Fréttablaðið - 09.03.2021, Page 48

Fréttablaðið - 09.03.2021, Page 48
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is Alexandra Johansen hársnyrtir segir að á fermingardaginn kjósi margar stelpur að skarta miklum og fallegum liðum og léttum uppgreiðslum með föstum fléttum eða snúningum en strákarnir koma í klippingu fyrir ferminguna og láti það duga. Mikið er um að stelpur fari í hár- greiðslu á fermingardaginn og það er því alltaf nóg að gera á þessum tíma ársins, að sögn Alexöndru, hársnyrti á Manhattan í Egilshöll, en hún hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist hári. „Margar stelpur koma í prufu- greiðslu nokkrum dögum fyrir ferminguna og nýta þá tækifærið og fara í fermingarmyndatöku í leiðinni. Oftast hafa stelpurnar einhverjar hugmyndir um hvernig greiðslu þær vilja. Þær sem koma til mín eru yfirleitt búnar að skoða Instagram-síðuna mína eða leita að fallegum greiðslum á t.d. Pinterest. Þær koma gjarnan með myndirnar til mín og við útfærum þá greiðsluna. En svo eru líka margar sem eru ekki með neinar ákveðnar hugmyndir. Þá er sniðugt fyrir þær að koma í prufu þar sem við gerum mismunandi útfærslu af greiðslum og veljum síðan saman það sem klæðir hverja og eina best,“ segir Alexandra. „Vinsælast í dag eru miklir, fal- legir liðir og létt uppgreiðsla. Þá tek ég litlar skiptingar og krulla allt hárið. Svo er mjög eftirsótt að fá fastar fléttur eða snúninga Léttir liðir og fastar fléttur Alexandra segir margar fermingarstelpur hafa sterkar skoðanir á því hvernig hárgreiðslu þær vilji fá. „Þær koma gjarnan með myndir af fallegum greiðslum til mín og við útfærum þá greiðsluna.“ Eins og sjá má hér að neðan eru liðir afar vinsælir í fermingargreiðslunum árið 2021. sem eru teknir frá andlitinu. Þær stelpur sem koma í stólinn til mín hafa yfirleitt verið að safna hári fyrir fermingardaginn sinn en auð- vitað eru margar með styttra hár sem er líka skemmtilegt. Áður fyrr var alltaf rosa spennandi að fá að klippa sig strax eftir ferminguna en núna halda flestar í síddina eftir ferminguna,“ segir Alexandra. Lifandi blóm í hárið Fermingarhártískan hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár. „Áður fyrr var mikið um stífar uppgreiðslur, alls konar snúninga í hárið og skraut á borð við spennur og steina. „Núna er miklu meira um létta, fallega liði og hárið frjálsara og það fær að njóta sín betur,“ nefnir Alexandra. En er mikið um skraut í hárið nú til dags? „Það er ótrúlega per- sónubundið hvað hver og einn vill fá í hárið á sér. Ég myndi segja að steinar, gerviblóm og þess háttar hafi ekki verið móðins upp á síð- kastið heldur er meira um fallegar spennur með hvítum perlum og lifandi blómum sem er ótrúlega fallegt. Blóm sem heitir brúðarslör hefur verið vinsælt en það kemur alltaf ótrúlega vel út og gefur fal- lega lokaútkomu.“ Þegar talið berst að ferm- ingardrengjum og hártísku segir Alexandra að það sé allur gangur á því hvernig þeir vilji hafa hárið á sér. „Ég hef ótrúlega gaman af því hvað þeir hafa miklar skoðanir á því hvernig klippingu þeir vilja. Oftast er það stutt hár í hliðunum með smá „fade-i“ í hliðunum og síðan er toppurinn tekinn fram og klipptur þvert eða greiddur til hliðar og aftur sem tengist „fade- inu“. Yfirleitt koma strákarnir ekki í greiðslu á sjálfan fermingar- daginn. Þeir koma í klippingu örfáum dögum áður og ég sýni þeim hvernig best sé að greiða sér og hvernig mótunarvörurnar séu settar í hárið og hvaða vörur henta hverjum og einum. Þegar þeir eru komnir með klippinguna og réttar vörur þá yfirleitt vilja þeir greiða sér sjálfir á fermingar- daginn,“ segir Alexandra. Fleiri myndir má sjá á Instagram undir alexjohansenhar Þær stelpur sem koma í stólinn til mín hafa yfirleitt verið að safna hári fyrir ferm- ingardaginn sinn en auðvitað eru margar með styttra hár sem er líka skemmtilegt. Áður fyrr var alltaf rosa spennandi að fá að klippa sig strax eftir ferminguna en núna halda flestar í síddina eftir ferminguna. Létt uppgreiðsla með spennu og lokkar eru vinsælir. Mjúkir lokkar og falleg blóm er fallegt saman. Fastar fléttur og stórir liðir koma vel út ásamt blómum. Fallegar fléttur og lifandi blóm setja svip á fermingar- greiðsluna. Fermingarmöppur og gestabækur Við bjóðum upp á áletrun á nafni og dagsetningu við Reykjalund | 270 Mosfellsbæ Sími 562 8500 | www.mulalundur.is 24 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGUR FERMINGAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.