Rit Mógilsár - jun. 2002, Side 62

Rit Mógilsár - jun. 2002, Side 62
62 Samband standandi bolrúmmáls og þéttleika virðist vera mun lakara (sjá neðri mynd). Þetta er nokkuð á skjön við niðurstöður fyrir sitkagreni á Vesturlandi og Vestfjörðum (Arnór Snorrason ofl. 2001c og 2001a) og fyrir síberíulerki á Norður– og Austurlandi (Arnór Snorrason ofl. 2001b og 2002). Í stuttu máli sýna þessar vangaveltur að ekki má oftreysta þeim frumniðurstöðum sem hér eru birtar og taka verður til skoðunar mörg álitaefni ekki síst þegar meta á framleiðni bolrúmmáls út frá mældu bolrúmmáli standandi trjáa. 7 ÞAKKIR Verkefnið hefur fengið fé af sérfjárveitingu fjárlaga til “Landgræðslu- og skógræktaráætlana”. Sú fjárveiting hefur dugað skammt þannig að leitað hefur verið annarra leiða. Árið 1998 styrktu Búnaðarsamband Vesturlands og Félag skógarbænda á Norðurlandi verkefnið. 1999 lögðu Landssamtök skógareigenda til styrk sem þau sóttu um til Framleiðnisjóðs Landbúnaðarins. Árið 2000 styrktu tvö landshlutaverkefni í skógrækt, Héraðsskógar og Skjólskógar á Vestfjörðum verkefnið rausnarlega, samtímis og safnað var gögnum í landshlutum þeirra verkefna. Í fyrra bættust Suðurlandsskógar í hópinn og Landssamtök skógareigenda lögðu aftur fram styrkfé úr Framleiðnisjóði Landbúnaðarins. Ekki má gleyma að Ingvar Helgason hf. hefur styrkt verkefnið ötullega með bifreiðarlánum til úttektarferðalaga. Allar þessar stofnanir eiga þakkir skyldar fyrir veittan stuðning. Eins og ljóst má vera af framansögðu er landsúttekt á skógræktarskilyrðum gríðarlega umfangsmikið verkefni. Það gæti ekki gengið nema með utanaðkomandi stuðningi eins og áður hefur verið greint frá. Verkefnið hefur einnig notið sérstakrar velvildar um allt land sem skiptir að sjálfsögðu öllu máli fyrir starfsmenn þess og framgang verksins. Landeigendur, bændur og oddvitar skógræktarfélaga hafa hvarvetna verið fúsir til að leyfa mælingar og hafa einnig veitt ómetanlegar upplýsingar um trjágróðurinn sem verið er að mæla. Starfsmenn Skógræktar ríkisins um land allt hafa veitt upplýsingar, aðstöðu og ýmsa fyrirgreiðslu við mælingar. Öllum þessum aðilum eru veittar bestu þakkir fyrir aðstoðina. 8 HEIMILDIR Aðalsteinn Sigurgeirsson 1988. Stafafura á Íslandi. Ársrit Skógræktarfélags Íslands: bls. 3-36. Arnór Snorrason 1987. Lerki á Íslandi. Ársrit Skógræktarfélags Íslands: bls 3- 22. Arnór Snorrason, Lárus Heiðarsson og Stefán Freyr Einarsson, 2002. Landsúttekt á skógræktarskilyrðum. Áfangaskýrsla 1997-2001 fyrir

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.