Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
J ón Ásgeir Jóhannesson segist í grunninn vera rekstrarmaður sem nýt-
ur sín best í vélarrúmi fyrir-
tækjanna, „á kafi í smáatrið-
unum“, og ekkert af því sem
á hefur gengið hefur fengið
því breytt. Jón hóf feril sinn
í „bissness“ sem strákur á
gólfinu hjá SS þar sem bæði
afi hans og pabbi störfuðu. Jón
fór síðar í Versló, lærði kjötiðn
og sá vafalaust framtíð sína
fyrir sér í fjölskyldubrans-
anum – verslunarrekstri.
Hann vissi það kannski
ekki þá, en hans beið þá mikil
rússíbanareið sem Jón segir
að hafi aðeins verið hans fyrri
hálfleikur.
Úr kjallara fyrstu Bónus-
verslunarinnar í Skútuvogi
skipulögðu feðgarnir Jón
og Jóhannes Jónsson, oftast
kallaður Jóhannes í Bónus,
uppbyggingu verslunarvelda
sinna. Síðar sameinuðu þeir
Bónusveldi sitt Hagkaups-
veldinu og stofnuðu innkaupa-
fyrirtækið Baug. Það nafn átti
eftir að festa sig tryggilega á
spjöld sögunnar.
Við Baug bættust svo nöfn
eins og Hamleys, Fréttablað-
ið og DV, Magasin Du Nord,
Formúluliðið Williams, FL
Group, Glitnir og svo auðvitað
Davíð Oddsson – mest nefndi
maðurinn í nýútkominni bók
Jóns; Málsvörn.
Enginn „sorry-túr“
Nú, 32 árum eftir að Jón stofn-
aði Bónus og 13 árum eftir
hrun, segir Jón Ásgeir sögu
sína í fyrsta sinn og leggur
sína „málsvörn“ fram í heilu
lagi. Bókinni hefur Jón svo
fylgt eftir með viðtölum við
fjölmiðla og ekki er laust við
að einhverjir gætu spurt hvað
honum gangi til með þessu
öllu saman.
Skyldi hér vera á ferð til-
raun til syndaaflausnar? Eru
Íslendingar að sjá „sorry-túr“
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar?
„Nei,“ segir Jón með sem-
ingi. „En þetta er uppgjör.
Þarna kemur líka fram sýn á
málin sem hefur ekki komið
fram áður. Mín hlið. Þegar þú
lest þetta saman, þessa heild-
armynd af því hvernig kerfið
hefur látið, verður öll sagan
miklu skýrari.“
Þarna gætir strax ákveðinn-
ar kergju í rödd Jóns, og skal
engan undra. Jón þurfti að
sæta því að vera miðpunktur
sakamálarannsókna og dóms-
mála svo til óslitið í rétt tæpa
sex þúsund daga. 16 og hálft
ár. Í lok árs 2019 neitaði
Hæstiréttur að taka Aurum-
málið svokallaða til umfjöll-
unar og lauk þar með síðasta
máli yfirvalda gegn Jóni Ás-
geiri. Varð þá jafnframt ljóst
að hann yrði ekki sakfelldur í
neinum „hrunmálum“. Daginn
hefur Jón kallað „freedom-
day“.
Fyrsta brotið sem lands-
menn sáu úr nýrri bók Jóns
Ásgeirs fjallaði um Gunnar
Smára Egilsson og störf hans
fyrir Jón. Gunnar var á „góð-
æristímanum“ forstjóri fyrir-
tækisins 365 Media Scandin -
avia sem stofnaði og gaf út
fríblað í Danmörku. Í bókinni
er Gunnar sagður hafa „helst
ekki nennt til Danmerkur
nema að fá undir sig einka-
þotu“. Aðspurður hvort þetta
hafi verið meðvitað skot á
fyrrverandi samstarfsmann
sinn, sem nú er formaður
Sósíalistaflokksins, segir Jón
svo ekki hafa verið. „Nei, alls
ekki. Við vorum ágætis sam-
starfsmenn framan af, ég og
Gunnar.“ En U-beyja fyrrver-
andi kollega hans í lífsskoðun-
um virðist þó ekki dulin Jóni.
„Það var ekki ég sem kom til
baka með miklum látum eftir
hrunið og hafði uppi miklar
svívirðingar.“
Og Gunnar var ekki einn
um það, segir Jón. Sitt sýnd-
ist auðvitað hverjum í kjölfar
atburðanna haustið og vetur-
inn 2008 og stigu fjölmargir
fram með ýmsar skoðanir um
hvernig framhaldið ætti að
vera hér á landi. Nema Jón.
Þvert á móti má eiginlega
segja að Jón hafi dregið sig
úr sviðsljósinu með öllu. Jón
segir að þar hafi dómsmálin
gegn sér spilað stærra hlut-
verk en áður hafi komið fram.
Síðasta viðtal Jóns á þessum
tíma var eftirminnilegt viðtal
Egils Helgasonar við hann í
Silfri Egils um miðjan október
2008. Aðeins örfáum dögum
eftir ríkisvæðingu Glitnis.
Jón kallaði ríkisvæðinguna
„stærsta bankarán sögunnar“.
Eftir viðtalið hvarf Jón svo
til af sjónarsviðinu, þó að
hann taki ekki alveg undir
það.
„Ég fór kannski ekki alveg
undir stein, en þegar þú lendir
í áföllum, þó það komi ekki
fram opinberlega, þá er maður
á fullu að berjast og það kemst
lítið annað að,“ segir Jón.
Tók þetta á?
„Já,“ svarar Jón strax, en
lætur þar við sitja.
Svo kom „freedom-day“.
Leið þér þannig? Eins og þú
værir loksins frjáls?
„Já,“ skýtur hann aftur
strax að. „Það vita allir sem
standa í rannsókn, sem eru
með ríkið og ríkisstofnanir
með allt það vald sem þeim
fylgir á eftir sér, að því fylgir
ákveðinn kvíði. Þú veist aldrei
á hverju þú mátt eiga von. Það
verður erfitt að skipuleggja
framtíðina sína og ríkisvaldið
hefur svo mörg tól og tæki til
að bregða fyrir þig fæti,“ seg-
ir Jón. „Þú ert alltaf að hugsa
um það. Alltaf.“
Hefði kunnað betur
á Formúlu 1
Í áðurnefndu viðtali við Egil
Helgason í október 2008
þjarmaði Egill fast að Jóni
og spurði meðal annars hvort
hann ætlaði ekki taka neina
ábyrgð á hruninu. „Ég er til
í að taka á mig sanngjarna
ábyrgð,“ svaraði Jón. Að-
spurður hvort það hafi raun-
gerst að hann hafi tekið á sig
sanngjarna ábyrgð á efna-
hagshremmingum Íslendinga
haustið 2008 segir Jón svo
vera. „Ég held að allir hafi nú
tekið sína ábyrgð á sínum mál-
um. Menn töpuðu gríðarlegu
fé og það var enginn að leika
sér að því. Það vildi enginn
kom sér í þessar aðstæður. Ef
menn hefðu vitað hvað væri í
vændum hefðum við auðvitað
selt allt árið 2007 og farið að
gera eitthvað annað.“
Ein mistökin sem Jón hefur
einmitt viðurkennt upp á sig
er að hafa verið of ragur við
að selja eignir. Meiri áhersla
hafi verið lögð á að kaupa þær.
Í bók sinni segir Jón það
jafnframt hafa verið mistök
að fjárfesta í geirum sem
hann hafði litla sérfræði-
þekkingu á og nefnir Glitni
sérstaklega sem dæmi í þeim
efnum. Aðspurður hvort það
hafi verið fleiri svið sem hann
var kominn inn á án þess að
eiga heima þar, jafnvel Form-
úlu 1 liðið, segir Jón svo ekk-
ert endilega vera. „Ég var
náttúrulega ekkert kominn
af stað í kaupin á Formúlu 1
liðinu, en ég hugsa að ég hefði
skilið það betur en banka-
starfsemi,“ segir Jón og hlær.
Endurkoman og
seinni hálfleikur
Sem fyrr segir upplifir Jón að
seinni hálfleikur sinn sé nú að
hefjast, en lítur hann svo á að
sömu reglur gildi í seinni hálf-
leik og giltu í þeim fyrri?
„Ég er ekki að fara í neinn
uppbyggingaræsing neitt. Ég
átti kannski frekar við að ég
væri frekar að taka seinni
hálfleikinn með þroska og
reynslu úr fyrri hálfleik.“
Ertu að snúa aftur úr útlegð?
„Nei, ég var ekki í neinni út-
legð. Ég var alltaf hérna á Ís-
landi með annan fótinn,“ segir
hann.
Jón Ásgeir
Jóhannesson
er farinn að
láta aftur að
sér kveða í
íslensku við-
skiptalífi.
MYND/
SIGTRYGGUR ARI
Kjötiðnaðar-
maðurinn í
kristalsalnum
Jón Ásgeir Jóhannesson er aftur farinn að láta að sér
kveða í íslensku viðskiptalífi. Hann horfir um öxl í nýrri
bók og kallar það sem áður gekk á sinn fyrri hálfleik.
Hann segist smámunasamur verslunarmaður inn við
beinið sem njóti sín best á jörðinni og viðurkennir að
hafa verið ótrúr Bónus-uppruna sínum í góðærinu.
12. MARS 2021 DV
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is