Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Page 12
12 FRÉTTIR
neinum „sorry-túr“ hér. Þetta
er fyrst og fremst bara upplýs-
ingatúr þar sem ég fæ loksins
að stíga fram með mína sýn á
þessi mál.“
Tóku líkið fram yfir
Jón tekur undir það að álit al-
mennings hafi sveiflast gríðar-
lega í gegnum árin. „Fyrst
vorum við alveg rosalega vel
liðin, svo ekki,“ segir Jón.
En hvernig sér Jón stöðuna
í dag fyrir sér?
„Ég upplifi það að almenn-
ingur sé tilbúnari til þess
að heyra að það eru kannski
tvær hliðar á þessum málum
og skilningurinn á því sem
gerðist og er að gerast er að
vaxa og fleiri eru að sjá að í
lýðræðisríki eiga svona hlutir
einfaldlega ekki að gerast,“
segir Jón.
„Þegar maður fer með mál
fyrir Samkeppniseftirlitið, þá
byrjar bara stoppklukka. Þú
leggur mál inn og stofnunin
hefur bara X tíma til að svara.
Í Noregi er svipað uppi á ten-
ingnum hvað varðar sakamál.
Hér er engin klukka á neinu og
hægt að draga menn út í hið
óendanlega,“ segir hann. „Í
eitt skipti vorum við að velta
því fyrir okkur af hverju við
höfðum ekkert heyrt frá þeim
[yfirvöldum] í einhvern tíma.
Þá fengum við að vita að það
hefði fundist lík í höfninni í
Neskaupstað og allir væru
uppteknir í því. Á meðan
þurftum við bara að bíða.“
En núna er þetta búið, ekki
satt?
„Jú, þetta er búið hjá mér en
kerfið er áfram svona. Það er
auðvitað þannig að ef þú ert
ekki búinn að finna glæpinn á
þremur árum, er þá ekki bara
líklegt að það hafi enginn
glæpur verið framinn? Þetta
er bara ekki í lagi svona.“
Jón segist ekki bera neinn
kala til einstakra manna. Kerf-
ið verði þó að taka breytingum.
„Ég man eftir því að Halldór
Blöndal sagði við okkur feðga
einhvern tímann að eitt kjör-
tímabil dygði ekki mönnum
til að koma málum í gegnum
embættismannaklíkuna. Hann
þyrfti að minnsta kosti tvö
kjörtímabil í sama ráðuneyt-
inu til þess að koma sínum
málum í gegn.“ Jón segist í
þessu samhengi hafa fylgst
með tilraunum Áslaugar Örnu
til þess að koma breytingum á
áfengislöggjöfinni í gegnum
„kerfið“ og segir ljóst að þar
mæti hún mikilli andstöðu
manna sem vilji engu breyta.
Það vekur athygli blaða-
manns að Jón taki emb-
ættisfærslur Áslaugar Örnu
Sigurbjörnsdóttur dómsmála-
ráðherra sem dæmi, en aðstoð-
armaður Áslaugar er einmitt
Hreinn Loftsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Baugs og
síðar lögmaður fyrirtækisins
í Baugsmálunum svokölluðu.
Mikið er rætt um Hrein í
bókinni og hafa sumir gengið
svo langt að segja að í bókinni
felist ekki síður uppreist æru
Hreins en Jóns Ásgeirs.
„Ég veit það nú ekki, ég hef
ekki verið í miklu sambandi
við Hrein síðan á Baugsár-
unum, en Hreinn er maður
Jón segist
njóta sín best
í vélarrúminu
og að smá-
munasemi
hans koma
kollegum hans
á óvart.
MYND/
SIGTRYGGUR ARI
Já, við fórum
þarna í stærri
mál og uppruninn
gleymdist.
12. MARS 2021 DV
með sterkar skoðanir og sterk
prinsipp. Ég hitti hann af og
til, en við erum ekki í miklu
sambandi,“ segir Jón aðspurð-
ur um samskipti sín við Hrein
undanfarin ár.
Þeir sem grannt fylgjast
með stjórnmálum kunna að
hafa tekið eftir því að eitt
fyrsta stórverk Áslaugar Örnu
í embætti var að losa Harald
Johannessen úr stóli ríkislög-
reglustjóra. Haraldur kom að
rannsókn Baugsmálanna á
sínum tíma.
„Sá hann ekki bara um það
sjálfur? Þegar allt lögreglulið
landsins er komið upp á móti
þér og búið að kvitta undir að
það gangi ekki upp?“ spyr Jón.
Þó að Haraldur hafi komið
að Baugsmálinu var það nú
samt svo að rannsóknin var
af mörgum, ef ekki flestum,
talin runnin undan rifjum
Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra og eru fáir nefndir
jafn oft á nafn og Davíð í bók
Jóns Ásgeirs. Þar segir enn
fremur að Davíð hafi „fengið
Jón Ásgeir á heilann“ og sagði
Einar Kárason, höfundur
bókarinnar, í viðtali á Rás 2
að samskipti Davíðs og Jóns
Ásgeirs gegnum Baugsmálið,
„bolludagsmálið“, hrunið og
eftirmála þess vera „rauðan
þráð“ í bókinni.
Nú er bókin komin út og
lítið hefur farið fyrir málsvörn
Davíðs vegna Málsvarnar
þinnar. Er áhrifatíð Davíðs
Oddssonar í íslenskum stjórn-
málum liðin?
„Ég veit það ekki, ég held
nú að yngri hluti Sjálfstæðis-