Rit Mógilsár - jún. 2002, Blaðsíða 2

Rit Mógilsár - jún. 2002, Blaðsíða 2
2 1 SAMANTEKT Arnór Snorrason og Stefán Freyr Einarsson. Landsúttekt á skógræktarskilyrðum. Áfangaskýrsla 1997 – 2002 fyrir Suðurland og Suðvesturland. Rit Mógilsár Rannsóknastöðvar Skógræktar nr.14/2002. 68 s. Árið 1997 var hafist handa við nýja úttekt á skógræktarskilyrðum á Íslandi. Markmið hennar er að geta lýst betur vaxtarskilyrðum helstu trjátegunda í skóg- og trjárækt, en þær eru eftirtaldar: 1.Ilmbjörk (Betula pubescens Ehrh.). 2.Alaskaösp (Populus trichocarpa Torr. & Gray). 3.Ilmreynir (Sorbus aucuparia L.). 4.Hraðvaxta víðir sem eru alaskavíðir (Salix alaxensis Cov.) og viðja (S. myrsinifolia Salisb.). 5.Grenitegundirnar sitkagreni (Picea sitchensis (Bong.)Carr.), blágreni (P. engelmannii (Parry), hvítgreni (P. glauca (Moench) Voss.) og rauðgreni (P. abies (L.) Karst.). 6.Stafafura (Pinus contorta Dougl.). 7.Síberíulerki (Larix sibirica Ledeb) (þ.e. rússa- og síberíulerki). Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir frumniðurstöðum trjámælingahluta úttektarinnar á Suðurlandi og Suðvesturlandi sunnan Mógilsár. Þegar er búið að birta samsvarandi skýrslur fyrir Vestfirði, Vesturland, Norðurland og Austurland (Arnór Snorrason ofl. 2001a, 2001b, 2001c og 2002). Mælingarnar fóru fram sumarið 2001. Reynt var að leggja út net mælistaða fyrir hverja tegund. Viðmiðunarfjarlægð milli mælipunkta var 15 km fyrir birki, alaskaösp, alaskavíði, sitkagreni, stafafuru og síberíulerki en 20 km fyrir aðrar tegundir. Mælingar á sitkabastarði (Picea x lutzii Little) falla undir sama flokk og sitkagrenimælingar. Mælingarnar eru nokkuð hefðbundnar trjámælingar er gefa möguleika á útreikningi á bolrúmmáli, meðalársvexti og árlegum vexti bolrúmmáls standandi trjáa. Einnig var safnað upplýsingum um umhverfi hvers mæliflatar. Alls voru gerðar 360 mælingar á 169 stöðum. Niðurstöður eru birtar fyrir þrjá mæliþætti vaxtar, þ.e. yfirhæð, bolrúmmál standandi trjáa og meðalársvöxt standandi trjáa á flatareiningu. Túlkun á niðurstöðum er látinn liggja milli hluta en varað er við ýmsum hættum við oftúlkun niðurstaðna. Fara verður varlega við áframhaldandi úrvinnslu niðurstaðna og taka tillit til þess að mælifletirnir eru misjafnir varðandi þætti sem hafa áhrif á bolrúmmál og vöxt standandi trjáa. Þetta eru þættir eins og upphafsþéttleiki ræktunar, grisjanir og grisjunarstyrkur. Lykilorð: trjámælingar, yfirhæð, bolrúmmál standandi trjáa, meðalársvöxtur bolrúmmáls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.