Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.12.2004, Page 10

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.12.2004, Page 10
Tökum | )\ í rólega á aðventunni Það er tvennt sem í mínum huga má ekki klikka á jólunum. I fýrsta lagi er það skatan á Þorláksmessu og í öðru lagi kanelsnúðar á jóladag. Upp á þetta tvennt heldur fjölskyldan rnikið, segir Svala Norðdahl, varaformaður SFR, sem leggur áherslu á að njóta aðvent- unnar sem hún segir góðan tíma sem hafi upp á svo margt skemmtilegt að bjóða. „Eg hef gjarnan opið hús fyrir mitt fólk á jólaföstunni og elda fiskisúpu. Súpan hefur skapað sér ákveðna hefð í jólaundirbúningi okkar og er merki um að maður á ekki að vera að stressa sig á hlutunum heldur taka því ró- lega. Það er til dæmis allt í lagi að hita aftur upp það sem eldað hefur verið. „I ár ætla ég á tvenna tónleika. Annars veg- ar hjá Mótettukór Hallgrímskirkju og hins vegar hjá Sinfóníuhljómsveitinni,“ segir Svala aðspurð um hvaða menningarviðburði hún ætli að láta eftir sér á aðventunni. Svala er fulltrúi hjá Listdansskóla Islands sem er með jólasýningu í Borgarleikhúsinu þann 19. desember. „Þetta er árlegur viðburð- ur og má segja að eftir þá sýningu hefjist jóla— undirbúningurinn hjá mér á fullu. Þá hefst leit- in að jólagjöfunum, matarinnkaupin og und- irbúningurinn fyrir skötuveisluna sem við höldurn á Þorláksmessu, en hún markar upp- haf jólahátíðarinnar á mínu heimili," segir hún. „Það er orðið að venju að stórfjölskyldan mæti í skötu. Eg bý þannig að það hentar fólki vel að koma við á leið í jólainnkaupin og það hafa mætt aUt upp í 30 manns í skötuna." Að- spurð um skötulyktina segist hún hafa leyst það vandamál fýrir löngu. „Eg læt vatnið ná suðu á eldavélinni, fer svo með pottinn út á svalir á gasgriDið og sýð skötuna þar. Þar með er sú hvimleiða lykt sem fýlgir þessum yndæla mat úr sögunni." Hún segir að ákveðin reglufesta ríki í óreglunni þegar kemur að sjálfum jólamatnum á hennar heimili. „Það er annað hvort kalkúni eða lamba- kjöt - á mínum bæ er ekki framreitt svínakjöt. í forrétt hef ég lax eða rækjur og þegar búið er að skoða innihald jólapakkanna er boðið upp á tertu og heitt súkkulaði," segir hún og bætir við að eitt megi aUs ekki bregðast. „A jóladags- morgun er til siðs að fa sér heita kanelsnúða og drekka heitt súkkulaði með. Þeir sem eru flutt- ir að heiman fa sína snúða afhenta á að- fangadagskvöld. “ Svala segir að hún ásamt systkinum sínum Svala NorSdahl, varaformaður SFR, býSur Jóhönnu Þórdórsdóttur fræSslustjóra SFR, upp ó snúSa. og fjölskyldum þeirra fai sér gjarnan göngutúr saman á jóladag í nágrenni borgarinnar og þá oft um Heiðmörkina. „Það veitir víst ekki af því að hreyfa sig á þessum tíma,“ segir Svala að lokum og lumar um leið að okkur nokkrum uppskriftum. Svölusúpa (fyrir 4) 10-15 hvítlauksrif 1 laukur 1 ltr fisksoð eða (1 ltr vatn + 3 teningar = 1 kjöt,l fisk og 1 grænmetisteningur) 1 dós niðursoðnir heihr tómatar salt (jurtasalt) 1 tsk timiam 1 tsk basilikum 1/4 tsk Ceyenne pipar matarolía 2 stilkar seUerí 5-6 kartöflur 2 gulrætur 1/2 púrruiaukur 1 paprika steinselja Ef notaður er fiskur þá er gott að sjóða 2-4 sneiðar af lúðu eða laxi og eins má hafa 250 gr. af rækjum eða humri. 1 dl hvítvín eða mysa. Fiskurinn léttsoðinn, veiddur upp og kældur, soðið síað, roð og bein fjarlægð. Soðið sett í pott, tómötum og krafti bætt við. Kartöflurnar flysjaðar, skornar í teninga og steiktar í olíu með basihkum og salti. Græn- metið skorið, léttsteikt á pönnu og bætt í súp- una. Léttsteikið lauk og púrrulauk með pressuðum hvítlauksrifum og setjið saman við. Látið sjóða í 15-20 mín. Kryddað með ceyenne pipar og timian. Fiski og steinselju bætt út í rétt áður en súpan er borin frarn. Kúlubrauð (snúðar) 500 gr hveiti ltsk salt 2-3 dl. volgt vatn 3 msk. matarolía 1 msk sykur 1 bréfþurrger AUt hnoðað saman og látið hefast í 1 klst. Deigið slegið niður, hnoðað aftur og búnar tU kúlur, sem settar eru á bökunarplötu og látnar hefast í ca 1 klst. Bakað við 200° eða þar til fal- lega brúnt. I snúðana er notað sama deig nema bætt við einu eggi. Þá er deigið rúUað út, kanelsykri stráð yfir, rúUað upp og búnir tU snúðar. Bak- að á sama hátt í miðjum ofni. Konfekt marsipanterta 4 egg 200 gr. sykur 200 gr. marsipan 1 peli rjómi 50-100 gr. súkkulaði. Egg og sykur þeytt saman, marsipanið mulið út í og þetta þeytt vel. Deigið sett í tvö lausbotna form, sem hafa verið klædd smjör- pappír, og bakað við 200° í 30 mín. Botnarnir settir saman með þeyttum ijóma, súkkulaði brætt og sett ofan á kökuna. Gott er að seija sérríbleyttar makkarónur út í ijómann til að gefa honum jólabragð! 10

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.