmyndir. Þegar ég var lítill apaði ég eins mikið eftir bókum og sjónvarpi og ég gat. Ég hermdi eftir teiknimyndaröddum Ladda og Arnar Árna þangað til ég gat talsett heilu Andrésblöðin fyrir litla bróður mínn, þegar ég komst að því að Gremlins-myndirnar (sem auðvitað voru bannaðar innan 12) voru bara tvær gerði ég heiðarlega tilraun til að breyta tvennu í trílógíu og þegar mér var tilkynnt að ég þyrfti að fá gleraugu var ég hæstánægður - enda var Bert úr samnefndum dagbókum með gleraugu. Svo var hann líka Ijóshærður! Sem höfundar barnaefnis höfum við ómetanlegt tækifæri, sama í hvaða miðli við birtumst - hvort sem það er tölva, sjónvarp, bók eða jafnvel raunveruleikinn. Við megum ekki haga okkur eins og herra Ormar - við verðum að vera opin fyrir öllum hugmyndum, öllum leiðum til þess að kveikja áhuga og vekja börnin af skjáhvílunni sem svo auðvelt er að detta í fyrir framan sjónvarp og tölvur. Hugar barna eru galopnir og tilbúnir að taka við öllu því sem við höfum fram að Mér finnst..." lýsir skoðunum höfunda fremur en ritstjórnar eða stjórnar IBBY samtakanna.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.