Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Viðtalið sem setti allt á annan endann
Hertogahjónin af Sussex, Harry Bretaprins og Meghan
Markle, stigu fram í eftirminnilegu viðtali við Opruh í vikunni
sem hefur vakið mikla athygli. Meghan greindi frá rasisma,
einelti og niðurlægjandi framkomu sem hún mátti sæta á
meðan hún gegndi konunglegum skyldum. Varð þetta henni
svo þungbært að um skeið íhugaði hún að svipta sig lífi. Harry
kvaðst hafa óttast að kona hans myndi fylgja í fótspor móður
hans, Díönu prinsessu, því svo mikill var ágangur fjölmiðla.
Ísland kært til Mannréttindadómstóls
Níu konur hafa kært íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls
Evrópu, en þær telja ríkið hafa brotið á rétti þeirra til rétt-
látrar málsmeðferðar. Konurnar eiga það sameiginlegt að vera
brotaþolar sem kærðu nauðganir, heimilisofbeldi og/eða kyn-
ferðislega áreitni til lögreglu en málin voru felld niður hjá
ákæruvaldinu. Málshöfðuninni er ætlað að vekja athygli á því
hvernig íslenska ríkið brýtur kerfisbundið gegn rétti kvenna
sem kæra kynbundið ofbeldi.
Mistök við greiðslur
Efling greindi frá því á miðvikudag að Ábyrgðasjóður launa
hefði greitt fyrrverandi starfsmönnum starfsmannaleigunnar
MIV ehf. vangoldin laun, þar með talið kostnað sem hafði ver-
ið dreginn af útborguðum launum þeirra. Taldi Efling greiðsl-
urnar fela í sér viðurkenningu á því að frádráttur vinnuveit-
enda frá launum starfsmanna, á borð við leigukostnað og
símakostnað, væri óheimill. Hins vegar gaf Vinnumálastofnun
út yfirlýsingu skömmu síðar þar sem kom fram að frádráttar-
liðir hefðu verið greiddir út fyrir mistök. Til stendur nú að
yfirfara málsmeðferð sjóðsins.
Sviptur verjanda
Karlmaður á fimmtugsaldri sem grunaður er um að eiga hlut
að manndrápinu í Rauðagerði hefur verið sviptur verjanda
sínum, Steinbergi Finnbogasyni. Héraðsdómur féllst í vikunni
á kröfu lögreglu um að Steinbergur yrði skikkaður til að gefa
skýrslu í málinu en þá má hann ekki lengur vera verjandi
mannsins. Ákvörðuninni hefur verið áfrýjað til Landsréttar
en Steinbergur segir það brot gegn réttindum sakborninga að
lögregla geti svipt þá málsvörum sínum með þessum hætti.
Aldís fær bætur
Aldís Schram hefur gert sam-
komulag við ríkið um miska-
bætur vegna brots Embættis
lögreglustjórans á höfuðborg-
arsvæðinu á persónuverndar-
lögum. Lögregla miðlaði á sín-
um tíma persónuupplýsingum
um Aldísi til föður hennar,
Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar, en Persónuvernd komst að
þeirri niðurstöðu á síðasta ári
að miðlunin hefði farið gegn
lögum. Miskabætur eru 1,2
milljónir og svo bætast við 400
þúsund vegna málskostnaðar.
Vilja fleiri Íslendinga á völlinn
Haukar, KR, Stjarnan og Valur lögðu fram tillögu fyrir árs-
þing KKÍ sem haldið verður á laugardag um að það verði að
reglu að ávallt skuli tveir til þrír Íslendingar vera innan vallar
í hvoru liði í körfuboltaleikjum hér á landi. Er tillagan rök-
studd með því að vægi íslenskra leikmanna sé orðið of lítið
og tækifæri þeirra of fá. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur er
ósammála og hefur sett sig upp á móti tillögunni.
1 Öskureiður eftir umtalaða viðtalið – „Ég trúi ekki orði af
því sem hún segir“ Viðtal Opruh við
Harry Bretaprins og Meghan Markle
vakti mikla athygli.
2 Jóhanna segist hafa lent í pípara og leigjanda frá helvíti
– „Ég fékk lögregluna í Keflavík til
að hreinsa þetta út“ Kona samdi við
pípara um viðgerðir gegn afnotum af
húsnæði, en píparinn reyndist fúskari
í neyslu.
3 Netverjar botna ekki neitt í neinu eftir atvik á Stöð 2 í
kvöld – „Fyrir okkar hönd biðst ég
innilegrar afsökunar“ Stöð 2 skipti
yfir á auglýsingar á ögurstundu í
miðjum fótboltaleik, áhorfendum til
lítillar gleði.
4 Nafnlaust símtal í öryggisverði á Leifsstöð – Taskan var opnuð
og þar blasti þetta við Sigurbjörn
Heiðarsson gerðist prakkari í æfinga-
ferð og laumaði klámblöðum í tösku
þjálfarans.
5 Úr jakkafötunum í jogging-gallann – Sögðu upp öruggum
störfum í heimsfaraldri og hafa ekki
litið til baka Parið Ingi Torfi og Linda
Rakel sögðu upp störfum og stofnuðu
eigið fyrirtæki.
6 Fann kaldan vind koma frá baðherbergisspeglinum –
Gerði óhugnanlega uppgötvun
Bandarísk kona fann leyniíbúð bak
við baðherbergisspegilinn.
7 Birti myndband úr hótelher-berginu- Það sem lá á rúminu
vakti athygli Ástralskur áhrifavaldur
gleymdi að fela kynlífstækin áður en
hún tók sjálfur sem fóru á netið.
8 Óttar geðlæknir – „Mér leiðast þessi píslavottarvið-
töl“ Óttar Guðmundsson geðlæknir
skóf ekki utan af skoðunum sínum í
helgarviðtali við DV.
9 Alin upp í sviðsljósinu – Sat nakin fyrir 10 ára og lék
vændiskonu 11 ára Leikkonan
Brooke Shields var aðeins 11 mánaða
þegar hún kynntist fyrst sviðsljósinu.
BÍLASMIÐJURINN HF.
Þú hitar bílinn með
fjarstýringu og nýtur
þannig þæginda og
öryggis
ALDREI AÐ SKAFA!
MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA
4 FRÉTTIR 12. MARS 2021 DV