Fréttablaðið - 09.03.2021, Qupperneq 20
Hildur Eva Einarsdóttir átti upp-
haflega að fermast í mars í fyrra
en fermingunni var frestað fram
í ágúst. Hún vonast til að halda
fermingarveislu í vor en búið
er að fresta veislunni nokkrum
sinnum vegna sóttvarnalaga.
sigriduringa@frettabladid.is
Undanfarin misseri hefur Hildur
Eva haft í nógu að snúast. Hún lék
aðalhlutverkið í stuttmyndinni
Adela, sem fjallar um stelpu sem
verður fyrir einelti og hvernig það
breytir líðan hennar að eignast
hund. Í fyrravetur stóð ferm
ingarundirbúningurinn sem hæst
þegar Hildur Eva fékk þær fréttir
að fermingunni yrði frestað um
nokkrar vikur vegna kórónaveiru
faraldursins. „Ég átti að fermast
þann 29. mars 2020 en mánuði fyrr
greindist fyrsta kórónuveirusmitið
hérlendis, sem setti strik í reikn
inginn. Vegna samkomubanns var
fermingunni frestað fram í ágúst.
Ég varð dálítið svekkt því ég hlakk
aði mjög mikið til þess að fermast,“
segir Hildur Eva, sem var þá þegar
byrjuð að undirbúa fermingar
veisluna sína.
„Ég ætlaði t.d. að föndra og búa
til alls konar skraut. Það var búið
að kaupa fullt af servíettum og ég
hafði búið til fimmtíu servíettu
dúllur. Svo ætlaði ég að skera út
stafina í nafninu mínu, mála þá í
fallegum lit og hengja upp á vegg
en sem betur fer var ég ekki komin
langt með það verkefni,“ segir
Hildur Eva, sem er að læra á þver
flautu og stundar nám í ballett við
Listdansskóla Íslands.
Passaði í fermingarkjólinn
„Ég var búin að fá fermingar
kjólinn en sem betur fer stækkaði
ég ekki mikið á þessum tíma
þannig að ég passaði í hann
þegar ég var fermd þann 30. ágúst.
Fermingardagurinn var mjög
góður. Ég byrjaði daginn á að fara í
hárgreiðslu, síðan fór ég í Háteigs
kirkju og fermdist. Eftir það fórum
við fjölskyldan og fengum okkur
að borða og síðan héldum við í
myndatöku. Eftir þetta allt saman
fór ég heim og við byrjuðum strax
að undirbúa matarboð. Ég bauð afa
og ömmu og guðmæðrum mínum
og eiginmönnum þeirra í mat. Við
vorum tíu talsins og áttum saman
mjög góða stund,“ segir Hildur Eva
og brosir.
Ætlunin var að bjóða ættingjum
og vinum til veislu í október
en þá var sett á tuttugu manna
samkomu bann. Því var ákveðið
að fresta veislunni fram í nóv
ember en það gekk ekki heldur
upp. Næst stóð til að slá upp veislu
í desember en ekkert varð úr því.
Hildur Eva vonaðist til að geta
haldið veislu í janúar eða febrúar
en það gekk ekki heldur. Núna
stendur til að halda fermingar
veislu með vorinu. „Ég er auðvitað
orðin þreytt á þessu en samt er
ég þakklát fyrir að hafa fengið
þennan fermingardag í ágúst.
Hann var skemmtilegur þótt hann
hafi verið öðruvísi en ég átti von á.
Ég horfi á björtu hliðarnar og núna
vonast ég til að geta haft vorveislu
í maí. Veislan verður haldin í sal í
Gufunesi og þar er klifurturn og
útileiksvæði svo krakkarnir geta
vonandi leikið sér úti,“ segir Hildur
Eva bjartsýn.
Hún segir að vissulega sé sér
stakt að upplifa heimsfaraldur.
„Þegar ég verð orðin gömul kona
get ég sagt börnunum mínum og
barnabörnum frá því hvernig það
var að lifa á þessum tímum og
hvaða áhrif það hafði á ferming
una mína,“ segir Hildur Eva.
Eigulegar fermingargjafir
á frábæru verði
Vonast eftir vorveislu
Hildur Eva
segir að hún
sé vissulega
orðin þreytt á
því að fresta
fermingar-
veislunni hvað
eftir annað en
hún er bjartsýn
á að geta haldið
veislu í maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Hildur Eva segist vera þakklát fyrir að hafa fermst í
ágúst en veislunni var frestað. MYND/ KRISTJÁN MAACK
Þegar ég
verð orðin
gömul
kona get
ég sagt
börnunum
mínum
og barna-
börnum
frá því
hvernig
það var
að lifa á
þessum
tímum og
sagt þeim
hvaða
áhrif það
hafði á
ferming-
una mína.
4 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURFERMINGAR