Studia Islandica - 01.06.1956, Síða 79
77
mund biskup í Skálholti, dáinn 1541, en því miður vita
menn ekki um fæðingarstað hans.
Um gang útbreiðslunnar verður líklega ekki mikið
ályktað af tímaröð dæmanna. Því er varla trúandi, að
framburðurinn, sem um er að ræða, eigi upptök sín á
Snæfellsnesi og hafi breiðzt þaðan út norður og suður,
eins og væri, ef dæmatalið gæfi sanna mynd af tíma-
röðinni. Sennilegra er, að útbreiðslumiðið hafi verið
Strandasýsla sunnanverð, Barðastrandarsýsla austan-
verð og Dalasýsla, það svæði, þar sem dæmin koma
þéttast fyrir, eins og kortið sýnir. Þetta er — eins og
þekkingu vorri á landfræðilegum gangi málbreytinga á
Islandi er nú háttað — heldur óvenjulegt útbreiðslumið,
en þessari þekkingu er enn þá mjög ábótavant, og á
hinn bóginn liggur þetta svæði ekki alveg utan við al-
faraveg.
Einkennilegra er, að dæmin þrýtur alveg eftir 1567
(eða 1704? Hér er um afrit að ræða). Hér getur því
varla verið til að dreifa, að framburðurinn hafi fallið
niður eftir þennan tíma — með því að hann lifir enn þá
á vorum dögum —, en þetta getur bent á, að hann
hafi orðið miður áberandi. Betri skýringu finn ég
ekki. Að tala um lagfæringu stafsetningar um þetta
leyti er sem sé fjarstæða. Orðasambandið með þessu
mínu opnu bréfi kemur að vísu ekki eins oft fyrir í Al-
þingisbókum — sem eru framhald Fombréfasafns — og
í því safni, en þó nógu oft til þess, að optnu hefði getað
komið fyrir, ef skilyrðin hefðú verið hin sömu.1
Sem að framan er bent á, er framburðurinn með
-ptn- (réttara: - p^ln -, þ. e. með órödduðu d-i) ekki
óþekktur á Islandi á vorum dögum, og fróðlegt hefði
verið að geta lýst því, hvar hann tíðkast og hvar hann
1) Frá bls. 56 í Alþb. V hefur útgefanda til allrar óhamingju
dottið í hug að færa stafsetningu til nútíðartízku („með því að
Þýðingarlaust þótti að fylgja stafsetningu handritanna"!), og
hver veit, nema nokkur dæmi um optnu hafi verið þegjandi og
hljóðalaust samræmd í opnu.