Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Síða 16
16 EYJAN
K ona sótti um starf hjá hinu opinbera og fékk ekki. Hún taldi ráð
herra í ríkisstjórn Íslands
hafa brotið jafnréttislög
þegar ráðherrann skipaði
karlkyns flokksbróður sinn
í stöðuna. Kærunefnd jafn
réttismála var sammála
þessu. Ráðherrann ákvað þá
að fara í mál við konuna sem
leitaði réttar síns til að fá úr
skurði kærunefndar hnekkt.
Á dómsskjölum stendur að
sá sem stendur í málarekstri
gegn konunni sé „íslenska
ríkið“. Konan hafði betur í
héraðsdómi og íslenska ríkið
var dæmt til að greiða máls
kostnað hennar. Ráðherra
ákvað þá að áfrýja til Lands
réttar. Ólíklegt er að dómur
þar falli fyrr en eftir alþingis
kosningar sem fara fram í
september. Reikna má með
því að ráðherrann sækist eftir
endurkjöri.
Einhvern veginn svona er
einfölduð útgáfa af atburða
rás sem hófst í júní 2019 þegar
auglýst var staða ráðuneytis
stjóra mennta og menningar
málaráðuneytisins. Ráðherra
mennta og menningarmála
var þá og er enn Lilja Dögg
Alfreðsdóttir, varaformaður
Framsóknarflokksins.
Bauð sig fram til formanns
Maðurinn sem var skipaður
í starf ráðuneytisstjóra er
Páll Magnússon sem hefur
um langa hríð gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Fram
sóknarflokkinn. Hann starf
aði til að mynda í iðnaðar og
viðskiptaráðuneytinu um sjö
ára skeið sem aðstoðarmaður
ráðherra Framsóknarflokks.
Hann var varabæjarfulltrúi
í Kópavogi í átta ár og vara
þingmaður Framsóknarflokks
í önnur átta ár. Þá bauð Páll
sig fram til formanns Fram
sóknarflokksins 2009 en hafði
ekki erindi sem erfiði og Sig
mundur Davíð Gunnlaugsson
var kjörinn. Síðustu ár hefur
Páll starfað sem bæjarritari
Kópavogs.
Þegar tilkynnt var um skip
anina heyrðust strax háværar
gagnrýnisraddir þar sem Lilja
var sökuð um að hafa skipað
Pál í stöðuna vegna flokksholl
ustu hans.
Aldarfjórðungs reynsla
Konan sem kærði skipan Páls
er Hafdís Helga Ólafsdóttir,
skrifstofustjóri í forsætis
ráðuneytinu.
Aðalmeðferð í máli íslenska
ríkisins gegn Hafdísi Helgu í
Héraðsdómi Reykjavíkur fór
fram 27. janúar síðastliðinn.
Þar kom fram að sérstök
hæfnisnefnd hafði skrifað um
hæfni Hafdísar Helgu: „Hún
starfaði við opinbera stjórn
sýslu.“ Þetta hefur þótt ansi
snautleg lýsing á því að Haf
dís Helga hefur starfað í opin
berri stjórnsýslu í 25 ár. Þar
af hefur hún verið skrifstofu
stjóri í tveimur ráðuneytum,
forstöðumaður nefndasviðs
12. MARS 2021 DV
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
LÖGBROT LILJU
ALFREÐSDÓTTUR
Alþingis og aðallögfræðingur
bæði Alþingis og Samkeppnis
eftirlitsins.
Um Pál skrifaði hæfnis
nefndin hins vegar: „Hann
hefur langa reynslu við
ábyrgðarmikil stjórnsýslu
verkefni.“ Páll er með meist
arapróf í opinberri stjórnsýslu
en stór hluti ferils hans er
annars rekinn hér að framan.
Þá benti lögmaður Hafdísar,
Áslaug Árnadóttir, á að Páll
hefði enga reynslu af þremur
fyrirferðarmestu málaflokk
um í starfi hvers ráðuneytis;
lögum um opinber fjármál og
fjárveitingar, samningu laga
frumvarpa og innleiðingu
EESreglugerða.
Formaðurinn í átta
nefndum fyrir Framsókn
Þrettán sóttu um embættið
og mat hæfnisnefnd fjóra um
sækjendur mjög hæfa til þess
að gegna því. Í kjölfarið boð
aði ráðherra þá í viðtal, þar
sem ítarlega var farið ofan í
einstaka þætti starfsins og
sýn umsækjenda. Hafdís
Helga var ekki meðal þeirra
fjögurra. Auk Páls voru tvær
konur og einn karl í hópnum.
Í júní 2020 greindi RÚV frá
því að formaður hæfnisnefnd
arinnar, Einar Hugi Bjarna
son, sat alls sem formaður
í fjórum nefndum sem Lilja
hafði skipað hann í og hafði
verið fulltrúi Framsóknar
flokksins í minnst fjórum
nefndum til viðbótar. Sérstaka
athygli vakti að Lilja skipaði
Einar Huga sem formann fjöl
miðlanefndar á svipuðum tíma
og tilkynnt var um ráðningu
Páls.
Síðsumars 2019, þegar
skipunartími síðustu fjöl
miðlanefndar var að renna
út, lögðu sérfræðingar í ráðu
neytinu fram minnisblað til
Lilju um að Halldóra Þor
steinsdóttir, lektor í lögfræði
við Háskólann í Reykjavík
og einn helsti sérfræðingur
landsins í fjölmiðlarétti, yrði
skipuð formaður. RÚV sagði
frá því að Halldóru hefði í
ágústmánuði verið tilkynnt
um fyrirhugaða skipan henn
ar sem formanns.
Hún fékk þó aldrei skip
unarbréf heldur símtal um að
Lilja vildi frekar skipa Einar
Huga sem formann fjölmiðla
nefndar. Þessi ákvörðun Lilju
vakti athygli, bæði vegna
þess að hann hefur litla sem
enga reynslu af fjölmiðla
rétti sem þó er gerð krafa um
í fjölmiðlalögum, auk þess
sem þegar höfðu verið skip
aðir tveir karlar og ein kona
í nefndina og hefði skipan
Halldóru því rétt kynjahall
ann við.
Með nýjum jafnréttislögum
árið 2008 var kynjakvóti í
fyrsta sinn leiddur í lög en þar
segir: „Við skipun í nefndir,
ráð og stjórnir á vegum ríkis
og sveitarfélaga skal þess
gætt að hlutfall kynjanna sé
sem jafnast og ekki minna en
40% þegar um fleiri en þrjá
fulltrúa er að ræða.“ Engin
viðurlög eru hins vegar við
brotum á þessu ákvæði og
er starfandi fjölmiðlanefnd
sannarlega ekki sú eina sem
uppfyllir ekki skilyrðin.
Lilja Alfreðsdóttir ætlar að áfrýja til Landsréttar dómi
um að úrskurður kærunefndar jafnréttismála þess
efnis að hún hafi brotið jafnréttislög standi óhaggaður.
Aldrei áður hefur ráðherra farið í mál við opinberan
starfsmann og er málið því einstakt sögulega.