Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 14
Í meðferð er skoðað hvort ofbeldið hefur tengsl við neyslu, geðsjúkdóma, streitu eða atvinnuleysi, svo dæmi séu tekin. MYND/GETTY Þeir sem koma til okkar gera það sem þeir gera því þeir telja sig ekki geta annað eða kunna ekki annað. Sálfræðilega séð byggj- ast gjörðir þeirra á vanmætti og vankunnáttu. Mitt hlutverk er að kenna þeim að bregðast öðruvísi við eða jafnvel gera ekki neitt í aðstæðum sem þeir telja vera afar ögrandi,“ segir Andrés Ragnarsson sál- fræðingur sem rekur verk- efnið Heimilisfriður þar sem gerendur í heimilisofbeldis- málum fá sérhæfða aðstoð. Um hundrað ný mál koma inn á borð Heimilisfriðar á hverju ári, tvö til þrjú í hverri viku að jafnaði. Síðustu mán- uði hafa þau hins vegar verið mun fleiri. Andrés tengir það að hluta við afleiðingar heims- faraldursins en einnig við vit- undarvakningu um ofbeldi og aukna umræðu. „Ég er ekki í vafa um að COVID hefur haft áhrif. Við þekkjum það frá fyrri tíð, frá 2008 og því ástandi sem þá ríkti. Ef það var brestur fyrir þá versnaði hann í krísunni. Við hér á stof- unni höfum verið með þessi mál í forgangi og rutt öðru frá. Heimilisofbeldi hefur verið í algjörum forgangi.“ Verkefnið var sett á lagg- irnar árið 1998 undir heitinu Karlar til ábyrgðar en nafninu var breytt í Heimilisfrið árið 2013 enda meðferðin veitt ger- endum af öllum kynjum. Um 75 prósent gerenda sem koma eru karlmenn, 25 prósent kon- ur og einstaka trans fólk. Stór lýðheilsuvandi Andrés hefur verið hluti af verkefninu frá upphafi. Hann var þá fenginn til þess ásamt Einari Gylfa Jónssyni sál- fræðingi af Karlanefnd Jafn- réttisráðs. „Á hverju einasta ári hefur það aukist hvað þetta er mér mikið hjartans mál. Þetta er stór lýðheilsuvandi sem við erum að eiga við sem hefur miklar og alvarlegar afleiðingar fyrir svo marga,“ segir hann. „Við bjóðum upp á kerfis- bundna meðferð þar sem við tökum á gildismati, viðhorf- um, ræðum uppeldi, tökum afstöðu til tjáskipta og valda- hlutfalla kynjanna. Við þurf- um að vinna með þetta allt saman og við þurfum sannar- lega að vinna með áfallasögu viðkomandi því hún er oft ansi mikil.“ Hann segir það forréttindi að fá til sín gerendur sem koma af fúsum og frjálsum vilja, jafnvel þá sem koma af því þeim er vísað til Heimilis- friðar af barnaverndarnefnd- um eða félagsþjónustu þá koma þeir á eigin forsendum. „Þeir sem leita til okkar gera það því þeir vilja gera öðru- vísi, þeir vilja breyta og þeir vilja stoppa.“ FLEIRI GERENDUR HEIMILISOFBELDIS LEITA AÐSTOÐAR Í hverri viku leita að jafnaði tveir til þrír ger- endur í heimilisofbeldismálum sér aðstoðar hjá Heimilisfriði í fyrsta skipti. Markmið með- ferðar er að gerendur hætti að beita ofbeldi og taki ábyrgð á sjálfum sér. 14 FRÉTTIR 12. MARS 2021 DV Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Af síðustu hundrað málum sem komu á borð Heimilis- friðar komu um 45 prósent að eigin frumkvæði, um 30 prósent vegna tilvísana frá barnavernd og aðrir í gegn um Bjarkarhlíð, lögregluna eða aðra meðferðaraðila. „Alvarlegustu málin eru því miður mál þar sem um er að ræða mikið og lífshættulegt ofbeldi en fólk er einnig að koma eftir einstök ofbeldis- tilvik og fólk vill ekki vera þar eða vera slík fyrirmynd. Það er líka staðreynd að 85 prósent þeirra sem koma til okkar hafa upplifað eða orðið vitni að ofbeldi í æsku. Þá er um þessa arfleifð að ræða.“ Hefur oft varann á Spurður hvort það reyni ekki á andlega að sinna þessu starfi segir Andrés: „Ég er auðvitað reyndur fagmaður en vissu- lega koma upp erfið mál sem reyna á andlega og streitulega. Það er þó ekki þannig að ég sé oft hræddur í vinnunni. Það hefur gerst kannski þrisvar eða fjórum sinnum á ferlinum að ég hef orðið hræddur í við- tali. En ég hef oft haft vara á mér.“ Andrés er með aðstöðu hjá Sálfræðingum Höfðabakka sem eru við Höfðabakka 9 og er þar fjöldi fólks starfandi. „Ég er aldrei einn í húsinu. Við erum með ákveðið kerfi í gangi til að tryggja öryggi. En við erum í góðu samstarfi við lögregluna og það er auðsótt að fá aðstoð þar,“ segir hann. Alls eru fimm sem starfa fyrir Heimilisfrið, þrír hjá Sál- fræðingum Höfðabakka, einn á Akureyri og einn á annarri stofu í Reykjavík sem sinnir makaviðtölum. „Við bjóðum upp á tvö viðtöl fyrir maka, í byrjun og þegar dregur nær 1.500 FRÁ UPPHAFI 85% HAFA UPPLIFAÐ EÐA ORÐIÐ VITNI AÐ OFBELDI SEM BÖRN 25% KONUR GERENDUR SEM LEITA TIL HEIMILISFRIÐAR: 75% KARLAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.