Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.12.2004, Blaðsíða 13

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.12.2004, Blaðsíða 13
...lagði allt í sölurnar fyrir dóttur sína Nafn bókar: Sigur í hörðum heimi. Höfundar: Guðmundur Sesar Magnússon og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. Útgefandi:Almenna bókafélagið. Bókin er skrifuð af Þórunni Hrefnu Sigurjónsdóttur og er um Guðmund Sesar Magnússon sem „lagði allt i sölurnar íýrir dóttur sína”. Þetta er sönn saga sem gerist í nútímanum (2002-2004). Sögusviðið er Island og undir- heimar Reykjavíkur. Guðmund- ur Sesar er rúmlega fimmtugur sjómaður og til að fullvissa okk- ur um að hér sé enginn „aum- ingi“ á ferð þá fáum við að skyggnast inn í uppvaxtarárin. Tveggja ára missir hann foður sinn á sjó og eftir það er hann al- inn upp af móður sinni og stjúpa. Fyrir átta ára aldur hafði hann kynnst heimilisofbeldi af eigin raun og er sendur í sveit þar sem hann „fékk að vera í friði". 16 ára er hann kominn í drykkju og eiturlyf og lætur sig ekki muna um að hafa uppi á vonda stjúpanum til að lúskra ör- lítið á honum. Þrátt fyrir erfið uppvaxtarár er sögupersónan orðin óvirk í vímuefnum, vel giftur tveggja barna faðir í Breiðholtinu og búinn að koma sér þokkalega fyrir. En þá birtist, enn og aftur, kaldur veruleikinn þessu lífsreynda hörkutóli, veru- leiki sem fær hann til að beijast og.....bugast. 14 ára dóttir hans var farin að neyta fíkniefna Hún hafði verið lögð í eineld, í HÖR.ÐUM |JEÍMI GUÐMUNDUR SLSAR MAGNÚSSON ÞORUNN HRII NA SIGURJONSDOl IIR átti erfitt með að aðlagast í Breiðholtinu og leiddist út í þessa ógæfu. Kannski ekki ný tíðindi að unglingur leiðist út í fíkniefni en sú staðreynd að fað- irinn bauð eiturlyfjabarónunum birginn eru ný tíðindi á Islandi. Og hvernig þeir svöruðu fýrir sig er ef til vill ekki ný saga hér á landi en hún hefur alla vega ekki birst svo opinskátt áður. Baráttan skilaði dótturinni til baka en eft- ir sat faðirinn, farinn á taugum gjaldþrota og með „haglarann“ við rúrnið. En hann þurfti ekki einungis að berjast við dópið.Til að frelsa dóttur sína þurfti hann aðstoð kerfisins. Það brást. Urræðalaust, hægvirkt og steinrunnið. I þess- ari bók eru það ekki einungis of- beldismennirnir sem fá á bauk- inn heldur og stjórnmálamenn- irnir, Félagsmálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Barna- verndarstofa, barnaverndarnefnd og lögreglan. Allt virðist gagns- laust. Meira að segja lögin virðast standa með ofbeldismönnunum. Þetta er áleitin og ógleyman- leg frásögn föðurs sem barðist hetjulegri baráttu til að vernda fjölskyldu sína. Fersk og undan- bragðalaus lýsing á skuggahlið- um þjóðfélagsins. Frásögn sem ég hefði kosið að væri skáldsaga en ekki raunveruleiki. Eiturlyfjabarónarnir settu Guðmund á dauðalista fýrir að trufla viðskiptin. Bugaður borg- aði hann þeim háar fjárhæðir en hvort það dugar....... Valdimar Leó Friðriksson. Illlll Leikhús Spennandi verk eftir Kristján Þórð Hrafnsson Böndin á milli okkar Lýsing : Asmundur Karlsson. Búningar: Margrét Sigurðardóttir. Leikmynd: Jón Axel Björnsson. Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason. Leikarar: Rúnar Freyr Gíslason, Sólveig Arnarsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Friðrik Friðriksson. Verkið fjallar um íslenskan sam- tíma þar sem tekist er á við mik- ilvægar spurningar um mannleg samskipti af sálfræðilegu innsæi og einstöku næmi. Aðalpersónurnar eru ung kvikmyndagerðarkona með stóra draurna og tilbúin til að leggja allt undir og ungur leik- ari sem á bak við ímynd vin- sælda og velgengni á í baráttu við eigin hugsanir og tilfinn- ingar. Hversu langt er hægt að ganga til að láta að vilja annarr- ar manneskju? Hvað er að hafa stjórn á eigin lífi? Höfundinum hefur tekist að skapa glimrandi verk. Innsæið og næmið á tilfinningarnar kemur á óvart hjá svo ungum manni. Viðfangsefnið snertir okkur öll. Hver þekkir ekki mannætuna sem svífst einskis í sjálfselsku sinni og tillitsleysi. Persónurnar eru mjög trú- verðugar og leikararnir hver öðrum betri. Skapgerðartúlkun Rúnars Freys var frábær og full af einlægni og ástríðu. Hilmir Snær er frábær leik- stjóri.allt smellur saman hjá honum. Leikmyndin fín, skemnrti- legar lausnir og ekki er lýsingin síðri. Nálægðin á litla sviðinu skapar skemmtilega og á köfl- um spennandi nærveru á milli áhorfenda og leikara. Það er vel þess virði að eyða einni skammdegiskvöldstund í leikhúsinu og koma glaður út með hausinn fullan af hugsun- um. Svala Norðdahl. 13

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.