Fréttablaðið - 09.03.2021, Síða 14
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Íslandsmót fatl-
aðra í frjálsum íþróttum innanhúss
fór fram um síðustu helgi í Kapla-
krika. Þar náði spretthlauparinn
Patrekur Andrés Axelsson að bæta
persónulegt met sitt í tveimur
greinum.
Patrekur Andrés hljóp 60 metra á
7,94 sekúndum og 200 metra á 26,23
sekúndum. Í 60 metra hlaupinu
hljóp aðstoðarmaðurinn á undan
Patreki Andrési í mark og því fékkst
sá tími ekki staðfestur og hlaupið
var dæmt ógilt af þeim sökum.
„Það er mjög þægileg tilfinning
að finna að ég sé á svipuðum stað
og fyrir ári síðan og sé að bæta
mig áfram þrátt fyrir að hafa misst
heilt ár úr í þátttöku á mótum
vegna COVID. Svo var gott að
fyrsta keppnishlaupið með nýjum
aðstoðarmanni, sem ég byrjaði að
vinna með í janúar, í upphafi þessa
árs, hafi gengið vel,“ segir Patrekur
Andrés um hlaupin.
„Sömuleiðis er það gott að við
höfum gert þessi mistök í 60 metra
hlaupinu á þessum tímapunkti en
ekki á einhverju stórmóti. Ég hljóp
svo 200 metra hlaupið einn, þar
sem aðstoðarmaðurinn meiddist á
nára, þannig að það er rúm fyrir enn
meiri bætingu þar.
Það er mikilvægara að fá aðstoð
í 200 metra hlaupinu og svo sýnir
þetta þörfina á því að hafa tvo
aðstoðarmenn til taks eins og ég
er kominn með núna. Ef annar
þeirra forfallast getur hinn hlaupið
í skarðið,“ segir hann enn fremur
um stöðu mála.
Vonbrigði að missa út heilt ár á
þessum tímapunkti á ferlinum
„Fyrir einu ári síðan var ég á góðum
stað, var að bæta mig jafnt og þétt
og setti stefnuna á Ólympíuleikana
í Tókýó. Af þeim sökum voru það
vissulega mikil vonbrigði að missa
heilt ár út, sérstaklega þar sem ég er
á þeim aldri að ég ætti að vera að ná
hápunkti á spretthlaupsferlinum
sem hófst árið 2014.
Nú er ég hins vegar að finna
taktinn aftur og þessir tímar sýna
mér það að ég á góða möguleika
að komast til Tókýó í sumar. Svo er
bara að vona að veiran hrifsi það
ekki frá okkur aftur,“ segir þessi 26
ára gamli hlaupari.
Um áramótin ákvað Patrekur
Andrés að söðla um frá Ármanni,
sem hann hafði keppt fyrir allan
sinn hlaupaferil, og skipta yfir í FH.
Breiðhyltingurinn segir að aðstöðu-
mál hafi skipt mestu þegar hann tók
þá ákvörðun.
Flúði aðstöðuleysið í Reykjavík
„Mér leið mjög vel hjá Ármanni og
þar var ég að bæta mig sem sprett-
hlaupari. Eins og margoft hefur verið
bent á hins vegar þá er aðstaðan fyrir
frjálsar íþróttir óboðleg í Reykjavík
og ég ákvað þess vegna að fara yfir í
FH þar sem aðstaðan er mun betri.
Þar eru aðrar áherslur hvað æfingar
varðar og ég er til að mynda að lyfta
minna og meira einblínt á hraða í
æfingaplaninu.
Lyftingaæfingarnar eru færri en
markmiðið er gæði frekar en magn.
Þó svo að vigtin sé sú sama þá líður
mér eins og ég sé léttari og það er að
skila sér á hlaupabrautinni. Ég er
svo sjálfur að ná betri tökum á fóta-
vinnunni, tek kraftmeiri skref og
sjálfsöryggið í hlaupunum er meira
og meira með hverju hlaupinu sem
ég hleyp.
Næst á dagskrá er Íslandsmótið
utanhúss þar sem stefnan er að
koma mér inn á lista fyrir komandi
Ólympíuleika. Vonandi næ ég bara
lágmarkinu þar en ég hef svo tíma
fram í júní eða júlí til þess að tryggja
mér farseðilinn til Tókýó.
Ég er vongóður um að það takist
og ef ég held áfram að hlaupa eins
og ég hef verið að gera ætti það að
takast,“ segir Patrekur um ástæðu
vistaskiptanna og framhaldið hjá
sér. hjorvaro@frettabladid.is
Þægilegt að finna aftur
taktinn í bætingunum
Patrekur Andrés Axelsson hefur tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrir
ári síðan og heldur áfram að bæta tíma sinn þegar hann fer á hlaupabrautina.
Patrekur Andrés bætti persónulega tíma sína í tveimur greinum um helgina.
FH-ingurinn Patrekur Andrés Axelsson bætti tíma sinn í 60 og 100 metra hlaupi um síðustu helgi. MYND/AÐSEND
Næst á dagskrá er
Íslandsmótið
utanhúss þar sem stefnan er
að koma mér á lista fyrir
komandi Ólympíuleika.
Patrekur Andrés Axelsson
BRU II VENTURE CAPITAL FUND, S.C.A., SICAR
(in voluntary liquidation)
An Investment Company in Risk Capital incorporated as a
Société en Commandite par Actions
Registered Office: 1, Côte d'Eich, L-1450 Luxembourg
Grand Duchy of Luxembourg
R.C.S. Luxembourg B 116 282
(the “Fund”)
NOTICE TO SHAREHOLDERS: GENERAL MEETING
Dear Shareholder,
You are kindly requested to attend the shareholders’ meeting of the Fund (the
“General Meeting”) which will be held at the premises of the Liquidator of the
Fund at 20, boulevard de Kockelscheuer, L-1821 Luxembourg, on April 15, 2021 at
10.00 a.m.
Due to the current exceptional public health situation in Luxembourg and
neighbouring countries and the associated travel restrictions within Europe, the
General Meeting will be exceptionally held without physical presence, in
accordance with the measures adopted by the Luxembourg government and
pursuant to subsequent amendment of the Luxembourg law of June 20, 2020,
September 23, 2020 and November 25, 2020 in light of the COVID-19 crisis, by virtue
of written voting forms.
The abridged agenda of the General Meeting is the following:
AGENDA
1. Acknowledge the unaudited interim Liquidator’s report;
2. Acknowledge the reasons having prevented the closure of the liquidation within
the first, second, third and fourth year;
3. Give discharge to the Liquidator;
4. Resolution of shareholders having undrawn capital commitments to participate in
a capital call;
5. Resolution of shareholders to participate in a cost financing loan agreement with
limited recourse;
6. Resolutions of the shareholders favourable to resolution 5 to sign the cost
financing loan agreement;
7. Acknowledge the conditions to file for bankruptcy according to Luxembourg law;
8. Acknowledge the Liquidator’s legal responsibilities.
The complete agenda is indicated in (i) the Interim Report of the Liquidator dated
1 March 2021 and (ii) the Convening Notice including the voting form.
The aforementioned documents have been sent to the shareholders by registered mail.
Resolutions on the Agenda will require no quorum and will be taken by a simple
majority of votes validly cast at the General Meeting.
To exercise the voting rights in the General Meeting by means of a vote in writing,
the shareholders must register with the Liquidator of the Fund (contact details
hereafter), by returning the duly completed voting form, as well as an identification
document of the voting form’s signatory and proof of signatory power, no later than
8 April 2021. The Liquidator kindly asks the shareholders to send the documents
beforehand by email with the originals followed by post to the contact details
specified hereafter.
Shareholders who for whatsoever reason did not receive their copy of the Interim
Report of the Liquidator and their convening notice including the voting form are
hereby invited to contact the Liquidator.
Any communication or request regardless of the matter needs to be
communicated solely to the Liquidator of the Fund, at Deloitte Tax &
Consulting S.à r.l., 20, Boulevard de Kockelscheuer, L-1821 Luxembourg or by
email to lubruiiventure@deloitte.lu.
Best regards,
For BRU II Venture Capital Fund S.C.A., SICAR (in voluntary liquidation)
The Liquidator
Deloitte Tax & Consulting
HANDBOLTI EHF tilkynnti HSÍ síð-
degis í gær að ákveðið hefði verið
að fresta leik Íslands gegn Ísrael í
undankeppni EM 2022 en leikurinn
átti að fara fram í Tel Avív á fimmtu-
dag. Miklar hömlur er á f lugsam-
göngum til Ísraels og hefur skrif-
stofa HSÍ ítrekað lent í því að f lug
íslenska hópsins til Ísraels hafi verið
fellt niður. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær leikurinn fer fram en fyrri
leik liðanna var einnig frestað. – hó
Aftur frestað hjá Íslandi
Aðalfundur Kælitæknifélags Íslands
Stjórn Kælitæknifélags Íslands boðar til aðalfundar
þriðjudaginn 23. mars 2021.
Fundurinn verður haldinn að Stórhöfða 27, Reykjavík (Rafmennt) og verður
einnig streymt á netinu.
Fundurinn hefst kl. 20:00 og verða streymt á netinu. Hlekkur á streymið
verður einnig sent á þá félagsmenn sem hafa þekkt netföng.
Þeir sem ætla að nýta sér streymi á fundinn, og hafa ekki móttekið hlekk, er
bent á að senda póst á netfang félagsins ktifelagid@gmail.com
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum Kælitæknifélags Íslands
- Hefðbundin aðalfundarstörf
- Önnur mál
- Fræðsluerindi
Stjórn Kælitæknifélags Íslands
Aðalfundur Kælitæknifélags Íslands
Stjórn Kælitæknifélags Íslands boðar til aðalfundar
þriðjudaginn 23. mars 2021.
Fundurinn verður haldinn að Stórhöfða 27, Reykjavík (Rafmennt) og verður
einnig streymt á netinu.
Fundurinn hefst kl. 20:00 og verða streymt á netinu. Hlekkur á streymið
verður einnig sent á þá félagsmenn sem hafa þekkt netföng.
Þeir sem ætla að nýta sér strey i á fundinn, og hafa ekki móttekið hlekk, er
bent á að senda póst á netfang félagsins ktifelagid@gmail.com
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum Kælitæknifélags Íslands
- Hefðbundin aðalfundarstörf
- Önnur mál
- Fræðsluerindi
Stjórn Kælitæknifélags Íslands
9 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT